Morgunblaðið - 08.09.2010, Side 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Hagnaður Íslandsbanka fyrstu sex mánuði ársins nam
8,3 milljörðum króna, samanborið við 8,1 milljarða
hagnað á sama tímabili í fyrra.
Rekstrarhagnaður fyrir tímabilið nam 19,8 millj-
örðum í ár, en 17,8 milljörðum í fyrra, en miklar
breytingar eru hins vegar á ákveðnum undirliðum
milli ára.
Hreinar vaxtatekjur nær tvöfaldast, fóru úr 12,2
milljörðum í 20,3 milljarða króna, einkum vegna þess
að vaxtakostnaður lækkaði úr 31,8 milljörðum króna í
16,7 milljarða.
Á fyrri helmingi ársins 2009 skiluðu fjármagnsliðir
10,2 milljarða króna hagnaði, en á sama tímabili í ár
var hins vegar 6,3 milljarða króna tap á þessum þætti.
Áhrif afskrifta og færslna á afskriftarreikning voru
neikvæð upp á 21,9 milljarða á fyrri helmingi þessa
árs, samanborið við 11,4 milljarða í fyrra. Á móti kem-
ur að endurmetið framtíðartekjuflæði af útlánum er
fært til bókar og bætir það afkomu bankans sem nem-
ur 23,9 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra batnaði
rekstrarreikningur um 2,3 milljarða af sömu sökum.
Þýðir þetta að ef ekki hefði komið til þetta endurmat á
framtíðartekjuflæði hefði afkoma bankans, fyrir
skatta, verið neikvæð um 13,3 milljarða króna.
Rekstrarkostnaður jókst einnig milli ára hjá Ís-
landsbanka. Var hann 7,9 milljarðar á fyrri helmingi
ársins 2009 en var 9,3 milljarðar á sama tímabili í ár.
Er þetta aukning upp á 1,4 milljarða króna. Launa-
kostnaður jókst um 470 milljónir króna, en „annar
rekstrarkostnaður“ jókst aftur á móti um 870 milljónir
króna frá fyrri helmingi ársins 2010.
Hagnaður Íslandsbanka eykst
og framtíðartekjur endurmetnar
Morgunblaðið/Golli
Banki Arðsemi eigin fjár Íslandsbanka var 17,1 prósent á ársgrundvelli og eiginfjárhlutfall var 21,5 prósent.
STUTTAR FRÉTTIR ...
● Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI
hækkaði um 0,1% í gær, í 16,1 milljarða
króna viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt
hækkaði um 0,2% í 7,7 milljarða króna
viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt
lækkaði um 0,2% í 7,5 milljarða króna
viðskiptum. Velta tvo síðustu við-
skiptadaga hefur verið í meira lagi, en í
fyrradag nam hún 21,1 milljarði króna.
Var það fjórði veltumesti dagur ársins.
Úrvalsvísitalan með hlutabréf hækk-
aði um 0,87% í gær, í 71 milljónar króna
viðskiptum. Lækkaði gengi bréfa í Bank
Nordic um 2,78% og hækkaði verð
bréfa í Össuri um 2,64%.
Töluverð skuldabréfa-
viðskipti í kauphöll
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Áform Baracks Obama um að veita
skattaafslætti að andvirði alls 350
milljarða dollara hafa sætt gagnrýni
þingmanna repúblikana. Meðal hug-
myndanna, sem talið er að verði
kynntar í dag, er að fyrirtækjum
verði veitt heimild til breyttrar
skattalegrar meðferðar nýfjárfest-
inga í fastafjármunum út árið. Talið
er að heildarafslátturinn geti numið
um 200 milljörðum dollara. Jafn-
framt er ætlunin að fjárfesta fyrir 50
milljarða í endurbótum á samfélags-
legum innviðum á borð við sam-
göngumannvirki. Ennfremur fá fyr-
irtæki sem standa fyrir eigin
rannsóknar- og þróunarvinnu
skattaívilnanir, alls að andvirði 100
milljarða dollara á 10 ára tímabili.
Efnahagsbatinn vestanhafs hefur
verið hægari en vonir stóðu til. Tæp-
lega tíu af hundraði eru án vinnu,
þrátt fyrir gríðarlega umfangsmiklar
aðgerðir stjórnvalda sem ætlað hefur
verið að blása lífi í efnahagslífið. Þær
aðgerðir voru afar kostnaðarsamar,
kostuðu 814 milljarða dollara, og því
töluverðar efasemdir um kosti þess
að fara þá leið sem nú er boðuð. Við
það bætist að þingkosningar eru á
næsta leiti, en repúblikönum, sem
eygja möguleika á að ná meirihluta í
báðum deildum þingsins, hugnast illa
að veita tillögum pólitískra andstæð-
inga brautargengi svo stuttu fyrir
kjördag þótt þeir séu í grunninn
fylgjandi skattalækkunum. Þeir vilja
heldur framlengja gildistíma tíma-
bundinna skattalækkana þeirra sem
forveri Obama í embætti, George W.
Bush, innleiddi.
Talsmenn Hvíta hússins segja að
skattaafslættirnir nú muni nýtast
einni og hálfri milljón fyrirtækja, og
þau í kjölfarið líklegri til að fjárfesta
og auka umfang starfsemi sinnar.
Við það ykist eftirspurn eftir vinnu-
afli og atvinnuleysi minnkaði eftir
því.
Skattaafslætti ætlað að flýta efnahagsbata
Deilt um ágæti efnahagsaðgerða sem
ætlað er að draga úr atvinnuleysi
Barack Obama Áform hans um
skattaafslætti hafa sætt gagnrýni.
● Íslenska fyrirtækið Mannvit fann í
síðustu viku heitt vatn í nágrenni borg-
arinnar Miskolc í Ungverjalandi, en
Mannvit hefur síðustu ár starfað sem
ráðgjafi ungverska orkufyrirtækisins
Pannergy við jarðhitaverkefni þar í
landi. Boranir hófust við Miskolc síð-
astliðið vor og í síðustu viku fannst
heitt vatn á ríflega tveggja kílómetra
dýpi. Fyrstu mælingar benda til að bor-
holan gefi á bilinu 70-90 sekúndulítra
af 110-120 gráðu heitu vatni, sem er
talsvert framar vonum, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Mannvit finnur heitt
vatn í Ungverjalandi
● Vöruskipti í
ágúst voru hag-
stæð um 2,4
milljarða króna,
samkvæmt
bráðabirgðatöl-
um Hagstof-
unnar. Í ágúst í
fyrra var afgang-
urinn 12,4 millj-
arðar. Útflutningur nam 41,8 millj-
örðum króna, en innflutningur 39,4
milljörðum.
Mest var flutt út af iðnaðarvörum,
eða fyrir rúma 22 milljarða, og næst-
mest af sjávarafurðum, eða fyrir 17,5
milljarða.
Mest var flutt inn af hrávörum og
rekstrarvörum, fyrir 13,8 milljarða
króna, og næstmest af fjárfesting-
arvörum, fyrir 7,6 milljarða króna.
ivarpall@mbl.is
Vöruskiptaafgangur
minnkar í ágústmánuði
FRÉTTASKÝRING
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Orkuveita Reykjavíkur og dótturfyr-
irtæki hennar, Gagnaveitan, hafa frá
árinu 2004 varið 7,8 milljörðum króna
til uppbyggingar á ljósleiðaraneti í
borginni og í aðrar fjárfestingar.
Þessar fjárfestingar hafa á sama
tímabili skilað um 3,5 milljörðum
króna til baka í formi tekna.
Haraldur Flosi Tryggvason, starf-
andi stjórnarformaður Orkuveit-
unnar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að Gagnaveitan og útgjöld
hennar væru einn þeirra rekstr-
arþátta OR sem kæmu til skoðunar
við endurskipulagningu fyrirtæk-
isins.
Meiri fjárfesting en í fyrra
„Mér hefur ekki gefist tími ennþá
til að leggjast sjálfur yfir stöðu
Gagnaveitunnar, en ég bíð þess að
forstjóri fyrirtækisins geri mér grein
fyrir stöðu þess, því Gagnaveitan er
augljóslega hluti af endurskipulagn-
ingu OR.“
Á fyrri helmingi þessa árs námu
fjárfestingar Gagnaveitunnar 393,3
milljónum króna, sem er tíu millj-
ónum hærri upphæð en varið var til
fjárfestinga fyrirtækisins á sama
tímabili í fyrra. Allt árið í fyrra varði
Gagnaveitan 675 milljónum króna í
fjárfestingar og miðað við það stefnir
allt í að fjárfestingar fyrirtækisins í
ár muni nema alls ríflega 690 millj-
ónum króna.
Hafa ber í huga að þrátt fyrir að
fjárfestingar Gagnaveitunnar hafi
verið jafnmiklar í fyrra og raun ber
vitni voru þær þó umtalsvert minni
en árin á undan. Frá árinu 2004 hefur
Orkuveitan, eða dótturfyrirtækið,
aldrei varið undir einum milljarði
króna á ári í fjárfestingar. Árið 2006
námu fjárfestingar til gagnaveitu 1,8
milljörðum króna og árið 2008 námu
þær 1,5 milljörðum króna.
Tekjur af gagnaveitu Orkuveit-
unnar hafa aldrei jafnast á við það fé
sem varið er í fjárfestingar, ef undan
er skilið árið í fyrra. Þá námu tekjur
tæpum 800 milljónum króna og voru
því um 125 milljónum króna hærri en
fjárfesting það ár. Í heildina hefur
fjárfesting á þessu sviði hins vegar
verið ríflega tvöfalt meiri en tekjur af
Gagnaveitunni, eins og áður segir.
Fjárfest umfram tekjur
Fjárfestingar OR og dótturfyrirtækja í gagnaveitu hafa numið alls um 7,8 millj-
örðum undanfarin ár Gagnaveitan hefur skilað 3,5 milljörðum í kassann
Morgunblaðið/Ómar
OR Gagnaveitan var stofnuð árið 2007 sem dótturfyrirtæki OR, gagnaveita
af einhverju tagi hefur um nokkurt skeið verið hluti reksturs OR.
Actavis Group
hefur hug á að
kaupa 51 pró-
sents hlut í
svissneska líf-
tæknifyrirtæk-
inu Biopartners,
en í gær greindi
Actavis frá því
að fyrirtækið
hygðist hefja
áreiðanleikakönn-
un á svissneska lyfjafyrirtækinu.
Í tilkynningu segir forstjóri Ac-
tavis Group, Claudio Albrecht, að
með því að færa sig inn á svið líf-
tækni fái samheitalyfjafyrirtæki
aðgang að vöruframboði sem
krefst nýrrar nálgunar í þróun og
markaðssetningu. Samheitalyfja-
fyrirtæki muni í framtíðinni fjár-
festa mun meira í þróun og frum-
lyfjafyrirtæki muni þróa
samheitalyf.
Albrecht segir að þróun lyfja við
innkirtlasjúkdómum sé ein áhuga-
verðasta og mest vaxandi grein
lyfjaiðnaðarins. bjarni@mbl.is
Actavis
stefnir á
líftæknina
Skoðar kaup á sviss-
nesku fyrirtæki
Claudio Albrecht
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+0+-1+
++1-23
24-+.2
+.-4,+
+/-+1
++/-52
+-543,
+,0-13
+34-12
++0-25
+0+-,3
++1-30
24-23+
+.-+2,
+/-+,,
++/-,3
+-54.0
+,0-00
+34,5
245-0...
++0-32
+02-+.
++1-.+
24-1+
+.-+01
+/-225
++,-40
+-5+1.
+,.-5+
+3+-+/
Loforð Baracks Obama um að
skapaðar yrðu fjórar milljónir
starfa og að atvinnuleysi yrði
haldið undir átta prósentum í
kjölfar björgunaraðgerða ársins
2009, sem kostuðu 814 millj-
arða dollara, hafa ekki gengið
eftir. Atvinnuleysið vestra
mælist nú 9,6 prósent, og hefur
aðeins lækkað lítillega frá því
sem var þegar það var hæst, um
mitt síðasta ár, þegar það
mældist rúmlega 10 prósent.
Dýrt spaug
BJÖRGUNAÐGERÐIR