Morgunblaðið - 08.09.2010, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 251. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Tveir hálsbrotnuðu
2. Andlát: Þórunn Gestsdóttir
3. Ástkona Rooneys með þrennu?
4. Grátlegt tap gegn Dönum á Parken
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kría Brekkan heldur tónleika í Nor-
ræna húsinu mánudaginn 27. sept-
ember í tengslum við RIFF. Mun hún
leika tónlist undir The Fall of the
House of Usher (1928) eftir Jean Ep-
stein sem er byggð á sögu eftir Edgar
Allan Poe.
Morgunblaðið/Ernir
Kría Brekkan heldur
tónleika á RIFF
Tónlistarmaðurinn Björk Guð-
mundsdóttir ætlar að gefa ágóða af
sölu á „Halastjörnulaginu“ til hjálp-
arstarfs Unicef á flóðasvæðunum í
Pakistan. Lagið samdi Björk fyrir þrí-
víddarteiknimynd um Múmínálfana,
Moomins and the Comet Chase. Lag-
ið var gefið út í fyrra-
dag í stafrænu
formi.
Björk styrkir
hjálparstarf Unicef
Völuspá, sýning
Möguleikhússins í
samstarfi við
sænska leikhóp-
inn Martin Mutter,
fær lofsamlega
dóma í dag-
blaðinu Nerikes
Allehanda og seg-
ir gagnrýnandi
m.a. að hann hafi aldrei séð jafn nána
samvinnu leikara og tónlistarmanns
á sviði og í þeirri sýningu. Sýningin
var haldin 1. sept. sl. í Örebro.
Sýning Möguleik-
hússins fær lof
Á fimmtudag Austan 8-15 m/s, hvassast við S-ströndina og á annesjum norðantil, en
lægir sunnanlands síðdegis. Talsverð rigning SA-lands. Hiti 10 til 18 stig.
Á föstudag Fremur hæg suðaustlæg átt og rigning eða skúrir, en skýjað með köflum og
þurrt að mestu á Norðurlandi. Hiti 10 til 15 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning sunnan- og austanlands en annars skýjað með köflum og
þurrt að kalla. Hiti 10 til 15 stig, hlýjast á Norðurlandi í dag.
VEÐUR
21-árs landslið Íslands í
knattspyrnu komst í umspil
Evrópukeppninnar þrátt fyr-
ir 3:1-ósigur í gær gegn
Tékkum. Sigurliðin úr riðl-
unum fjórum komust í um-
spil ásamt fjórum bestu lið-
um í 2. sæti. Mesta hættan
var að Rússar og Slóvakar
kæmust upp fyrir Ísland í
lokaumferðinni. Ísland get-
ur þakkað Noregi og Rúm-
eníu fyrir hagstæð úrslit í
lokaumferðinni. »4
Ísland í umspil
þrátt fyrir tap
Enski landsliðsmaðurinn Wayne
Rooney skoraði eitt mark í 3:1-sigri
Englands gegn Sviss í Basel í gær.
Norðmenn eru með fullt hús stiga í
H-riðli eftir 1:0-sigur gegn Portúgal.
Ísland er neðst í riðl-
inum án
stiga. » 1
Rooney skoraði í Sviss –
Skotar í vandræðum
„Þetta var gífurlega svekkjandi því
ég var með það á tilfinningunni strax
í byrjun seinni hálfleiks að við mynd-
um ná stigi eða jafnvel þremur stig-
um úr þessum leik,“ sagði Sölvi Geir
Ottesen, fyrirliði íslenska landsliðs-
ins, við Morgunblaðið eftir tapið
gegn Dönum á Parken í gærkvöldi.
Danir skoruðu sigurmarkið á 90. mín-
útu. »2-3
„Þetta var gífurlega
svekkjandi“
ÍÞRÓTTIR
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Færeyingurinn Finn Jespersen hef-
ur alla tíð haft mikinn áhuga á öllu
sem viðkemur gömlum mót-
orhjólum. Þegar hann frétti af því að
vinur hans, Hjörtur Jónasson frá
Selfossi, hefði keyrt yfir Kjöl á
Matchless-mótorhjóli árgerð 1946
fyrir nokkrum árum ákvað Finn að
halda á vit ævintýranna á Íslandi á
einu þriggja fornhjóla sinna af Nim-
bus-gerð. Síðastliðna viku hefur
Finn því ferðast um landið á 65 ára
gömlu mótorhjóli, smíðuðu við lok
síðari heimsstyrjaldarinnar.
Finn á þrjú Nimbus-hjól en hin
hjólin tvö sem hann skildi eftir
heima í Færeyjum voru smíðuð árin
1936 og 1939 þannig að hjólið sem
hann ferðast á í sumar er unglambið
í safninu. Finn hefur í mörg ár starf-
að fyrir Samskip í Kollafirði í Fær-
eyjum þannig að það þarf ekki að
koma blaðamanni á óvart hversu
góða íslensku hann talar. „Ég hef
gaman af því að tala við áhafnirnar.
Íslenska og færeyska eru eiginlega
sama málið,“ segir hann á kjarnyrtri
íslensku.
Finn kom til landsins á þriðjudag
fyrir viku með Norrænu og keyrði
frá Seyðisfirði til Vopnafjarðar, kom
við í Reykjahlíð við Mývatn og heim-
sótti Húsavík og Akureyri. Þá var
hann í Reykjavík og á Selfossi fyrir
helgina auk þess að aka Kjölinn sem
var aðaltakmark ferðarinnar. Tók sú
ferð tíu tíma. Allt í allt segist hann
hafa farið um tvö þúsund kílómetra
á hjólinu góða.
Gömul hjól smíðuð til að endast
Er ekkert mál að ferðast slíkar
vegalengdir á hálfsjötugu mót-
orhjóli? „Nei, nei, það skiptir engu
máli,“ segir Finn glaður í bragði.
„Maður tekur því bara rólega og fer
ekki á meira en 60-70 kílómetra
hraða. Hjólið er í góðu lagi ennþá!“
Nimbus-hjólin þurfa ekki mikið
viðhald að sögn Finns. „Það þarf
bara að skipta um olíu við og við,“
segir hann. Hann hefur átt hjólið
sem hann ferðast á um landið í sex
ár og segir öll hjólin sín þrjú vera
eins og ný. „Öll gömul mótorhjól
voru vel byggð og til þess að endast.
Það er ekki eins og í dag þar sem ný
mótorhjól duga kannski í tíu ár og
ekki mikið meira en það,“ segir
Finn.
Á ferð sinni um landið fannst Finn
mest til sundlauganna koma. „Það er
ótrúlegt að sjá þrjátíu stiga heitt
vatn úti undir beru lofti. Svo þótti
mér merkilegt að sjá öskuna úr gos-
inu í vor á Akureyri. Í Færeyjum
sáum við líka ösku en ekki svona
mikla,“ segir Finn sem heldur heim
á leið í kvöld með Norrönu.
Ferðast á fornum fararskjóta
Færeyingur á
ferð um landið á
65 ára mótorhjóli
Nimbus Finn við hjólið góða sem smíðað var 1945. Þrátt fyrir að vera orðinn 65 ára gamall fór Nimbusinn létt með
að aka um 2.000 kílómetra hérlendis, þar með talið yfir Kjöl en sú ferð tók tíu klukkustundir.
Hvar voru Nimbus-mótorhjólin
framleidd?
Nimbus var dönsk gerð mótorhjóla
sem framleidd var í Kaupmanna-
höfn á árunum 1919 til 1960. Voru
þau framleidd af Fisker og Nielsen
en þeir framleiddu einnig Nilfisk-
ryksugurnar góðkunnu.
Hverjir voru það sem notuðu
hjólin aðallega?
Nimbus varð vinsælasta mótor-
hjólið í Danmörku á fjórða áratugn-
um og urðu danski pósturinn og
lögreglan að stórum viðskiptavin-
um. Í aðdraganda síðari heimsstyrj-
aldarinnar ákváðu dönsk stjórnvöld
að mótorhjólavæða herinn svo mik-
ið af framleiðslunni endaði þar.
Hversu mörg Nimbus-mótorhjól
eru ennþá gangfær í heiminum?
Af þeim 12.000 hjólum sem voru
framleidd er áætlað að yfir fjögur
þúsund séu skráð og gangfær í
Danmörku auk hundraða annarra,
aðallega í Þýskalandi og Bandaríkj-
unum. Í Danmörku eru starfrækt
samtök fyrir eigendur elstu gerða
hjólanna og eru í þeim yfir 2.000
félagar. Standa þau meðal annars
fyrir árlegri rallkeppni.
Spurt & svarað
VEÐUR » 8 www.mbl.is