Sagnir - 01.04.1988, Side 63

Sagnir - 01.04.1988, Side 63
Olafur Elímundarson Bænarskrár og umræður um verslunarfrelsi 1845 42 c?z<ý/Z?£ x/ StSSS r-s - -í- , , yf s/Aysz >y * <ÍV TT' Sf&s; ///?/' SfSS/Si:/'^ <7/ í7K/'Zc/C^'S 7' ^3'cZ^y/? c-O a^^K'ó '7'é??7/'Aa> /Tz •// /s/s/ss s TTt/ S/7/7//<//t/7t77 r i//>cs s s . 77 e/S Úr fyrslu málsgrein bœnarskrárinnar, sem send uar Alþingi árið 1845, að öllum líkindum skrifuð afJóni Sigurðssyni. Bœnarskráin er uarðueitt í skjalasafni Alþingis og er þetta í fyrsta sinn sem birt er mynd af henni. S „Osk þessi hefir alla tíma heyrzt, fyrst eptir að verzlunarokið var lagt á, í tíð Kristjáns fjórða, og þángað til allur kjarkur var dauður úr þjóðinni af kúgun verzlunarinnar og allri vesœld sem henni fylgdi. “7 Einokunarversluninni hér á landi, konungsversluninni, lauk árið 1787, og hófst þá tírnabil „fríhöndlunarinnar" svoköll- uðu, þ.e. öllum þegnum Dana- konungs var leyft að versla hér. Kon- ungsverslunin seldi dönskum versl- unarmönnum eignir sínar en hug- myndin var að koma upp borgara- stétt í landinu og stofnað var til sex kaupstaða í þeim tilgangi. Reyndin varð sú að kaupmennirnir voru flest- lr á vegum danskra stórverslana og verslanirnar hér urðu aðeins útibú °g eingöngu opnar að sumrinu. ^oru þær því kallaðar „selstöðu- verslanir". Mikil óánægja var með þetta fyrirkomulag, en allar tilraunir með að fá því breytt höfðu orðið árangurslitlar.2 Um eða uppúr 1840 fór Jón Sigurðsson mjög ákveðið að hvetja menn til þess að hugleiða hvernig koma mætti á umbótum í verslunarmálunum. í 2. árgangi Nýrra Félagsrita 1842 birti hann skrá um verðlag í Kaupmannahöfn og á íslandi á algengustu vörum og mun sá samanburður hafa ýtt við mönnum. í 3. árgangi 1843 birti hann langa grein undir nafninu: Um verzlun á íslandi. Um hugsanlegt fyrirkomulag verslunarinnar segir hann þetta í greininni: Meðal samtaka þeirra sem vel mætti takast eins og nú stendur, og heppnazt hafa sumstaðar, er það, að heilar sveitir eða héruð taki sig saman til verzlunar, og kjósi menn til að standa fyrir kaupum af allra hendi, fyrir sann- gjarnliga þóknun.3 í 5. árgangi Nýrra Fé/agsrita árið 1845 birtist grein eða „álitsskjal eitt, viðvíkjandi verzlun á íslandi," sem sagt er að ritinu hafi borist, og að það sé birt vegna þess að það kunni að þykja ekki ómerkilegt. Þar segir bréfritari að hann álíti það vera skyldu hvers íslendings sem vilji fósturjörðu sinni vel, að vinna að því að leysa þá fjötra að mega ekki stunda verslun við önnur lönd en Danmörku, það lagaboð sé „... hlekk- ur úr fjötri þeim, sem kúgað hefir allt afl úr þjóð vorri, og haldið henni í húngri, örbirgð og volæði um heil- ar aldir,...“ og það jafnvel svo að sumum frammámönnum Dana hafi ofboðið og „... orðið að játa að Is- SAGNIR 59
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.