Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 28
26 Arbók VFI 1990/91
Verktækni. I samráði við stjórnir VFÍ og TFÍ hefur útgáfunefnd staðið að gerð santnings
við Fróða hf. um útgáfu Verktækni. Miðað er við að gefa blaðið út sem temablað, þar sem
fjallað yrði um ákveðið efni, sem einnig yrði tekið fyrir á ráðstefnu. sem félögin stæðu
sameiginlega að.
Miðað var við að gefa út tvö blöð 1991 til reynslu, eitt að vori og eitt að hausti. Þetta
útgáfuform yrði síðan tekið til endurskoðunar um haustið, en samningurinn gildir til ársloka
1991, ef honum er ekki sagt upp. Ef vel gengur, er hugsanlegt að útgáfunefnd leggi til að tvö
blöð verði gefin út næsta vor, en stjórnir félaganna ráða því hvort af verður, enda kostnaðar-
auki.
Arbók 1990/91. Reiknað er með að Árbókin komi út í álíka formi og fyrstu tvö bindin: Ár-
bók 1988 og 1989/90. Þó er reiknað með að reyna að auka enn hlut svonefndra smákynninga.
Eins og fyrr greinir verður áhersla lögð á það að útgáfa þessa bindis verði á rétturn tíma, þ.e. í
síðasta lagi haustið 1991.
Óvarlegt er að reikna með að þessi útgáfa standi undir sér sjálf, þótt vel hafi tekist til með
fyrstu tvö bindin að þessu leyti. Því fer nefndin fram á að félagið leggi útgáfunni til ákveðna
upphæð, eins og fram kemur í kostnaðaráætlun hér á eftir.
Því má skjóta inn til umhugsunar að tæknifræðingar keyptu nánast ekkert af fyrstu tveimur
bindum Árbókar. Væri hugsanlegt að bjóða TFÍ sérstök afsláttarkjör fyrir sína félagsmenn? Til
enn frekari umhugsunar væri þá, hvort bjóða ætti TFÍ aðild að Árbókinni?
Önnur útgáfustarfsemi. Utgáfunefnd leggur til að tekið verði til athugunar, hvort ekki sé
unnt að gefa út árlega í litlu kveri félagatal VFÍ með heimilisfangi, vinnustað, heima- og
vinnusíma félagsmanna. Þetta var gert á árum áður og margir segjast sakna þessa kvers. Þetta
yrði einn liður í að efla félagsvitund verkfræðinga.
Ef fjárhagur þessa árs leyfir ekki slíka útgáfu, má e.t.v. hefja undirbúning að útgáfu miðað
við 1992.
7.3.4 Kostnaðaráætlun
Fréttabréf VFÍ. Reiknað er með prentun og póstkostnaði um kr. 20.000 á hvert tölublað.
Auk þess bókfærist kr. 10.000 á skrifstofuna fyrir livert tölublað, eða alls kr. 30.000. Auk þess
kemur kostnaður vegna funda útgáfunefndar, u.þ.b. kr. 2.000 á hvern fund, eða um kr. 30.000
alls. Reiknað er með 17 tbl. á árinu, eða alls:
Fundir útgáfunefndar
Ófyrirséð
17 tölublöð á 30.000
Samtals kr.
30.000
10.000
510.000
550.000
Verktækni. Reiknað er með að VFÍ beri kostnað af 1.200 eintökum af 2.000 sem VFÍ og
TFÍ skuldbinda sig til þess að kaupa á kr. 395. Fróði hf. sér um pökkun og póstkostnað, en VFÍ
leggur til límmiða og sendir út gjafaeintök (u.þ.b. 50 af hverju tbl.).
2 x 1.200 eintök á kr. 395
Skráning í vörumerkjaskrá o.fl.
+ ófyrirséð
Póstkostnaður VFÍ
Samtals kr.
1.000.000
948.000
40.000
12.000