Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 133
Reykjavíkurborg 131
Mynd 5 Ibúöir fyrir aldraða við Lindargötu. Framkvœmdir hófust í ársiok 1989.
1.5 Heilbrigöismál
Heilsugæslustöð við Gerðuberg (18,1 m.kr.) var tekin formlega í notkun.
1.6 Dagvistarheimili
Dagheimili/leikskóli í Grafarvogi, Klettaborg (33,4 m.kr.), við Selásbraut, Heiðarborg (28,8
m.kr.) og við Rekagranda, Gullborg (47, l m.kr.).
Þessar stofnanir voru teknar í notkun í byrjun suntars.
Unnið var við breytingar og endurbætur á ýmsum dagvistarstofnunum fyrir 27, l m. kr.
1.7 Stofnanir fyrir aldraöa
Lindargata, íbúðir aldraðra (190,2 m.kr.). Hér er um að ræða 13 hús. í þeim verða 93 þjónustu-
fbúðir. Auk þess verður sérstök dagvistardeild með 40 rýmum. í þjónustumiðstöð verður m. a.
aðstaða fyrir heimahjúkrun og heimilishjálp. Heildarstærð bygginga er 16.785 m2, þar af bíla-
geymslur 6.335 m2, en 220 bílastæði verða á fyrirhuguðu bílageymsluhúsi. Aðal uppdrættir
voru samþykktir í byggingarnefnd í okt. 1988, en framkvæmdir hófust í desember 1989.
1.8 Ýmsar byggingaframkvæmdir
í Viðey (28,9 m.kr.) var gengið frá bryggjuhúsi, smíðuð vélageymsla og lagður vegur vestur á
Eiði.
1.9 Ráöhús
A árinu var lokið við uppsteypu hússins og þök. Uppsetningu á gluggum og glerjun lauk
einnig. Unnið hefur verið í mörgum öðrum verkþáttum, s.s. múrverki, loftræstilögnum, raf-
lögnum, hitalögnum, þéttilögum, steyptum útveggjaeiningum og frágangi að utan.
2 Stofnkostnaður bílastæðahúsa
Bílageymsla í ráðhúsi (75,6 m.kr.) var tekin í notkun að hluta í árslok. Alþingisreitur (45,7
m.kr.). Lokið er við gerð bílastæða á Alþingisreit, bæði við Tjarnargötu og Templarasund.
Einnig voru geröir gangstígar og veggir til afmörkunar. Gróðursetning bíður vorsins 1991.