Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 242
240 Á rbókVFÍ 1990/91
Að þessu loknu eru framkvæmdar Hallmælingar með tilheyrandi stýringu seguls. Mæld er
Hallspennan sem fall af segulsviðinu. Gerðar eru mælingar við nokkur mismunandi segul-
sviðsgildi. í hverri umferð er fyrst mælt segulsvið og þá er mæld Hallspennan og straumurinn
um sýnið. Þannig að mæld er stærðin VH / Ix sem fall af segulsviði. Fyrir hvert segulsviðsgildi
er Hallspennan mæld við tengingar c) og f) á ntynd 2) og báðar straumstefnur. Þannig eru í það
minnsta mæld fjögur gildi á hlutfalli Hallspennu og straums. Meðaltal þessara gilda er síðan
notað til frekari úrvinnslu. Segulsviðið er aukið og mæliferlið endurtekið þar til tilsettum
fjölda mælinga er náð.
Mæld segulsviðsgildi og tilsvarandi hlutfall Hallspennu og straums eru meðhöndluð þannig
að reiknuð er lína í gegnum punktasafnið með aðferð minnstu kvaðrata. Það undirforrit er
byggt á forriti sem birt er í bók Bevington um gagnameðhöndlun [12, bls. 105]. Út úr
undirforriti þessu fæst hallatala línu í gegnum punktasafnið, b, og staðalfrávik frá henni, a/r
Þá er reiknaður Hallfastinn út frá jöfnu (1) þannig að
R„ = bd (10)
þar sem b er hallatala línunnar, sem dregin er í gegnum punktasafnið, og Hallfastinn er í
[mVm/AT].
Þegar mælt hefur verið eðlisviðnám og reiknaður Hallfasti er auðvelt að reikna út hleðslu-
beraþéttleikann og hreyfanleikann.
Höfundar þakka Marteini Sverrissyni, verkfræðingi, sem smíðaði og endurhannaði tengi-
boxið og Örnólfi Rögnvaldssyni, eðlisfræðingi, sem lagði drög að forritun kerfisins.
Heimildaskrá
[1] K. Seeger, Semiconductor Physics, 3. útgáfa, Springer Series in Solid-State Sciences,
Vol. 40 (Springer-Verlag, Berlin, Heidelberg 1985)
[2] J. Borgoin og M. Lanno, Point Defects in Semiconductors II, Springer Series
in Solid-State Sciences, Vol. 35 (Springer-Verlag, Berlin, Heidelberg 1983)
[3] D.C. Look og J.W. Farmer,./. Phys. E: Sci. Instrum. 14, 472 (1981)
[4] L.J. van der Pauw, Philips Research Reports 13, 1 (1958)
[5] P.M. Hemenger, Rev. Sci. Instrum. 44, 698 (1973)
[6] D. Colman, Rev. Sci. Instrum. 39, 1946 (1968)
[7] Jón Tómas Guðmundsson og Hafliði P. Gíslason, Eðlisfrœði á íslandi V , bls. 161
(Eðlisfræðifélag íslands, Reykjavík, 1991)
[8] H.B. Callen, Thermodynamics, (John Wiley & Sons, 1960)
[9] W.R. Runyan, Semiconductor Measurements and Instrumentation,
(McGraw-Hill Book Company, 1983)
[10] Brynjólfur Þórsson, Lokaverkefni í rafmagnsverkfræði, (Háskóli Islands, 1988)
[11] Brynjólfur Þórsson og Hafliði P. Gíslason, Mœlitœkni við grunnrannsóknir hálfleiðara
við RHÍ, í Árbók Verkfrœðingafélags /slands 1988,
bls. 183 (Verkfræðingafélag íslands, Reykjavík 1988)
[12] P.R. Bevington, Data Reduction and Error Analysis for the Physical Sciences,
(McGraw-Hill Book Company New York, 1969)