Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 41
Skýrsla stjórnar 39
Þann 28. febrúar 1991 var síðast haldinn félagsfundur á starfsári fráfarandi stjórnar og í
þetta sinn um ljósleiðarakapalkerfi, gervihnattasjónvarp og íslenska menningu. Frummælendur
voru Þorbjörn Broddason og Ólafur Tómasson. Umræður urðu fjörugar og gagnlegar eftir
framsöguerindin sem voru hin fróðlegustu. Stjómin gerði tilraun til að leggja fram ályktun til
samþykktar á fundinum. Ályktuninni var ætlað það hlutverk að ýta við stjórnvöldum unt
stefnumótun í málefnum gervihnattasjónvarps, þannig að menn gerðu sér grein fyrir að það
væri hagstæðara og umhverfisvænna, ef svo má að orði komast, að lcggja kapalkerfi með
ljósleiðurum beint heim í hús til notenda, en að láta sjónvarpsdiskaskóg vaxa stefnulaust og til
tjóns fyrir alla.
Skemmst er frá að segja að fundarmenn töldu sig ekki búna undir að álykta með þessum
hætti, og varð ekki úr því að samþykkt væri ályktun á fundinum né í framhaldi af honum.
Við í stjórn RVFÍ höfum lagt okkur fram urn að fá góða fyrirlesara í vetur og höfum fjallað
bæði um málefni líðandi stundar og einnig reynt að horfa inn í framtíðina. Við þökkum félags-
mönnum góðar undirtektir í vetur og ég vil einnig sjálfur þakka samstarfsmönnum mínum í
stjóm þeim Agli B. Hreinssyni, Sverri Ólafssyni og Dagnýu Halldórsdóttur ánægjulegt sam-
starf og sendi öllum fyrirlesurum og öðrum sem veitt hafa aðstoð við starfsemi RVFI á starfs-
árinu 1990-1991 bestu þakkir og kveðjur frá fráfarandi stjórn.
Reykjavík 16. maí 1991 Reynir Hugason, formaður
19 Efnaverkfræðideild VFÍ1990-1991
19.1 Stjórnarstörf
Stjórn Efnaverkfræðideildar VFÍ starfsárið 1990-1991 var skipuð eftirtöldum:
Þór Tómasson, formaður Jón Örn Bjarnason
Heiða Pálmadóttir
Á starfsárinu hefur verið haldinn einn almennur fundur þar sem staða deildarinnar var rædd
og þau mál sent eru efst á baugi. Þá vann stjórn EVFÍ umsögn fyrir stjórn VFÍ um þingsálykt-
unartillögu kvennalistans um rannsóknir á sviði vetnisframleiðslu og um notkun vetnis sem
eldsneytis.
19.2 Fundur um umhverfismál
EVFÍ hélt athyglisverðan fund um umhverfismál, mánudaginn 15. apríl 1991. Gestur fundar-
ins var Börkur Gunnarsson frá sápugerðinni Frigg. Fjallaði hann um fosföt og önnur efni í
þvottadufti og öðrum hreinsiefnum. í umræðum var einnig komið inn á önnur efni og um-
hverfismerkingar.
Fosfatfrítt þvottaduft hefur komið á markað vegna þrýstings víða erlendis þar sem ofgnótt
fosfata er í vatni. Þessi ofgnótt stafar af þéttri byggð og gífurlegri áburðarnotkun. í stað fosfata
eru þá notaðir zeólítar ásamt öðrum hjálparefnum svo sem pólýkarboxýlötum, fosfonötum og
nítrílótríasetati (NTA). Sums staðar erlendis er menn farið að gruna að þessi hjálparefni valdi
meiri vanda í vatnshreinsistöðvum heldur en fosfötin.
Hérlendis eru fosföt almennt ekkert vandamál. Benl var á að „fosfatfrítt er ekki lausn fyrir
vandantál sem ekki er til“. Miklu nær væri að líta á marga aðra þætti. Minnka heildarnotkun
sápu- og hreinsiefna, minnka umbúðanotkun þar sem umbúðirnar geta ofl verið meira um-
hverfisspillandi heldur en innihaldið, og tleira þess háttar.
Einnig var tjallað um umhverfismerkingar. Kom þar fram að merki eins og fosfatfrítt,