Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 227
Kostnaðaráætlanir 225
Endurgjöf (Feedback)
Hvaö gera á Sannreyna hvaö Bera saman áætlun
í framtíöinni gert hefur veriö og raunveruleika
og nýta frávik við
framhald verks eöa
Mynd 1 Þrír meginþœttir verks. ný ver^
iðnaði, nær hún til eftirlits og umsjónar með öllum stigum verkframkvæmdarinnar, frá skil-
greiningu markmiða og þarfa verkkaupans til hönnunarstjórnar og alhliða eftirlits. Þessum
stjómunar- og eftirlitsaðferðum hefur verið beitt með góðum árangri hjá mörgum stórfyrir-
tækjum og stofnunum, sem stöðugt eru að byggja og hafa gert sér grein fyrir mikilvægi mark-
vissrar stjórnunar.
Erfiðara gengur oft að leysa þessi stjórnunarmál hjá fyrirtækjum og stofnunum, sem byggja
ef til vill aðeins einu sinni á starfsferli hvers yfirmanns. Byggingarnefndir, sem slíkir aðilar
skipa, eru oftar en ekki óhæfar sem verkstjórar tæknimanna. Hér gæti reyndur verkefnisstjóri
gert ómetanlegt gagn. En hvernig skilgreinum við störf verkefnisstjórans ?
Segja má að hvert verk skiptist í þrjá meginþætti: áætlanagerð, framkvæmd og eftirlit,
með tilheyrandi endurgjöf, sem nýtist við næstu verk eða verkhluta.
Meginmarkmið verkefnisstjórnunar eru að:
* Verki verði lokið innan kostnaðarramma.
* Verki verði lokið innan tímaramma.
* Verkið verði faglega unnið, tæknilega séð.
* Verkið fullnægi lögum og reglum.
* Verkið hafi jákvæð áhrif á umhverfi sitt og fylgi gjaman nýjungum í byggingartækni.
Þessum markmiðum reynir verkkaupinn að ná með því til dæmis að:
* Setja skýr markmið í upphafi.
* Skilgreina þarfir og umhverfi verkefnisins.
* Gera raunhæfar áætlanir; - tíma, -kostnaðar, -greiðslu, og -framkvæmda.
* Hönnun innan kostnaðarramma.
* Fá reynda samstarfsmenn í - ræsingu verkefnis, og - verkefnisstjórnun.
* Gera skýrslur reglulega; - framvindu, - kostnaðar, og - skilamat.
* Hafa virkt eftirlit; - framkvæmda, - kostnaðar, og - gæða.
Starfi verkefnisstjórans má í mörgu líkja við stjórn flugstjóra eða skipstjóra seglskips, sem
stýra farkostum sínum í sterkum hliðarvindi. Þeir taka í upphafi stefnu á áfangastað, en þá
hrekur af leið og verða því stöðugt að gera nýjar staðsetningarákvarðanir og breyta stefnu í
samræmi við það.
A sama hátt þarf verkefnisstjórinn sífellt að bregðast við nýjum og breyttum aðstæðum á
verktímanum. Aætlunum þarf stöðugt að breyta og ber þá að hafa í huga að framkvæmda- og
15