Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 136
3-5
íslenskar múrvörur hf.
1 Inngangur
Islenskar múrvörur hf. eða ÍMÚR eins og fyrirtækið er nefnl í daglegu tali, hóf starfsemi sína
um mitt ár 1990 og fóru fyrstu mánuðirnir í undirbúning. Kannaðir voru mögulegir samstarfs-
aðilar erlendis varðandi nýja tækni í múrverki, unnið að frekari þróun fslensks múreinangrun-
arkerfis og sala hafin á SEMKÍS múrblöndum og steypuvið-
gerðarefnum.
í upphafi árs 1991 tók fyrirtækið að sér alla heildsölu-,
markaðs- og viðskiptamannaþjónustu fyrir SEMKÍS-vörur frá
Sérsteypunni sf., en sú þjónusta hafði áður verið í höndum Sent-
entsverksmiðju ríkisins og Sérsteypunnar sf. Verkaskipting
nrilli fyrirtækjanna er þannig að Sérsteypan sf. annast þróun,
rannsóknir, framleiðslu og framleiðslueftirlit á SEMKÍS-blöndum og einingum og ÍMÚR
annast sölu- og markaðssetningu SEMKÍS-efna, útleigu og sölu á múrsprautum, dælum og
búnaði til notkunar fyrir SEMKIS-blöndur auk tækniþjónustu og ráðgjafar fyrir viðskiptavini.
Skipta má starfi IMÚR árið 1991 upp í þá þrjá meginþætti, sem fjallað verður um hér á eftir,
þ.e. sala og kynning á nýrri tækni í múrverki, ímúr klæðningu og SEMKÍS-viðgerðarefnum.
2 Ný tækni - nýjar múrblöndur
Allt frá fyrstu markaðssetningu SEMKÍS-blandnanna hafa framleiðendur þeirra haft að
lciðarljósi „að framleiða blöndur, sem hafa stöðug og þekkt gæði, blöndur sem minnka óþrif
og minnka mengun en bæta nýtingu, blöndur
sem létta vinnu múrara og opna möguleika á
því að létta hana enn meira nteð stærri um-
búðareiningum, sem blása má blöndunum úr
beint í vél, sem hrærir blönduna nteð vatni og
sprautar henni síðan á notkunarflötinn".
Þróun á tilbúnuni þurrblöndum og tækja-
búnaði fyrir múrverk hefur verið mikil og ör í
Þýskalandi á undanförnum áratugum og segja
má að í dag sé 98% af öllu múrverki þar unnið
með tilbúnum múr, en aðeins 2% „blandað á
staðnum" eins og við þekkjum. Það er því
ekki að ástæðulausu sem ÍMÚR tók upp sam-
starf við þýska fyrirtækið Mathis Technik
gmbh (M-tec). M-tec er dótturfyrirtæki stór-
fyrirtækisins Mathis, sem er m.a. einn af
stærstu framleiðendum þurrblandna í Þýska-
ÍMÚR íslenskar múrvörur hf.
Aðsetur: Viðarhöfði 1, 112 Reykjavík
Stofnað: 7. mars 1990
Stofnendur:
Sandur hf., Reykjavík
Sérsteypan sf., Akranesi
Steinullarverksmiðjan hf., Sauðárkróki.
Tilgangur:
Markaðssetning á tilbúnum íslenskum
þurrblöndum og múrkerfum, auk útleigu
og sölu á margvíslegum tækjabúnaði.
Þjónusta og sala á hráefnum og
framleiðsluvörum eignaraðila.
Þróun og markaössetning á „íslenska
múrkerfinu", sem er Semkís-múr á
steinullareinangrun.
Innflutningur og umboðsverslun.