Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 14
12 ArbókVFI 1990/91
dæmi segir endurskoðandinn. Skuldalisti lá frammi á aðalfundi en hann prýddu nöfn 9,6% fél-
agsmanna, aðrir höfðu staðið í skilum eða um 90,4%. Þess má geta, að félagsmenn, þessi rösk-
lega 90%, sem ávallt hafa staðið í skilum með félagsgjöld sín, hafa oft látið í ljós óánægju með
að ekki skuli hafa verið staðið harðar að innheimtuaðgerðum hjá þeim sem láðst hefur að
greiða gjöld sín á réttum tíma. Við þessu hefur nú verið orðið og félagið gerir það sem það get-
ur til að fullnægja réttlætinu, leggur á vexti og sendir áfram í lögmannsinnheimtu ef skuld er
komin fram yfir tvö ár, eins og félagslög reyndar segja að gert skuli.
Skrifstofan hefur sinnt öllum almennum skrifstofustörfum fyrir framkvæmdastjórn, deildir,
nefndir og gerðardóm, eins og óskað hefur verið eftir og unnt hefur verið að sinna. Síðastliðið
starfsár hefur slík þjónusta aukist mikið og færist sífellt í vöxt. Reynt hefur verið að liðsinna
öllum sem til skrifstofu leita við að skrifa bréf, senda út fundarboð og póst, sitja þá nefndar-
fundi sem óskað hefur verið eftir og færa fundargerðir, sem, að undanskyldum framkvæmda-
stjórnarfundum, er reyndar ekki í verkahring framkvæmdastjóra.
Talsvert er um að námsfólk snúi sér til skrifstofu með fyrirspurnir um skóla erlendis og
námskröfur sem gerðar eru til verkfræðimenntunar.
Þegar haft er í huga að um 100 félagsmenn vinna fyrir félagið í nefndum og ráðum er aug-
ljóst að vinnudagur þeirra Arnbjargar og Gurrýar er oft langur og erilsamur, en þær bera verk-
fræðingum gott orð, segja okkur hrokalausa ágætismenn og góða drengi.
4 Félagsmenn
Á starfsárinu gengu 45 í félagið sem fullgildir félagar og 9 sem ungfélagar. Umsóknum þriggja
manna var hafnað. Úrsagnir úr félaginu voru 52. Þeir sem sagt hafa sig úr félaginu liafa í mörg-
Mynd 3 SamráSsfundur stjórna VFÍ og Tœknifrœðingafélags íslands. Fundarmenn gœða sér á krásitm í
boði TFI. Við borðið sjást frá vinstri m.a. Guðmundur Hjálmarsson og Haraldur Sigursteinsson
tœknifrceðingar, Magnús Bjarnason verkfrœðingur og Sveinn Frímannson formaðttr TFÍ.