Morgunblaðið - 08.09.2010, Qupperneq 29
Menning 29FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Reykjavík Dance Festivalhélt áfram um helgina ogvoru fjórar sýningar íNorðurpólnum. Dans-
félagið Krummi sýndi verkið Þá skal
ég muna þér kinnhestinn. Verkið var
þétt og bjó mikill kraftur í döns-
urunum, sem skilaði sér til áhorf-
enda. Sterkar myndir sem sitja eftir
má nefna handadans í upphafi
verksins. Einnig má minnast á sóló
Sögu Sigurðardóttur, þar sem hún
sem Egill reynir að yrkja kvæði.
Búningar verksins samanstóðu af
hversdagslegum klæðnaði en greini-
legt var að þeir áttu að vera í sam-
ræmi við karakter hverrar og einn-
ar. Þó hefði mátt vinna þá lengra,
svo að þeir spiluðu meira með heild-
armynd verksins. Margar myndir og
sögur voru settar fram í verkinu.
Velta má því fyrir sér hvort nauð-
synlegt hafi verið að halda inni svo
miklu efni – hvort jafnvel hefði átt að
velja færri senur og vinna þær og
þróa frekar, til að skapa dýpra verk
og skýra tilgang þess frekar.
Ólöf Ingólfsdóttir flutti verkið
Eins og vatnið. Verkið er í eðli sínu
einfalt, en greinilegt er að hún hefur
lagst í mikla rannsóknarvinnu á
hreyfiforminu og mismunandi eðli
vatns í tengslum við hreyfingar sín-
ar. Þó má setja spurningarmerki við
ákvörðun hennar að blanda saman
klassískum balletthreyfingum, því í
raun var ekki þörf á þeim. Í samspili
við tónlistina birtust ljóslifandi fyrir
undirritaðri regndropar, á, ís og
fleiri hughrif sem Ólöf kallaði fram.
Einnig var heillandi að horfa á
manneskju reyna að líkjast vatni.
Samsetning verksins var vel unnin
og hélt áhorfandanum mestallan
tímann, en var þó í lengra lagi. Verk-
ið var þó mjög hugrakkt og einlægt í
einfaldleika sínum og einkennandi
stíl Ólafar.
Á laugardagskvöld flutti Saga
Sigurðardóttir verkið A provocation
of pure and simple eftir danshöfund-
inn Anat Eisenberg. Rými þess var-
áhugavert, grænn skjár og ljós, sem
setti áhorfandann inn í rými ein-
hvers konar myndvers.
Verkið byggðist upp af mismun-
andi senum sem höfðu vísanir í kvik-
myndir. Verkið var vel flutt af Sögu
og hefur hún sterka nærveru á sviði.
Verkið skapaði ákveðna stemmn-
ingu sem áhugavert var að falla inn í,
en velta má upp hvort að verkið hafi
þurft aðeins meira til að dýpka það
frekar í tilraun sinni til að skapa
hughrif. Verkið er áhugaverð tilraun
samt sem áður og ólíkt því sem sést
hér í íslensku danslistalífi.
Falling in Love with Nina var
dansað af Katrínu Johnson og samið
af Steinunni Ketilsdóttur. Steinunn
hefur samið áhugaverð verk bæði í
samvinnu og ein. Því var spennandi
að sjá hvernig Steinunn myndi vinna
með öðrum dansara til að túlka efni
hennar. Verkið samanstóð af texta-
brotum og dansi sem hvort fékk að
lifa aðskilið.
Katrín er mjög sterkur og tækni-
lega fær dansari, en hún virðist ekki
hafa verið nýtt til fullnustu í þágu
verksins. Textar Steinunnar voru
fallegir, en af einhverjum ástæðum
virkuðu þeir ekki í flutningi Katr-
ínar. Í raun má segja að þróa hefði
þurft textana og danssmíðina dýpra
til að veita nýja innsýn inn í hið
þekkta viðfangsefni – brotið hjarta.
Miðað við fjölda verka og góða að-
sókn er greinilega þörf á hátíð líkt
og þessari og vonandi heldur
Reykjavík Dance Festival áfram að
vaxa og dafna á komandi árum.
… og dansinn dunaði áfram á
Reykjavík Dance Festival …
Kraftur Verkið var þétt og bjó mikill kraftur í dönsurunum, segir um Þá skal ég muna þér kinnhestinn.
Norðurpóllinn
Þá skal ég muna þér kinnhestinn,
Eins og vatnið, A provocation of pure
and simple, Falling in love with Nina
bbmnn
Þá skal ég muna þér kinnhestinn.
Danshöfundar og dansarar: Katrín
Gunnarsdóttir, Saga Sigurðardóttir,
Sigríður Soffía Níelsdóttir, Snædís Lilja
Ingadóttir. Sýnt 2. og 3. sept. 2010.
Eins og vatnið. Höfundur og flytjandi:
Ólöf Ingólfsdóttir. Sýnt, 2. og 3. sept.
2010.
A provocation of pure and simple.
Leikstjórn: Anat Eisenberg í samvinnu
við Sögu Sigurðardóttur. Flytjendur:
Saga Sigurðardóttir og Dani Brown.
Dramatúrgía: Dani Brown. Sýnt 4. og 5.
sept. 2010.
Falling in Love with Nina. Danshöf-
undur: Steinunn Ketilsdóttir í samvinnu
við Katrínu Johnson. Flytjandi: Katrín
Johnson. Texti: Steinunn Ketilsdóttir.
Sýnt 4. og 5. sept. 2010.
ÁSGERÐUR GUÐRÚN
GUNNARSDÓTTIR
DANS
Morgunblaðið/Eggert
»Katrín er mjögsterkur og tæknilega
fær dansari, en hún
virðist ekki hafa verið
nýtt til fullnustu í þágu
verksins.
Morgunblaðið/Golli
Ögrun Úr verkinu A provocation of pure and simple. Skapaði ákveðna stemningu sem áhugavert var að falla inn í.
Samkvæmisljónið Paris Hilton fékk skjótari af-
greiðslu en gengur og gerist í fangelsi í Las Vegas
eftir að hún var handtekin fyrir að vera með kók-
aín í fórum sínum. Koma átti Hilton sem skjótast í
og úr fangelsinu, að því er fulltrúi þess greinir frá.
Hilton var í þrjár klukkustundir í fangelsinu Clark
County Detention Center, sem er 5-21 klst. minna
en það sem gengur og gerist þegar refsað er fyrir
slík brot. Yfirmaður í lögreglunni í Las Vegas við-
urkennir að Hilton hafi fengið skjóta afgreiðslu til
að minnka líkurnar á því að fólk færi að fangelsinu
í von um að sjá hana.
Fékk flýtimeðferð
Stutt Hilton var ekki
lengi í fangelsi.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Gauragangur (Stóra svið)
Fös 10/9 kl. 20:00 3.k Fös 17/9 kl. 20:00 5.k Sun 26/9 kl. 20:00
Lau 11/9 kl. 20:00 4.k Lau 18/9 kl. 20:00 6.K Lau 2/10 kl. 20:00
Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fim 9/9 kl. 20:00 1.k Fim 16/9 kl. 20:00 3.k Fös 24/9 kl. 20:00 5.k
Sun 12/9 kl. 20:00 2.k Sun 19/9 kl. 20:00 4.k Lau 25/9 kl. 20:00 6.k
Einnig sýnt á Akureyri í nóvember
Enron (Stóra svið)
Mið 22/9 kl. 20:00 Fors Lau 25/9 kl. 20:00 3.k Lau 9/10 kl. 20:00 6.K
Fim 23/9 kl. 20:00 Frums Fim 30/9 kl. 20:00 4.k Fös 15/10 kl. 20:00 7.K
Fös 24/9 kl. 20:00 2.k Fös 1/10 kl. 20:00 5.k
Stórsýning um brjálæðislegt dramb og fall
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Fös 8/10 kl. 20:00 Fors Þri 19/10 kl. 20:00 aukas Lau 30/10 kl. 19:00 9.k
Lau 9/10 kl. 20:00 Frums Mið 20/10 kl. 20:00 5.k Lau 30/10 kl. 22:00 aukas
Þri 12/10 kl. 20:00 aukas Lau 23/10 kl. 19:00 6.k Sun 31/10 kl. 20:00 10.k
Fös 15/10 kl. 20:00 2.k Lau 23/10 kl. 22:00 aukas Mið 3/11 kl. 20:00 11.k
Lau 16/10 kl. 19:00 3.k Sun 24/10 kl. 20:00 7.k Lau 6/11 kl. 19:00 12.k
Lau 16/10 kl. 22:00 aukas Þri 26/10 kl. 20:00 aukas Sun 7/11 kl. 20:00 13.k
Sun 17/10 kl. 20:00 4.k Fim 28/10 kl. 20:00 8.k
Leikgerð verðlaunasögu Auðar Jónsdóttur
Horn á höfði (Litla svið)
Lau 18/9 kl. 14:00 1.k Lau 25/9 kl. 14:00 3.k
Sun 19/9 kl. 14:00 2.k Sun 26/9 kl. 14:00 4.k
Gríman: Barnasýning ársins 2010!
Orð skulu standa (Litla svið)
Þri 21/9 kl. 20:00 Þri 5/10 kl. 20:00
Þri 28/9 kl. 20:00 Þri 12/10 kl. 20:00
Vinsæll útvarpsþáttur - nú á sviði. Sala hafin
Villidýr / Pólitík eftir Ricky Gervais (Litla svið)
Fös 17/9 kl. 20:00 1.k Fim 23/9 kl. 20:00 3.k
Lau 18/9 kl. 20:00 2.k Sun 26/9 kl. 20:00 4.k
Gróft gaman flutt af mikilli snilld, PBB Fbl
Harry og Heimir - sýningar hefjast á morgun
Sala áskriftarkorta
í fullumgangi!
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Gerpla (Stóra sviðið)
Fim 21/10 kl. 20:00 Fös 29/10 kl. 20:00
Fös 22/10 kl. 20:00 Fim 4/11 kl. 20:00
Miðasala hafin á fyrstu sýningar haustsins!
Fíasól (Kúlan)
Lau 11/9 kl. 13:00 Lau 18/9 kl. 15:00 Sun 26/9 kl. 13:00
Lau 11/9 kl. 15:00 Sun 19/9 kl. 13:00 Lau 2/10 kl. 13:00
Sun 12/9 kl. 13:00 Sun 19/9 kl. 15:00 Lau 2/10 kl. 15:00
Sun 12/9 kl. 15:00 Lau 25/9 kl. 13:00 Sun 3/10 kl. 13:00
Lau 18/9 kl. 13:00 Lau 25/9 kl. 15:00 Sun 3/10 kl. 15:00
50 sýningar fyrir fullu húsi á síðasta leikári!
Hænuungarnir (Kassinn)
Fös 10/9 kl. 20:00 Lau 18/9 kl. 20:00 Sun 26/9 kl. 20:00
Lau 11/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Fim 30/9 kl. 20:00
Sun 12/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00 Fös 1/10 kl. 20:00
Fim 16/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00 Lau 2/10 kl. 20:00
Fös 17/9 kl. 20:00 Lau 25/9 kl. 20:00
5 stjörnur Fbl. 5 stjörnur Mbl.
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Fim 9/9 kl. 19:00 Mið 22/9 kl. 19:00 Sun 3/10 kl. 15:00
Fös 10/9 kl. 19:00 Fös 24/9 kl. 19:00 Fös 8/10 kl. 19:00
Fös 17/9 kl. 19:00 Lau 25/9 kl. 19:00 Lau 9/10 kl. 19:00
Lau 18/9 kl. 19:00 Fös 1/10 kl. 19:00 Sun 17/10 kl. 19:00
Sun 19/9 kl. 19:00 Lau 2/10 kl. 19:00 Sun 24/10 kl. 19:00
Leikhúsveisla sem allir verða að upplifa! Sýningarnar hefjast kl. 19:00
Hamskiptin (Stóra sviðið)
Lau 11/9 kl. 20:00 Fim 16/9 kl. 20:00
Sun 12/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 Síðasta
sýn.
Rómuð sýning Vesturports í Þjóðleikhúsinu. Aðeins þessar sýningar.
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Fös 15/10 kl. 20:00
Frumsýn.
Lau 30/10 kl. 20:00 4. sýn. Lau 6/11 kl. 20:00 7. sýn.
Lau 16/10 kl. 20:00 2. sýn. Sun 31/10 kl. 20:00 5. sýn. Fim 11/11 kl. 20:00 8. sýn.
Lau 23/10 kl. 20:00 3. sýn. Fös 5/11 kl. 20:00 6. sýn.
Bráðfyndið og snargeggjað verk! Tryggið ykkur miða