Morgunblaðið - 08.09.2010, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HHHH 1/ 2/HHHHH
DV.IS
HHHHH/ HHHHH
S.V-MBL
7
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
ROMAN POLANSKI HLAUT SILFURBJÖRNINN
SEM BESTI LEIKSTJÓRINN Á KVIKMYNDA-
HÁTÍÐINNI Í BERLÍN
HHHH
„HINN SÍUNGI POLANSKI SÝNIR Á SÉR ÓVÆNTA
HLIÐ Í HÖRKUGÓÐRI SPENNUMYND, STÚTFULL-
RI AF PÓLITÍSKUM LAUNRÁÐUM OG BULLANDI
OFSÓKNARÆÐI.“
SÆBJÖRN VALDIMARSSON, MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
“LEIKSTJÓRN POLANSKIS GRÍPUR ÁHORFAN-
DANN ÁSAMT ATHYGLISVERÐUM SÖGUÞRÆÐI.
THE GHOST WRITER ER AÐ MÍNU MATI EIN
BESTA MYND ÁRSINS HINGAÐ TIL.”
T.V. – KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„ÞESSI KVIKMYND ER AFREK
MANNS SEM KANN AÐ LEIK-
STÝRA SPENNUMYND.“
CHICAGO SUN-TIMES – R.EBERT
„GHOST WRITER ER ÓAÐFINNANLEG
AFÞREYING FYRIR FULLORÐIÐ FÓLK.“
LOS ANGELES TIMES – KENNETH TURAN
BESTA SKEMMTUNIN
AULINN ÉG - 3D m. ísl. tali kl.5:503D L INCEPTION kl.8 -10:40 12
AULINN ÉG m. ísl. tali kl.5:50 L STEP UP 3 - 3D kl.83D -10:103D 7
DISPICABLE ME - 3D m. ensku tali kl.83D L HUNDAR OG KETTIR 2 - 3D m. ísl. tali kl.63D L
THE GHOST WRITER kl.5:30-8-10:20 12 LETTERS TO JULIET kl.8 -10:20 L
THE GHOST WRITER kl.10:20 VIP-LÚXUS THE SORCERERS APPRENTICE kl.10:40 7
INCEPTION kl.7:20 VIP-LÚXUS SHREK: SÆLL ALLA DAGA m. ísl. tali kl.5 sýnd fimmtudag L
/ ÁLFABAKKA / K
THE GHOST WRITER kl.8 -10:40 12
STEP UP 3 - 3D kl.5:403D -83D -10:203D 7
HUNDAR OG KETTIR 2 - 3D m. ísl. tali kl.63D L
INCEPTION kl. 8 12
BESTA DANSMYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ
SÍÐAN DIRTY DANCING VAR OG HÉT...
Ef þú fílar So You Think You
Can Dance þá áttu eftir að
ELSKA STEP UP
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Íslenska stuttmyndin Líf og dauði
Henry Darger hefur verið valin í
keppni á kvikmyndahátíð í Fen-
eyjum og verður hún frumsýnd þar
í dag. Leikstjórinn Katrín Ólafs-
dóttir framleiddi myndina hér á
landi á síðasta ári og fóru tökur
fram í Krísuvík.
Íslenskt teymi ásamt Frakka
„Myndin er á íslensku og fjallar
um gamlan mann sem er að ganga
eftir ísilagðri
auðn og veltir
fyrir sér hvað
hann eigi langt
eftir ólifað. Hann
fer til blárrar
konu sem segir
að hann eigi tvo
tíma,“ segir
Katrín í stuttu
máli um mynd-
ina.
Þrátt fyrir að vera vön leik-
stjórastólnum ákvað hún að bregða
í hlutverk framleiðandans að þessu
sinni og fékk hinn franska Bertr-
and Mandico til að leikstýra mynd-
inni. Að honum undanskildum er
teymi Katrínar alíslenskt.
Með aðalhlutverk fara þau Karl
Guðmundsson og Harpa Arnar-
dóttir og sögumaður er Tómas
Lemarquis.
„Karl og Harpa eru fallegasta
par sem ég hef séð,“ segir Katrín
ánægð með samstarfsmenn sína.
Tónlist myndarinnar er eftir
Magnús Blöndal í útsetningu Ás-
gerðar Júníusdóttur og Ghostdigi-
tal.
Tuttugu stuttmyndir teknar
á Reykjanesi - vonandi
Líf og dauði Henry Darger verð-
ur sýnd á RIFF, Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Reykjavík sem
hefst hinn 23. september næstkom-
andi, og stendur til 3. október.
„ Í kjölfarið á RIFF ætlum við að
gera aðra stuttmynd, en það er
planið hjá okkur að gera eina stutt-
mynd á ári í tuttugu ár,“ segir
Katrín og bætir við: „Ef við verðum
hér öll enn. Þær verða allar teknar
úti á Reykjanesinu, ef það verður
ekki búið að eyðileggja það með ál-
framkvæmdum,“ segir hún kímin.
Aðalleikari myndanna tuttugu
verður rúmenska leikkonan Elina
Löwensohn sem er meðal annars
þekkt fyrir samstarf sitt með Hal
Hartley.
„Bertrand mun halda áfram að
vera leikstjóri og auk Elinu verða
alltaf Íslendingar með, bæði lista-
fólk og annað fólk.“
Safnar fyrir ferðinni
til Feneyja
Katrín segir það auðvitað mikið
gleðiefni að myndin hafi komist til
Feneyja, en því miður líti allt út
fyrir að hún geti ekki fylgt henni
út. „Ég er búin að leita og leita að
peningum til þess að komast út en
það var enginn til í að styrkja okk-
ur. Mér þykir það mjög leiðinlegt
að það komist enginn út til að
fylgja henni eftir,“ segir Katrín að
lokum.
Er vinir Katrínar fréttu af vand-
ræðunum voru þeir ekki lengi að
stofna styrktarreikning fyrir henn-
ar hönd og standa nú vonir til að
hún komist út.
Þeir sem vilja leggja Katrínu og
myndinni lið geta lagt inn á reikn-
ing 1175-05-763142, kennitala
620210-1100, merkt Feneyjar.
Íslensk stuttmynd til Feneyja
Verður einnig sýnd á RIFF Áætla
að gera 20 myndir á næstu 20 árum
Íslensk Í myndinni Líf og dauði Henry Darger hittir gamall maður bláa
konu sem segir hann eiga skammt eftir ólifað.
Katrín Ólafsdóttir
Vefur breska götublaðsins
Daily Mail heldur því fram
að Vilhjálmur Bretaprins
muni ganga að eiga unnustu
sína Kate Middleton í ágúst á
næsta ári. Tímasetningin er
býsna nákvæm í fréttinni,
þ.e. önnur vika ágústmán-
aðar og því haldið fram að
athöfnin muni fara fram í
Westminster Abbey.
Þá eru einnig taldar
nokkrar líkur á því að brúð-
kaupið verði haldið 31.
ágúst, en þá verða liðin 14 ár
frá því að móðir Vilhjálms,
Díana prinsessa, lést í hörmu-
legu bílslysi í París.
Vilhjálmur hefur látið þau um-
mæli falla að hann muni ekki
kvænast fyrr en hann sé orðinn 28
ára eða jafnvel þrítugur. Vil-
hjálmur verður 28 ára á næsta ári,
hinn 21. júní. Vilhjálmur og Kate
hafa verið saman í sjö ár og hefur
mikið verið spáð í það í bresku
pressunni hvenær þau muni ganga
í það heilaga.
Konunglegt brúðkaup á
dánarafmæli Díönu?
Par Vilhjálmur og Kate hafa verið saman í
sjö ár og spurning hvenær þau gifta sig.
Reuters
Íslenska nýsveita-
rokksbandið (púff …)
Hudson Wayne á að
baki merkilega traust-
ar skífur; þetta þung-
lyndislega jaðarkántrí með dassi af
gotneskum keivisma (Nick Cave
þ.e.) leikur í höndunum á leiðtoga
sveitarinnar og hugmyndasmiði,
Þráni Óskarssyni. Þessi nýjasta
plata kemur út fimm árum eftir síð-
ustu breiðskífu The Battle Of The
Bandidos og reikar örugg um sömu
sléttur og áður. Dimmur baritón
Þráins vomir yfir lögunum, platan
opnar með hægstreymri ballöðu,
„Head to Heels“ en svo er skipt um
gír í „Cave-In“ og meiri nýbylgja
leikur um þá smíð. „Awfully Nice“ er
svo í sígildum búning; hefðbundið
kántrí í anda Gram Parsons, Kris
Kristoffersson o.fl. Þannig rúllar
þessi sjö laga plata áfram, lögin bera
með sér tilbrigði við stef og spila-
mennskan er snyrtilega skreytt með
píanói, strengjum, harmonikku og
áhrifshljóðum þegar á við. Þráni er
lagið að byggja upp dramatískar
stemmur, sjá t.d. „Powerdrill“ sem
einkennist af hægstígandi og einkar
áhrifaríku viðlagi. Hið Will Oldham-
lega „Magistrate“ er sömuleiðis
glæsilegt og í raun lítið út á þessi lög
öll að setja. Hljómur er góður og út-
setningar allar til fyrirmyndar og
það er vonandi að Þráinn haldi
áfram að veita þessari náðargáfu
sinni út til okkar, hinna dauðlegu,
annað væri synd.
Skotheld plata frá þeirri sveit ís-
lenskri sem best hefur tekist að til-
einka sér hið svokallaða jaðarkántrí,
og er hún fyllilega sambærileg við
allt það besta sem er að gerast í
þeim geiranum annars staðar.
Íslenskt
Ameríkana
Hudson Wayne –
How Quick Is Your Fish?
bbbbn
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hugmyndir Þráinn Óskarsson.
Söngvarinn Wyclef Jean fór ekki
fögrum orðum um leikarann Sean
Penn á tónleikum sínum um helg-
ina, en þar bendlaði hann leikarann
við eiturlyfjanotkun.
Jean og Penn hafa eldað grátt
silfur undanfarið, en
deilur þeirra hófust
er Penn sagði Jean
ekki vera efni í for-
seta Haítí þar sem
hann hefði ekki verið
sjáanlegur á hjálp-
arsvæðunum þar í
landi. Í kjölfarið á
þessum illyrðum söng
Jean skilaboð til leik-
arans við lagið „Presi-
dent“ á fyrrnefndum
tónleikum.
„Ég er með skila-
boð til Seans Penns.
Kannski sá hann mig
ekki á Haítí þar sem hann var of
upptekinn við að sjúga kókaín upp í
nefið.“ Fyrir þetta uppskar Jean
mikil hlátrasköll tónleikagesta.
Penn hefur verið við hjálparstörf
á Haítí í nokkra mánuði og segir
umboðsmaður hans
ekkert hæft í stað-
hæfingum Jeans.
„Herra Jean kann-
ast greinilega ekki
við það líkamlega
álag sem er á hjálp-
arstarfsmönnum í
Haítí. Sem hjálp-
arstarfsmaður
þarftu að halda
ónæmiskerfinu
sterku og því er ekki
möguleiki fyrir
Penn að neyta ólög-
legra eiturlyfja,“
segir hann.
Syngur um Sean Penn að
taka kókaín í nefið á Haítí
Jean Söngvarinn er greini-
lega örlítið hefnigjarn.
Reuters