Morgunblaðið - 08.09.2010, Síða 30
30 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Ólgandi uppistand fer fram á
Næsta Bar á morgun. Fram koma
Þórdís Nadía Semichat, Gunnar
Jónsson og Pálmi Freyr Hauksson.
Þórdísi þekkja flestir sem einn höf-
uðpaura Uppistöðufélagsins en fé-
lagið hefur staðið fyrir vel heppn-
uðum uppistandskvöldum á Næsta
Bar.
Uppistand á Næsta bar
á morgun
Fólk
Á mánudagskvöldum í september mun hinn rót-
tæki upplýsingavefur Gagnauga.is standa fyrir
sýningum á heimildarmyndum á Prikinu, sem
staðsett er í Bankastræti 12 í Reykjavík.
Myndirnar, sem hefjast kl. 22, munu sam-
kvæmt tilkynningu afhjúpa raunveruleika sem
þaggaður hefur verið niður af viðskiptaöflum og
innihalda upplýsingar sem stórmiðlar hafa
keppst við að gera tortryggilega í áratugi.
Fyrsta sýningin er næstkomandi mánudag,
hinn 6. september, en þá verður hið margumtal-
aða morð á fyrrverandi forseta Bandaríkjanna,
John F. Kennedy, tekið fyrir. Það hafa eflaust
flestir heyrt eitthvað um JFK-samsærið, en fáir
sem hafa kafað djúpt í málið. Hversu margir vita
til dæmis um eitthvað þau sönnunargögn sem
kenningarnar byggjast á? Heimildarmyndin JFK
Case for Conspiracy getur hjálpað áhugasömum
að fræðast um þetta dularfulla mál, en hún verð-
ur sú fyrsta í heimildarseríunni á Prikinu.
Síðar í septembermánuði verða svo önnur um-
deild mál tekin fyrir, til að mynda 11. september,
New World Order (Nýja heimsveldið) og stjórn-
un mannlegs samfélags. Þetta verður nokkurs-
konar samansafn af því allra besta úr samsær-
isgeiranum.
Gagnaugað.is býður alla velkomna á Prikið
svo endilega kíkið inn, fáið ykkur popp og
kannski bjór og skeggræðið málin við gott fólk í
kjölfarið. Að loknu kvöldi er næstum fullvíst að
þú verður ekki kjaftstopp í næstu samsæris-
umræðu vinahópsins. hugrun@mbl.is
Mánudagar eru samsærisdagar á Prikinu
Kennedy Myrti Lee Harvey Oswald forsetann?
Afþreyingafyrirtækið Sena hefur
víkkað út starfsemi sína og tekið
við sem dreifingaraðili á sviði leik-
fanga fyrir mörg af stærstu merkj-
um heims s.s Playmobile, Mattel,
Tomy svo að fátt eitt sé nefnt.
„Með kaupunum er Sena að
renna styrkari stoðum undir rekst-
ur heildsölu sinnar og fylgja eftir
þeirri stefnu að starfa á sviði af-
þreyingar og skemmtunar,“ segir
m.a. í fréttatilkynningu frá fyr-
irtækinu.
Sena dembir sér
í leikfangabransann!
Útgáfufélagið Kimi Records
verður þriggja ára þann 11. sept-
ember næstkomandi og mun fagna
því í Havarí á laugardaginn .Hljóm-
sveitirnar Reykjavík!, Morðingj-
arnir og Nolo munu leika þar fyrir
gesti og að sjálfsögðu verða í boði
afmælisveitingar og hægt verður
að gera góð kaup í búðinni.
Kimi Records fagnar
3ja ára afmæli
Rappsveitin Original Melody
mun snúa aftur í október með nýja
plötu, Back & Fourth. Sveitin gaf
síðast út plötu fyrir fjórum árum,
sem var hennar fyrsta. Kallast hún
Fantastic Four og fékk fljótlega
viðurnefnið „lengsta hip-hop plata
Íslands“ en á henni eru 26 lög sem
slaga upp í á annan klukkutíma að
lengd. Gaman að því!
Original Melody
snýr aftur með plötu
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ferilskrá fjöllistamannsins Wolf-
gangs Müller er svo löng og fjöl-
breytt að það myndi æra óstöðugan
að fara út í öll þau listaverk og list-
verkefni sem hann hefur komið að
frá því hann útskrifaðist sem graf-
ískur hönnuður við Listaháskólann í
Berlín árið 1985. „Algjörlega, fólk
verður alltaf svo reitt, veit ekki hvað
á að kalla mig eða hvað ég er að
gera,“ segir Müller og hlær þegar
blaðamaður ber þetta undir hann.
„En ég er mjög eðlilegur, á ákveðinn
hátt,“ segir hann og hlær. Müller fer
með hlutverk í væntanlegri kvik-
mynd Gríms Hákonarsonar, Sum-
arlandið, leikur þar Þjóðverja sem
hefur áhuga á að kaupa álfastein
mikinn. Müller er mikill áhugamaður
um íslenska menningu og þjóðsögur,
einkum af álfum, og hefur unnið með
íslenskum myndlistarmönnum.
Müller hélt m.a. sýningu undir nafn-
inu Úlfur Hróðólfsson, parus caeru-
leus, árið 1995 í Kraká, Hamborg,
Kassel og Reykjavík. En hvernig
kviknaði áhugi Müllers fyrir Íslandi?
Langaði að sjá Surtsey
„Þegar ég var drengur, á sjöunda
áratugnum, var til bók heima, Alle
Wunder dieser Welt, og á kápunni
var ljósmynd af Surtsey. Ég var af-
skaplega hrifinn af henni og vildi sjá
Surtsey,“ segir Müller og hlær.
Hann hefur þó ekki enn séð Surtsey
en segist hins vegar hafa séð mörg
náttúruundrin á Íslandi.
– Grímur sagði mér að þú lékir í
raun sjálfan þig í Sumarlandinu?
„Tja, í raun ekki, ég vona að ég sé
ekki vitleysingur frá Hannover,“
segir Müller hlæjandi en segir Grím
líklega vera að vísa til listsköpunar
sinnar og áhuga á álfasteinum og álf-
um. Hann hafi m.a. farið til Borga-
fjarðar eystri því hann hafi frétt af
því að bestu álfasteinana væri þar að
finna. Þar hafi stórir steinar verið
skreyttir fyrir hann í listrænum til-
gangi af fyrirtækinu Álfasteini, þó
ekki eiginlegir álfasteinar. Hann hafi
hins vegar kallað steinana álfasteina.
„Fólk áttar sig aldrei almennilega á
því hvað ég er að gera,“ segir
hann og hlær enn.
– Segðu mér aðeins frá
persónu þinni í Sum-
arlandinu.
„Ég leik Þjóðverja sem
fer til Íslands í þeim til-
gangi að kaupa risastóran
stein í listaverkasafn sitt í
Hannover. Hann er heltek-
inn af þessu af því að hann
heldur að það séu álfar og
yfirnáttúrulegar
verur í steininum.
Kannski á hann
mjög leiðinlegt
listaverkasafn
í Þýskalandi, list án sálar,“ segir
Müller um hlutverk sitt í myndinni..
Huldumaður faðirinn
– Þú semur erótískar álfasögur?
„Já, klámfengnar sögur fyrir út-
gáfufyrirtæki í Þýskalandi. Ég reyni
að tengja erótíska hluti við álfa,
suma hefur dreymt um álfa en
draumarnir hafa ekki ræst. Álfurinn
er líka tákn fyrir eitthvað ósýnilegt,
eitthvað falið. Ef kona eignast barn
og faðernið er óljóst segir fólk að
barnið hafi verið getið með huldu-
manni.“
– Sækirðu innblástur í íslenskar
sögur af huldufólki?
„Já, og ég á líka safn íslenskra
bóka á þýsku, sú elsta er frá 1613,
ferðabók,“ svarar Müller. Í einni af
sögum Müllers segir af ungum tón-
listarmanni, rokkstjörnu frá Ísafirði,
sem fer til Landmannalauga í leit að
innblæstri. Þar hittir hann fyrir kyn-
óðan, lítinn álf, fossbúa, sem flytur
honum fagra tóna en vill að rokk-
stjarnan borgi honum í blíðu fyrir
tónlistarflutninginn. Álfasögur Müll-
ers hafa ekki verið þýddar á íslensku
en Müller myndi gjarna vilja að smá-
sögur hans yrðu gefnar út á landinu
sem honum þykir svo vænt u, Ís-
landi. Er ekki annað að heyra á hon-
um en hann sé að auglýsa eftir þýð-
anda og útgefanda íslenskum.
Kynóður tónlistarálfur
í Landmannalaugum
Listamaðurinn Wolfgang Müller leikur í Sumarlandinu Hefur lengi verið
áhugamaður um álfa og m.a. skrifað kynlífssögur um þær huldu verur
Þjóðverjinn Müller í kvikmyndinni Sumarlandið sem verður frumsýnd hér á landi 17. september nk.
Wolfgang Müller hefur margan
sérkennilegan gjörninginn framið.
Árið 1998 var skrifstofu Goethe-
stofnunarinnar lokað á Íslandi og í
ágúst það ár opnaði Müller, ásamt
Ástu Ólafsdóttur, fyrstu einka-
Goethe-stofnunina í heiminum, í
Nýlistasafninu.
Goethe-stofnunin, þ.e. hin
raunverulega, fagnaði
þessum gjörningi, eða
öllu heldur talsmaður
hennar, Stephan Wack-
witz, að því er fram kem-
ur á vefsíðu Müllers,
wolfgangmueller.net. Í
mars árið 2001 kvað við
annan tón en þá krafðist
dr. Hermann Falk,
starfsmaður í lög-
fræðideild
stofn-
un-
arinn-
ar, skaðabóta og hótaði að beita
Müller sektum, héldi hann áfram
að reka einka-Goethe-stofnun
sína. Müller vildi hlífa stofnuninni
við lögfræðikostnaði og breytti
nafni stofnunar sinnar í Walther
von Goethe Foundation Reykjavík,
í höfuðið á barnabarni skáldsins.
Fyrsta útibú hinnar nýju stofnunar
var opnað í 11. maí 2001 á hár-
greiðslustofunni Beige í August-
strasse í Berlín og hélt þar sendi-
herra Íslands í Þýskalandi,
Ingimundur Sigfússon, ræðu. Má
því segja að málið hafi endað far-
sællega. Müller hefur komið víða
við á listamannsferli sínum, stofn-
aði m.a. neðanjarðarhljómsveitina
Die Tödliche Doris árið 1980. Hann
hefur leikið í fleiri kvikmyndum en
Sumarlandinu, lék í þýsku splat-
termyndinni Necromantic 2 en í
henni fræðir hann fólk um geir-
fuglinn, fuglinn útdauða.
Goethe-stofnun Müllers olli
fjaðrafoki hjá Goethe-stofnun
UMDEILDUR GJÖRNINGUR
Johann Wolfgang
von Goethe