Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 106
104 Arbók VFI 1990/91
tæknistofnunar í eftirtaldar deildir: Fjármál/rekstur, staðladeild, fræðsludeild, framleiðslu-
tæknideild, umhverfis- og efnatæknideild, efnistæknideild, líftæknideild og matvælatæknideild.
Auk þess eru afmörkuð í skipuritinu tvö sjálfstæð verkefni, það er innra gæðaeftirlit og sam-
starfsverkefnið frumkvæði-framkvæmd. Frumkvæði-framkvæmd er ráðgjafaverkefni fyrir lítil
og miðlungsstór fyrirtæki til að bæta samkeppnisaðstöðu þeirra.
Heildartekjur Iðntæknistofnunarinnar á árinu 1990 námu um 255,5 milljónum króna. Þar af
voru sértekjur um 155,5 milljónir króna eða 61%. Afkoma stofnunarinnar byggist sífellt meira
á sértekjum. Tæplega tvö þúsund aðilar áttu viðskipti við stofnunina á árinu og sýnir það
hversu fjölbreytta þjónustu er boðið upp á. Um 15% sértekna komu frá erlendum aðilum, en
verkefnavinna með erlendum fyrirtækjum og stofnunum færist stöðugt í vöxt.
9.3 Rannsóknastofnun fiskiönaöarins
A undanförnum tveimur árum hefur orðið mikil aukning á eftirspurn til Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins eftir ýmis konar athugunum og rannsóknum fyrir fyrirtæki. Markmiðið með
þeim er að bæta nýtingu á hráefnum, auka gæði, þróa nýjar vörutegundir, prófa ný tæki sem
íslensk fyrirtæki hafa smíðað o.s.frv. Árin 1989 og 1990 vann stofnunin að 50 verkefnum í
samvinnu við 30 aðila.
Langflest verkefni sem unnin hafa verið í samvinnu við fyrirtæki eru að liluta greidd með
styrkjum úr opinberum sjóðum og að hluta með ríkisframlagi stofnunarinnar. Sé litið á fisk-
iðnaðinn í heikl er áætlað að fyrirtækin greiði um 60% af heildarkostnaði við rannsóknir og
vöruþróun í greininni.
Á undanförnum árum hefur samvinna við Háskóla íslands verið allmikil, einkum á sviði
matvælafræði, efnafræði og vélaverkfræði. Sérfræðingar stofnunarinnar kenna við Háskóla
Islands og stúdentar hafa unnið rannsóknaverkefni við stofnunina.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er með útibú á ísafirði, Akureyri, Neskaupstað og í Vest-
mannaeyjum. Starfsemi útibúanna árið 1990 var með hefðbundnu sniði. Meginuppistaða starf-
seminnar voru efna- og örveirumælingar á aðsendum sýnurn frá aðilum í sjávarútvegi. Haustið
1990 var tekin upp ræktun fyrir Listeria sýkla í öllum útibúunum, en erlendir kaupendur gera
kröfur um að þessi sýkill sé ekki til staðar í sjávarafurðum.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hefur verulegar sértekjur sem hafa farið vaxandi undan-
farin ár. Þannig uxu sértekjur um 23,6% á milli ára 1988 og 1989 og um 47,5% milli 1989
ogl990. Frá 1988 til 1990 lækkaði beint ríkisframlag til stofnunarinnar um tæp 16%. Hlutfall
sértekna af rekstrargjöldum fer því vaxandi. Þannig voru sértekjur 45,5% af rekstrargjöldum
1889 en 58,9% 1990. Rekstrargjöld árið 1990 voru um 165 milljónir króna.