Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 73
Nýir félagsmenn 71
dóttir húsfreyja á Stóru-Ökrum f. 7. apríl 1933 áTungu í Gönguskörð-
um Skagafirði, Magnússonar bónda í Tungu og Kristínar Guðmunds-
dóttur, sem bæði eru látin.
Börn: Gísli Þór f. 11. sept. 1984 á Sauðárkróki og Sigrún f. 22. nóv.
1987 íReykjavfk.
Veitt innganga í VFÍ á stjómarfundi 25. sept. 1990.
Þorvaldur Egill Sigurðsson (V 1988) f. 6. apríl 1964 fReykjavík. Faðir
Sigurður Egill Þorvaldsson, skurðlæknir f. 24. nóv. 1936 í Reykjavík,
Egilssonar, fiskmatsmanns og Lovísu Bjargmundardóttur, húsmóður.
Móðir Jóna Ingibjörg Þorleifsdóttir, leiðsögumaður, f. 1. júní 1936 í
Reykjavík, Sigurðssonar, fiskkaupmanns og Ingibjargar Nikulásdóttur
húsmóður.
Stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af eðlis- og náttúru-
fræðibraut 1984, próf í rafmagnsverkfræði frá Háskóla íslands 1988.
Störf: Birtingur hf. við forritun á úrvinnslu gagna fyrir Járnblendi-
félagið sunrarið 1988, stundakennari við forritun, tölvur og tölvu-
notkun við HÍ 1988-1989, Kögun hf., hugbúnaðarþróun á íslenska
loftvarnarkerfinu frá 1989.
Ritstörf: „Tveir heimar talast við“ Viðskipta og Tölvublaðið 1. tbl.
7. árg. 1988 og „Macintosh og umheimurinn" í sama blaði 3. tbl. 7.
árg. 1988.
Maki: Kolbrún Kjerúlf f. 27. maí 1964 í Reykjavík, dóttir Jónasar
Kjerúlf, húsvarðar f. 20. janúar 1939 í Reykholti Borgarfirði, sonar
Andrésar Kjerúlf og Halldóru Kjerúlf sem er látin. Móðir Brynja
Kolbrún Kjerúlf, fjármálastjóri Fjölbrautaskóla Vesturlands f. 22. maí
1936 á ísafirði, dóttir Ólafs Magnúsar Tryggvasonar og Jensínu Jónu
Kristínu Gunnlaugsdóttur sem er látin.
Börn: Sigurður Egill f. 20. sept. 1989 í Reykjavík.
Þorvaldur og Einar Þorsteinsson eru svilar.
Veitt innganga í VFÍ sem ungfélaga 1988, sem fullgildum félaga á
stjómarfundi 8. maí 1990.
Þóroddur Björgvinsson (V 1990) f. 26. júlí 1965 á Þórshöfn. Faðir
Björgvin Þóroddsson bóndi á Garði Þistilfirði f. 6. apríl 1940 á Gríms-
stöðum Þistilfirði, Björgvinssonar bónda sem nú er látinn og Kristbjargar
Sigríðar Árnadóttur húsmóður. Móðir Margrét Jónsdóttir, húsmóðir á
Garði f. 24. ágúst 1944, dóttir Jóns Guðmundar Þórðarsonar, vitavarðar
á Siglunesi, senr nú er látinn og Soffíu Jónsdóttur húsmóður.
Þon’aldur Ef’ill
Sigurðsson
Þóroddur Bjðrgvinsson