Morgunblaðið - 08.09.2010, Síða 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
1 9 2 3 6
5 6 1
3 4
4
7 4 9 5
1 9 4 2
1 9 7
6 5 3
2
6 5
4 1 2 8
8 2
5 7 2
3 8 6
1 7
2 5
4 1 6
5 1 3
8
2
3 6 1 2
3 6
1 9 4
4 7
3 4 8
9 4 3 2
8 5 1
4 3 7 6 5 1 9 8 2
9 8 5 7 3 2 4 1 6
1 2 6 4 8 9 3 7 5
2 1 4 3 7 8 5 6 9
8 6 3 5 9 4 7 2 1
5 7 9 1 2 6 8 4 3
7 9 1 8 6 5 2 3 4
6 5 8 2 4 3 1 9 7
3 4 2 9 1 7 6 5 8
4 1 5 3 7 2 9 6 8
8 9 7 5 6 1 4 3 2
2 3 6 9 8 4 5 1 7
9 6 3 4 5 8 7 2 1
1 4 8 2 9 7 6 5 3
7 5 2 6 1 3 8 4 9
5 8 9 1 2 6 3 7 4
6 2 4 7 3 9 1 8 5
3 7 1 8 4 5 2 9 6
8 9 3 7 5 4 1 2 6
1 7 5 6 9 2 3 8 4
2 6 4 1 3 8 9 5 7
7 3 9 8 2 1 4 6 5
6 2 1 4 7 5 8 9 3
5 4 8 3 6 9 2 7 1
4 1 6 9 8 7 5 3 2
9 5 7 2 1 3 6 4 8
3 8 2 5 4 6 7 1 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 8. september,
251. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Víkverji furðar sig ekki á því að tilskuli vera fólk, sem fylgist með
hitatölum eins og spennandi kappleik
eins og sagt var frá á baksíðu Morg-
unblaðsins í gær. Víkverji var um
helgina norður á Hofsósi og þar var
rúmlega tuttugu stiga hiti á sel-
síuskvarða – segi og skrifa – og það í
byrjun september. Hofsós er ynd-
islegur staður og Víkverji vonar að
enginn kippi sér upp við það að hann
haldi fram að staðurinn sé engin veð-
urparadís. Trjágróðurinn ber því
vitni, kræklóttar, veðurbarðar hrísl-
ur, sem um árabil hafa barist við að
brjótast upp úr jörðinni. Nú ber svo
við að framan á greinar barrtrjáa
hafa vaxið 15 sentimetra langir, ljós-
grænir sprotar. Talað hefur verið um
að Norðurland hafi farið varhluta af
blíðunni fyrir sunnan, en gróðurinn
virðist í það minnsta hafa haft það
þokkalegt.
x x x
Ekki er hægt að tala um Hofsósán þess að segja nokkur orð um
nýju sundlaugina. Víkverji er reynd-
ar haldinn þeirri áráttu að vilja prófa
sundlaugar hvar sem hann kemur og
veltir fyrir sér hvort ekki væri lag að
gefa út nokkurs konar Michelin-
leiðarvísi um laugar á Íslandi, jafnvel
með stjörnugjöf eins og gert í um-
ræddum sælkerahandbókum, en er
því miður gjarnari á að fá viðskipta-
hugmyndir en fylgja þeim eftir. Í
slíkri bók fengi sundlaugin á Hofsósi
fullt hús. Í henni er reyndar hvorki
öldugangur né foldgná vatns-
rennibraut, en það er ekki galli held-
ur kostur. Í stað girðinga blasir við
Skagafjörðurinn. Laugin er hönnuð
þannig að hún fellur inn í umhverfið í
stað þess að trana sér fram, látlaus
og smekkleg. Þegar synt er til norð-
urs er eins og hægt sé að halda áfram
út fjörðinn alla leið út í Drangey. Vík-
verji fór í laugina í blíðskaparveðri,
það var sólblik um fjörðinn og him-
inninn blár. Stemningin var nær því
sem gerist við Miðjarðarhaf en undir
heimskautsbaug. En Víkverji getur
ímyndað sér að það sé jafnvel til-
komumeira að koma í laugina á Hofs-
ósi þegar náttúruöflin eru í ham og
skýin hrannast upp yfir úfnum sjó.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 slikja, 4 áfall, 7 út-
limum, 8 dánarafmæli, 9 mátt-
ur, 11 ill kona, 13 fall, 14 skrök,
15 viljugt, 17 billegur, 20
stefna, 22 glæsileg, 23 kletta-
snös, 24 valska, 25 grobba.
Lóðrétt | 1 rolan, 2 Danir, 3
anga, 4 málmur, 5 baunir, 6
fiskilínan, 10 á, 12 nothæf,
13 skar, 15 falleg, 16 bjart,
18 hnugginn, 19 rugga, 20
tölustafur, 21 ófús.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 nístingur, 8 skafl, 9 ræddu, 10 urr, 11 ansar, 13 arnar,
15 makks, 18 smátt, 21 kóp, 22 lokka, 23 ilina, 24 hirðmaður.
Lóðrétt: 2 Íraks, 3 telur, 4 narra, 5 undin, 6 æska, 7 þurr, 12
auk, 14 Róm, 15 mold, 16 kukli, 17 skarð, 18 spila, 19 álitu, 20
traf.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4. Bxc6
dxc6 5. d3 Bg7 6. Rc3 Dc7 7. Be3 b6 8.
h3 e5 9. Dd2 h6 10. a3 a5 11. 0-0 Re7 12.
Ra4 f5 13. Dc3 Be6 14. b4 axb4 15. axb4
0-0 16. bxc5 b5 17. Rb6 Hxa1 18. Hxa1
fxe4 19. dxe4 Bxh3 20. Db3+ Kh7
Staðan kom upp í Politiken Cup, al-
þjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í
Helsingjaeyri í Danmörku. Íslenski
stórmeistarinn Henrik Danielsen
(2.514) hafði hvítt gegn Dananum
Klaus Nielsen (2.057). 21. Bxh6! Bxh6
22. gxh3 Rc8 23. Ha8 Rxb6 24. cxb6
Dxb6 25. Hxf8 Bxf8 26. Df7+ Bg7 27.
Rg5+ Kh8 28. De8+ og svartur gafst
upp.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Herra Prósentuhaus.
Norður
♠Á105
♥G4
♦ÁG107
♣ÁG102
Vestur Austur
♠KDG4 ♠9762
♥8 ♥D95
♦K986 ♦D432
♣9754 ♣83
Suður
♠83
♥ÁK107632
♦5
♣KD6
Suður spilar 6♥.
Dallas-Ásinn Bobby Goldman (1938-
99) þótti snjall í líkindafræði og var oft
nefndur „herra Prósentuhaus“ í hópi
félaga sinna. En Goldman átti sér fleiri
hliðar. Hann var hér í suður og fékk út
♠K gegn slemmunni. Goldman drap
strax og lagði niður ♥Á-K. Sú íferð er
tæknilega rétt, en ekki vel lukkuð.
Nú er prósentuleiðin sú að taka fyrst
♦Á og trompa tígul í leit að hjónunum
þriðju. Gangi það ekki eftir verður að
spila laufunum í von um þrjú eða fleiri í
austur. Hvorugt skilar árangri.
Líkur á ♦KDx eru litlar og Goldman
ákvað að treysta frekar á mannleg mis-
tök í vörninni. Hann lagði niður ♣K,
spilaði litlu laufi á ásinn, svo gosanum
úr borði eins og hann ætlaði að tromp-
svína fyrir drottninguna. Austur lét
blekkjast, henti spaða og slemman
vannst.
8. september 1931
Lög um notkun bifreiða voru
staðfest. Hámarkshraði í þétt-
býli var aukinn úr 18 kílómetr-
um á klukkustund í 25 kíló-
metra og annars staðar úr 40
kílómetrum í 45 kílómetra. Í
dimmu mátti hraðinn þó aldrei
vera meiri en 30 kílómetrar á
klukkustund.
8. september 1957
Helgi Viðar Ólafsson hreppti
titilinn „Íslendingurinn 1957“ í
fyrstu fegurðarsamkeppni
karla sem haldin var í Tívolí í
Reykjavík. Hann hlaut utan-
landsferð, sá sem varð í öðru
sæti hlaut föt og sá í þriðja sæti
fékk frakka, en „kuldagjóstur“
var meðan á sýningunni stóð.
8. september 1975
Dagblaðið, „frjálst, óháð dag-
blað,“ kom út í fyrsta sinn.
Dagblaðið og Vísir voru sam-
einuð í DV sex árum síðar.
8. september 1987
Fimmtíu króna mynt var sett í
umferð. Á henni er mynd af
bogakrabba. Peningurinn er
8,25 grömm, gerður úr eir-
blöndu. Frá sama tíma var hætt
útgáfu 50 krónu seðla.
8. september 1989
Tveir fatlaðir menn komu til
Reykjavíkur eftir fimm daga
ferð frá Akureyri á hjólastólum
til að kynna málstað Sjálfs-
bjargar og til að safna fé svo
hægt væri að ljúka við Sjálfs-
bjargarhúsið. Meðalhraði var 6
km á klukkustund.
8. september 2007
Bæjarins bestu við Tryggva-
götu í Reykjavík fögnuðu sjötíu
ára afmæli og seldu pylsur á 20
krónur. Langar biðraðir mynd-
uðust.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Ég ætla nú ekkert að gera neitt á sjálfan afmæl-
isdaginn, ég fer bara að vinna en ég vona að ég fái
nú að heyra afmælissönginn þar,“ segir Bryndís
Óðinsdóttir en hún starfar sem leiðbeinandi við
leikskólann Hraunborg í Breiðholti. „Við erum
tvær sem vinnum þarna sem eigum afmæli í dag.
Krökkunum finnst alltaf gaman þegar einhver af
starfsfólkinu á afmæli. Þá fær maður endalaus
knús,“ segir Bryndís og hlær.
Í staðinn ætlar Bryndís að halda matarboð með
stórfjölskyldunni um helgina til þess að fagna
tímamótunum og njóta tímans með syni sínum,
Elvari Snæ, sem verður 17 mánaða gamall í dag. „Mamma ætlar
reyndar að dekra við mig og sjá um eldamennskuna. Maður verður nú
bara einu sinni 25 ára!“ segir Bryndís. Eftir matarboðið ætlar hún svo
að skella sér út á lífið með vinkonunum.
Að eigin sögn eru afmælisdagarnir uppáhaldsdagar Bryndísar og
gerir hún alltaf mikið úr þeim. „Allir afmælidagarnir mínir hafa verið
frábærir. Ég hef alltaf verið vakin með kökum og kertum af systur
minni og foreldrum. Ég reyni alltaf að hafa þetta minn dag,“ segir
Bryndís glöð í bragði. kjartan@mbl.is
Bryndís Óðinsdóttir er 25 ára í dag
Endalaus knús í vinnunni
Söfnun
Þessar hörkuduglegu stelpur
héldu tombólu fyrir utan verslun
11-11 í Skipholti í ágúst síðast-
liðnum og söfnuðust 9.170 kr. sem
þær færðu Rauða krossi Íslands.
Þær heita efri röð frá vinstri: Guð-
rún Jóhannesdóttir, Tinna Birna
Björnsdóttir, Vala Magnúsdóttir.
Neðri röð frá vinstri: Ragnheiður
Íris Ólafsdóttir, Embla Dröfn Óð-
insdóttir, Hrafnhildur Sunna Ey-
þórsdóttir.
Flóðogfjara
8. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 6.00 4,1 12.10 0,0 18.15 4,5 6.31 20.21
Ísafjörður 1.59 0,0 7.59 2,2 14.12 0,0 20.10 2,5 6.31 20.31
Siglufjörður 4.10 0,0 10.30 1,4 16.20 0,1 22.38 1,5 6.14 20.14
Djúpivogur 3.05 2,2 9.14 0,2 15.32 2,4 21.39 0,3 5.59 19.51
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er forn þjóðtrú í Perú að sól-
myrkvar geti valdið jarðskjálftum. Engin
spenna er í loftinu og því skaltu taka lífinu
með ró.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Aðrir munu taka eftir þér í dag þannig
að ráðlegt er að gefa gaum að útlitinu. Hugur
þinn er fullur af lausnum og úrbótum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hættu öllum dagdraumum og
komdu þér niður á jörðina. Segðu já við
áhugaverða manneskju sem þú hittir við
skemmtilegar aðstæður.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er nauðsynlegt þegar fjármálin
eru skoðuð að reyna ekki að blekkja sjálfan
sig með einhverjum hundakúnstum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það mætti halda að þú værir sérstakur
verndari erfiðs fólks, og það sækir í þig. Láttu
athugasemdir annarra sem vind um eyru
þjóta. Hugarró er mikilvæg.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Einhver í fjölskyldunni þarf á athygli
þinni að halda í dag. Vertu með svörin við al-
gengum spurningum á reiðum höndum og þá
er allt klárt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það þýðir ekkert annað en fylgjast með
nýjungum á sem flestum sviðum. Stefnumót,
stuttar ferðir eða annað gera þér gott.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það eru margir lausir endar, sem
þú þarft að hnýta, áður en þú getur haldið
áfram. Ef þú þarft að velja á milli einhverra
lausna treystu þá á innsæi þitt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ótti kennir manni að koma skikki
á líf sitt. Þú hefur verið óttalaus hingað til.
Farðu varlega í umferðinni.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er allt á fullu í hausnum á þér
og þú hefur hundrað lausnir við öllum vanda-
málum. Láttu hvatvísina leiða þig eins langt
og hún kemst.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Í heiminum eru tvenns konar
vandamál, þín og þeirra. Boð berst frá ein-
hverjum sem er hærra settur. Ástvinur kemur
þér skemmtilega á óvart.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að láta vinnuna ganga fyrir
öllu öðru næstu daga. Ef þú heldur upp-
teknum hætti verður þú útbrunnin/n innan
fárra ára.
Stjörnuspá