Morgunblaðið - 08.09.2010, Síða 28
28 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Möguleikhúsið fagnar tuttugu ára
afmæli með því að setja upp
barnaleikritið Prumpuhólinn í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
næstkomandi laugardag kl. 14.
Prumpuhóllinn var frumsýndur í
Möguleikhúsinu árið 2002 og sýnd-
ur rúmlega hundrað sinnum á
næstu tveimur leikárum.
Verkið segir frá Huldu sem er
nýflutt úr borginni og upp í sveit.
Þegar hún fer í feluleik með Halla
bróður sínum vill ekki betur til en
hún villist og ratar ekki heim.
Henni líst ekkert á þetta umhverfi
þar sem allt er framandi; lyktin er
náttúrufýla, grasið stingur og það
eru pöddur úti um allt.
Við sérkennilegan hól sem gefur
frá sér dularfull hljóð hittir hún
svo Steina, kátan tröllastrák í
skrítnum fötum sem segir Huldu
að hóllinn sé í raun pabbi sinn.
Hann hafi lent í sólargeisla og orð-
ið að steini eftir að hafa borðað
mikinn hundasúrugraut.
Leikstjórn Prumpuhólsins er í
höndum Péturs Eggerz. Leikmynd
og búninga hannaði Messíana
Tómasdóttir. Tónlistin er eftir
Guðna Franzson. Leikarar eru
Pétur Eggerz og Anna Brynja
Baldursdóttir. Sýningin er ætluð
áhorfendum á aldrinum tveggja til
tíu ára og tekur 45 mínútur í
flutningi.
Prumpuhóll-
inn sýndur í
Gerðubergi
Barnagaman Pétur Eggerz og
Anna Brynja Baldursdóttir.
Ný stendur í Listasafni Kópa-
vogs Gerðarsafni samsýning
níu ungra myndlistarmanna.
Næstkomandi laugardag
munu tveir listamannanna
fremja gjörninga sem hluta af
verkum sínum á sýningunni.
Kl. 16-17 fremur Helga Björg
Gylfadóttir gjörning í björg-
unarbát úti á sjó, sem sést frá
safninu, og er varpað í raun-
tíma í gegnum útvarpsbylgj-
una 103,7 FM inn í safnið og um Kópavog allan.
Kl. 15-17 fremur Páll Haukur Björnsson gjörn-
ing í safnrýminu, en hann mun fremja gjörning í
safnrýminu á hverjum laugardegi kl. 15-17 til
sýningarloka.
Myndlist
Gjörningar
í Gerðarsafni
Páll Haukur
Björnsson
Næstkomandi laugardag flytja
þeir Einar Kárason og William
R. Short fyrirlestra í Land-
námssetrinu í Borgarnesi.
William R. Short, sem er
fræðimaður og rithöfundur frá
Massachusetts í Bandaríkjun-
um, fjallar um landnámsöldina
á Íslandi og nýútkomna bók
sína, Icelanders in the Viking
Age. Einar Kárason flytur
hugleiðingar um fyrstu þætti
Egilssögu, um þá Kveldúlf, Skallagrím og Þórólf
og samskiptin við hið nýja konungsvald í Noregi.
Hann nefnir fyrirlesturinn Hrímþursar nema
land. Dagskráin hefst kl 16:00 á Söguloftinu, frír
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Forneskja
Hrímþursar nema
land í Borgarnesi
William R.
Short
Henrik Árnason Aunio
opnar sýningu á akrýl-
myndum, máluðum á
pappír og striga, í Bog-
anum, Gerðubergi, á
morgun kl. 17:00. Henrik
notar gjarnan þá tækni
að láta litina flæða um
pappírinn eða strigann,
en flestar myndirnar eru
óhlutbundnar. Hann hefur valið sýningunni yf-
irskriftina Trífólíum, sem er latínuheiti smára.
Henrik Árnason Aunio fæddist 1926 í Turku í
Finnlandi. Hann sótti nám í myndlistarskóla
(T.Y.P.K.) á árunum 1942 til 1943. Síðar lærði
hann útstillingar og sölutækni í Myynti & mainos
koulu.
Myndlist
Henrik Árnason
Aunio og Trífólíum
Úr einni mynda Henriks
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Indversk myndlist er lítið kynnt hér á
landi en bragarbót gerð á sýningunni
Indian Highway sem opnuð verður í
Listasafni Reykjavíkur kl. 17 á morgun.
Sýnd verða 26 skjáverk eftir indverska
listamenn, sem allir eru fæddir á áttunda
áratug síðustu aldar.
Í kynningu á sýningunni kemur fram
að meginstef hennar sé mikilvægi hrað-
brauta í efnislegum og óefnislegum skiln-
ingi; þær séu forsenda hreyfinga, upp-
byggingar og flutninga í landfræðilegu
tilliti og hafa í tæknilegu tilliti haft gríð-
arleg áhrif á öran hagvöxt á Indlandi
undanfarna áratugi.
Indian Highway er einskonar farand-
sýning sem sett hefur verið upp víða um
heim, eins og Hafþór Yngvason, sýning-
arstjóri hennar hér lýsir henni, en hún er
þó sniðin eftir því sem hvert land kýs.
„Fyrsta Indian Highway-sýningin var
opnuð í Serpentine Gallery í London í
árslok 2008, en sýningin hér er töluvert
aðlöguð okkur. Í London var hún sett
upp allt öðruvísi, þar voru skúlptúrar og
önnur verk og miklu færri vídeóverk og
minna gert úr þeim, þau voru frekar eins
og hliðarsýning. Við gerum aftur á móti
mun meira úr þeim hluta, blásum hann
upp og þar verður mikið af verkum sem
ekki hafa verið sýnd á Indian Highway.“
Hafþór segir að verkin séu mjög for-
vitnileg og það sé mikið að gerast í ind-
verskri list. „Þetta er nýstárlegur heimur
fyrir okkur, það er verið að sýna okkur
indverskan samtíma og þó að hann sé
ekki svo ólíkur okkar samtíma að mörgu
leyti þá er önnur tilfinning í verkunum,
önnur fagurfræði. Í þeim er líka meiri
saga og meiri tilfinning fyrir tímanum.“
Meðfram sýningunni verða indverskar
Bollywood-myndir sýndar í Listasafninu
og einnig verður haldin málstofa undir
lok sýningarinnar þar sem fjallað verður
um indverska list og menningu.
Hraðbraut indverskrar skjálistar
Indlandsást Úr einu verkanna á Indian Highway, ást á Indlandi tjáð með forvitnilegum hætti.
Indversk farand-
sýning í Listasafni
Reykjavíkur
Svava Björnsdóttir og Inga Ragnarsdóttir opnuðu
sýningu í Listasafni ASÍ um helgina þar sem þær
sýna þrívíddarverk, unnin á þessu ári, undir yf-
irskriftinni „Tíminn fer ekki, hann kemur“, sem er
grænlenskt spakmæli. Þær lýsa sýningunni svo að
hún sé tilraun til að tengjast framrás tímans á
myndrænan hátt. „Efni, rými og hreyfing er sá
veruleiki sem við skynjum í dagsins önn. Það er
ögrandi viðfangsefni að gera grein fyrir því hvern-
ig tíminn tengist rýminu, hver birtingarform hans
geta verið.“
Svava nam við École Nationale Supérieure des
Beaux Arts í París og Inga í Myndlistar- og hand-
íðaskóla Íslands, en þær voru síðan báðar við
höggmyndanám í Listaakademíunni í München.
Þær hafa þó ekki síst saman fyrr en í sumar að
þær settu upp sýningu í Bryggjusal Edinborg-
arhússins á Ísafirði og síðan núna í Ásmundarsal
við Freyjugötu. Verk þeirra eru skyld þó efnivið-
urinn sé ólíkur, myndmálið af sama bergi brotið
en þær nýta sér rými, form, efni og liti hvor á sinn
persónulega hátt.
Verk Svövu er að finna á öllum helstu listasöfn-
um landsins og hún á einnig verk í söfnum í
Þýskalandi. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga á Íslandi og erlendis og haldið yfir tuttugu
einkasýningar. Inga hefur starfað jafnt í Þýska-
landi og á Íslandi og sýnt víða. Verk hennar er að
finna meðal annars í Listasafni íslands, Listasafni
Reykjavíkur og í bæverska Ríkislistasafninu.
Listamannaspjall á sýningunni verður næst-
komandi sunnudag kl.14:00.
Tíminn fer ekki, hann kemur
Morgunblaðið/Kristinn
Samsýning Svava Björnsdóttir og Inga Ragn-
arsdóttir innan um verk sín í Listasafni ASÍ.
Svava Björnsdóttir og
Inga Ragnarsdóttir sýna
í Listasafni ASÍ
Þær verða allar tekn-
ar úti á Reykjanes-
inu, ef það verður ekki búið
að eyðileggja það með ál-
framkvæmdum 32
»
Franski rithöf-
undurinn Michel
Houellebecq,
sem þekktastur
er fyrir bókina
Öreindirnar, hef-
ur löngum verið
umdeildur í
heimalandi sínu.
Nýútkomin bók
hans, La carte et
le territoire,
Kortið og landsvæðið, var þó al-
mennt viðurkennd sem besta bók
hans hingað til, þar til fregnir birt-
ust af því að hann hefði hugs-
anlega stolið hlutum hennar af net-
inu.
Í bókinni, sem gerir miskunn-
arlaust grín að listaheimi Parísar,
notar Houellebecq texta af
franskri útgáfu alfræðiritsins Wiki-
pedia, eða því er að minnsta kosti
haldið fram í vefritinu slate.fr.
Houellebecq hefur svarað ásök-
unum fullum hálsi og segir að þeir
sem saki hann um ritstuld hafi
enga hugmynd um það hvað bók-
menntir séu yfirleitt.
Deilur um
Houellebecq
að vanda
Michel
Houellebecq
Ungir listamenn
Verkin á Indian Highway eru eftir listamennina Ayisha
Abraham, Ravi Agarwal , Shilpa Gupta, Subodh Gupta,
Abhishek Hazra, Amar Kanwar, Raqs Media Collective, Te-
jal Shah, Kiran Subbaiah, Ashok Sukumaran, Nikhil
Chopra, Baptist Coelho, Sunil Gupta, Tushar Joag, Sonia
Khurana, Nalini Malani, Kiran Subbaiah, Vivan Sundaram,
Debkamal Ganguly, Ruchir Joshi, Kavita Pai / Hansa
Thapliyal, MR Rajan Raghavan, Priya Sen, Raqs Media
Collective, Surabhi Sharma (með Siddharth Gautam
Singh) og Vipin Vijay.
SKJÁLIST