Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 202
200 Arbók VFI 1990/91
Mynd 4 Líklega nutiw öll merktu svœðin á myndinni heyra undirflokk I, en þar gilda ströngustu reglur
varðandi frágang á olíutönkum.
þar segir:
„4.3.1 Sveitarstjórnir og skipulagsyfirvöld skulu við gerð svœðis- og aðalskipulags í sam-
ráði við heilbrigðisnefnd, Náttúruverndarráð og Hollustuvernd ríkisins, flokka vatnasvœði í
eftirfarandi flokka, vegna varna gegn vatnsmengun.
Flokkur I. Svœði sem liafa sérstaka þýðingu vegna nytja afýmsu tagi, lífríkis, jarðmyndana,
eða útivistar. . .
Um strandsvæði segir:
„4.5.2. Sveitarstjórnir og skipulagsyfirvöld skulu við gerð svœðis og aðalskipulags í sam-
ráði við heilbrigðisnefnd, Náttúruverndarráð og Hollustuvernd ríkisins, flokka strandsvœði í
eftirfarandi flokka, vegna varna gegn sjávarmengun.
Flokkur I. Strandsvœði sem hafa sérstaka þýðingu vegna nytja af ýmsu tagi, Iffríkis, jarð-
myndana eða útivistar".
Greinar 4.3.2 og 4.5.3 segja síðan að bannað sé að leiða skólp út í ofangreind svæði.
Þessi ákvæði eru nokkuð afdráttarlaus og augljóst að taka verður mið af þeim, en vandinn er
sá, að framangreind flokkun hefur ekki farið fram. Það er hugmynd nefndar, sem vinnur að því
að setja reglur varðandi olíumengun frá strandstöðum, að þegar leitað verður til skipulagsyfir-
valda um byggingu bensínafgreiðslustöðva eða neðanjarðargeyma, verði þau að ganga úr
skugga um, hvort stöðvarnar séu á þessum svæðum sbr. ákvæði 2.1.1 \ reglunum). Það er álit
undirritaðra, að þau svæði sem helst koma til greina sem Flokkur I, varðandi vernd gegn
mengun í ám og vötnum, séu Svæði A í vatnaverndarskýrslu Náttúruverndarráðs.
Minni vinna hefur verið gerð varðandi flokkun strandsvæða, en líkast til verða þar taldar
flestar leirur landsins, viðkomustaðir farfugla og fuglabjörg. Til bráðabirgða verður að styðjast
við skrá í riti Landverndar um votlendi.