Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 226
4-9
Gunnar Torfason
Kostnaöaráætlanir og
verkefnisstjórnun
1 Inngangur
Þegar ég var innan við fermingu sendi móðir mín mig iðulega út í búð til innkaupa. Sem dæmi
gat ég átt að kaupa litla ýsu hjá Hafliða fisksala, og í versluninni Ásbyrgi, kartöflur, smjörlíki,
kaffi og einn pakka af Commander. Og svo mátti ég á tyllidögum kaupa mér snúð eða vínarbrauð.
Eg fékk með mér þrjá rauða tíukrónuseðla af því að mamma vissi að þeir myndu nægja. Og ég
skilaði afganginum.
En svona gengur þetta ekki fyrir sig í dag. Krakkar nenna ekki í sendiferðir, enda er kaup-
maðurinn á hominu víða horfinn, en foreldrar fara þess í stað akandi í kjörbúðir til að versla.
Innkaupin fara ekki fram eftir því sem stendur á miðanum eða samkvæmt einhverri áætlun,
eins og raunin var hjá móður minni. Nú er tínt í innkaupavagninn allt sem hugurinn girnist og
alveg án kostnaðaráætlunar. Og borgað með krítarkorti, sem verður á gjalddaga í næsta mán-
uði.
Sambærilegur munur og er á matarinnkaupum samkvæmt áætlun og taumlausum innkaup-
um út á krítarkortið kemur líka fyrir í verklegum framkvæmdum. Það er byrjað að byggja án
raunhæfrar kostnaðaráætlunar. Efnisval og útfærslur ákvarðast oft tilviljanakennt og má líkja
því við það, þegar vörur eru tíndar handahófskennt í innkaupavagninn í skjóli þess að ekki þarf
að greiða þær fyrr en í næsta mánuði.
Spurning dagsins er: „Hvers vegna standast kostnaðaráætlanir ekki ?“. Áður en ég kem
að henni vil ég ræða lítillega um verkefnisstjórnun almennt, en verkefnisstjórnun er eitt þeirra
tækja, sem við getum notað til bættra vinnubragða við kostnaðareftirlit.
2 Verkefnisstjórnun
Verkefnisstjórnun og verkefnisstjóri eru
hugtök, sem eru tiltölulega ný af nálinni,
þótt starfið hafi verið til lengi, en það felur
í sér framkvæmdastjóm verks fyrir hönd
verkkaupa eða byggingarnefndar.
Við, sem höfum sérhæft okkur í verk-
efnisstjórnun, teljum að hér sé um að ræða
nýtt form á stjórnun verkefna. Form, sem
miðar að því að stjóma í samræmi við
fyrirfram ákveðin markmið. Þegar slíkri
verkefnisstjórnun er beitt í byggingar-
Gunnar Toriason lauk Dipl. Ing. prófi í bygg-
ingarverkfræöi frá Technische Universitátí
Munchen 1959. Starfaöi í Þýskalandi í þrjú ár
eftir nám. Hefur rekiö verkfræöistofu sem sjálf-
stæöur ráðgjafi frá 1971.
Hefur unniö margvísleg
störf á sviöi hönnunar,
matsstarfa og síöustu ár
sem verkefnisstjóri viö
ýmsar stórbyggingar í
Reykjavík og nágrenni.
Hefursetiö í stjórnum FRV
og Fél. Verkefnisstjórnun.