Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 192
190 Árbók VFÍ 1990/91
Varaaflsstöð Áburðarverksmiðjunnar er tengd helsta rafbúnaði við geyminn. Öll mikil-
vægustu mælitæki eru tengd raflilöðum, sem taka við, ef rafmagn fer af.
5 Lokaorð
Þegar ákveðið var að byggja nýjan ammoníakgeymi við Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi hefur
eflaust komið til greina að leita til erlendra aðila um hönnun og smíði. Það var því ánægjulegt
þegar ljóst var, að ákveðið var að fá íslenska aðila til að hanna og smíða geyminn. Sú ákvörðun
ber vitni um kjark stjómenda Áburðarverksmiðjunnar og trú á íslenskum hönnuðum og verktökum.
Þegar upp er staðið er ljóst, að vel hefur tekist til og nýi geymirinn er með best búnu ammoníak-
geymum í heiminum. Færa má rök að því, að kostnaður hefði orðið hærri ef fengnir hefðu veriö
erlendir aðilar til að vinna allt verkið. Auk þess er tækni- og verkþekkingin eftir í landinu.
Með nýja ammoníakgeyminum hefur öryggi við geymslu ammoníaks verið aukið verulega.
Það felst fyrst og fremst í tveimur meginatriðum.
I fyrsta lagi er almennt viðurkennt, að geymar af þessari gerð eru öruggari en þrýstigeymar
og minni líkur á að þeir bresti. Talið er, að líkindin fyrir því, að geymir af þessari gerð bresti
séu á bilinu einn á móti milljón til einn á móti tíu milljón, miðað við eitt ár.
I öðru lagi er mikill eðlismunur á þrýstigeymum og kældum geymum, en hann er sá, að
þrýstigeymar fela í sér mikla orku, sem losnar þegar geymirinn brestur og vökvinn þeytist út í
loftið, þannig að meginhluti hans gufar upp og myndar ammoníakský, sem berst með vind-
inum. Kældir geymar fela ekki í sér slíka orku og ef þeir bresta lekur meginhluti amonfaksins
út í vökvaformi. Ef þró er umhverfis kældan geymi, eins og við nýja geyminn í Gufunesi,
myndast ammoníaktjörn í þrónni og ammoníakmengun verður mun minni og takmörkuð við
svæðið umhverfis tjörnina. Auk þess er fyllilega raunhæfur möguleiki að þekja tjörnina með
kvoðuefni þannig að uppgufun verði óveruleg.
Samskipti við opinbera aðila hafa verið meiri í þessu verki en venja er til. ÍVinnueftirlit
ríkisins fylgdist með verkinu frá byrjun og aðrir aðilar eftir því sem tilefni var tíl. Samskipti
við þessa aðila voru með ágætum. Það er von okkar, að nýi ammoníakgeymirinn í Gufunesi
megi koma að þeim notum, sem honum er ætlað.
Heimildir
111 American Petroleum Institute, „API 620, Recommended Rules for Design and
Construction of Large, Welded, Low- Pressure Storage Tanks“ 7th Edition 1982
Incorporating Revision LApril 1985.
[2] British Standards institution, „BS 4741:1971, Specifications for Vertical Cylindrical
Welded Steel Storage Tanks for Low-Temperature Service: Single-Wall Tanks for
Temperatures down to -50°C“, revisions from 1972 and 1980.
[3] American Petroleum Institute, „API 650, Welded Steel Tanks for Oil Storage"
7th edition 1980.
[4] American Petroleum Institute, „Basis of Seismic Design Provisions for Welded Steel Oil
Storage Tanks“, 43rd Midyear Meeting, May 8-11, 1978, Toronto, Ontario, Canada.