Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 83
TækniannáH 1990 81
1989 og 1990 gefa til kynna að
vinnuaflsnotkun hafi dregist sam-
an um 1% frá árinu 1988 til 1990.
Á sarna tímabili jókst mannfjöld-
inn á vinnualdri um 2,5% og
landsmönnum alls fjölgaði um
2,3%. Brottfluttir til útlanda um-
fram aðflutta árið 1989 voru 1.086
og 681 árið 1990.
Atvinnuleysi jókst verulega á
milli áranna 1988 og 1990, úr því
að vera 820 ársverk 1988, eða
0,6% af vinnuframboði, í 2.255
ársverk 1990 eða 1,7% af vinnu-
framboði. Aukið atvinnuleysi eftir
1988 og brottflutning fólks má
einkum rekja til þrenginga í
efnahagslífinu á árunum 1988 til
1990. Atvinnuleysið var minnst á
Vestfjörðum, eða 0,4%, og hefur
svo jafnan verið undanfarin ár, en
mest á Norður- og Austurlandi,
eða 3,1-3,3%. Atvinnuleysið á
landsbyggðinni var 2,6% og 1,2%
á höfuðborgarsvæðinu.
Fjöldi atvinnulausra eftir kyni
sýnir mun meira atvinnuleysi nteð-
al kvenna en karla. Á árinu 1990
var atvinnuleysi meðal karla 1,4%
að meðaltali á landinu öllu og um
vegar 2,2% að meðaltali á landinu
Mynd 2 Vinnumarkaður og hagvöxtur 1980 - 1990, hlutfalls-
leg breyting frá fyrra ári.
Mynd 3 Atvinnuleysi og fólksflutningar (nettó). Hlutfall af
vinnuframboði.
1,8% á landsbyggðinni. Meðal kvenna var atvinnuleysi hins
öllu og um 4,7% á landsbyggðinni.
2.9 Neysla
Gert er ráð fyrir að einkaneysla (126,7 mia.kr.) hafi haldist óbreytt að magni frá 1989 til 1990,
eftir samdrátt árin tvö á undan um nær 12%.
Á síðasta ári er talið að samneyslan (156,2 mia.kr.) hafi aukist um 1,7%. Þetta er minni
vöxtur en nokkur undanfarin ár.
2.10 Fjármunamyndun
Fjárfesting dróst saman um 8,5% árið 1989. Áætlanir (66,2 mia.kr.) fyrir 1990 sýna liins vegar
vöxt um 4,5%. Þessa aukningu má að rnestu leyti rekja til endurnýjunar flugflota Flugleiða, þar
sem án hennar hefði fjármunamyndun dregist saman um 3%. Samdráttur var í fjárfestingu
atvinnuveganna í öllum atvinnugreinum nema stóriðju.
Fjárfesting (15 mia.kr.) í íbúðarhúsnæði í fyrra er talin hafa staðið í stað frá því árið á undan.
Samfelldur vöxtur hafði verið í íbúðarfjárfestingum frá 1986, eða sem nemur unt 30% til 1990.
ð