Morgunblaðið - 15.02.2012, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2012
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Undanfari er heiti sýningar með
nýrri myndbandsinnsetningu eftir
Sigurð Guðjónsson myndlistarmann,
sem verður opnuð í Hafnarborg á
morgun, fimmtudag, klukkan 17.00.
Sigurður hefur verið iðinn við sýn-
ingarhald undanfarin ár og hafa
marglaga og hrífandi verk hans ver-
ið sýnd víða um lönd.
Þegar Sigurði var boðið að sýna í
Hafnarborg ákvað hann að vinna
verkið fyrir Sverrissal.
„Í haust bauð listaverkasafnari
mér að dvelja í mánuð í íbúð sem
hann á í Vínarborg,“ segir Sigurður
þegar hann er spurður um kveikju
verksins. „Þetta var 200 fermetra
klassísk íbúð, án allra húsgagna.
Hann bauð mér húsgögn en ég
ákvað að halda henni tómri, fyrir ut-
an skrifborð og stól. Ég notaði íbúð-
ina síðan sem vinnustofu. Gólffjal-
irnar voru gamlar og það brakaði í
þeim; það bergmálaði í rýminu eins
og í íslenskum helli. Brakið er í raun
kveikjan að þessu
verki.“
Í verkinu sér
inn í tóman sal og
þar er nakinn
karlmaður sem
gerir einskonar
líkamsæfingar,
þannig að það
brakar í gólfinu.
Yfir þá mynd
leggst önnur,
stálstrengir sem vísa í hljóðfæri, og
eftir strengjunum ferðast skuggi
eins og pendúll og þeir gefa frá sér
hljóð.
„Samspil myndast milli
strengjanna, líkamans og rýmisins
og ég horfi í það,“ segir hann.
Vönduð úrvinnslan og persónu-
legur myndheimur hafa skipað Sig-
urði meðal fremstu myndbandslista-
manna okkar. Verk hans hafa verið
sýnd á fjölmörgum einka- og sam-
sýningum hér á landi en auk þess
hafa þau verið sýnd víða erlendis, í
galleríum og söfnum, en einnig í
sambandi við kvikmyndahátíðir. Í
verkum Sigurðar eru ætíð nokkur
lög. Hann vinnur með myndefnið og
ekki síður hljóðheiminn.
„Eftirvinnslan er helmingur ferl-
isins,“ segir hann. „Verkin byrja á
kveikju sem í þessu tilfelli eru gólf-
fjalirnar, líkaminn og rýmið, en svo
leggjast önnur lög við.
Verkið er sex mínútna langt, er
endurtekið í sífellu og hefur ákveðna
abstrakt sögu.
„Margt sést ekki. Hljóðheimurinn
býr til að mynda til undiröldu sem
ekki er auðvelt að koma í orð. Það er
stór þáttur í mínum verkum.“
Myndbandið hefur verið miðill
Sigurðar síðan hann kom fram á
sjónarsviðið sem myndlistarmaður.
Hann útskrifaðist frá LHÍ árið 2003
og stundaði framhaldsnám í Vínar-
borg.
„Já, þegar maður byrjar á vídeó-
inu er engin leið að komast út úr því.
Möguleikarnir eru svo margir. Ég
var búinn að vera í þrjá mánuði í
Listaháskólanum á sínum tíma þeg-
ar ég kom inn í vídeóverið og ég hef
ekki farið út úr því síðan.“
Undanfari Stilla úr marglaga myndbandsverki Sigurðar Guðjónssonar, þar sem unnið er með mynd og hljóð.
Brak í gólffjölum var
kveikjan að verkinu
Ný myndbandsinnsetning eftir Sigurð Guðjónsson
Sigurður
Guðjónsson
Ávextir, könnur, vasar ogleirtau, dúkuð borð ogblóm. Á efri hæð Hafnar-borgar gefur nú að líta
túlkun íslenskra listamanna á fegurð
sem tengist hversdagslífinu og
heimilinu á sýningunni „Kyrralíf“.
Uppstillingar eða kyrralíf er gam-
algróin grein myndlistarinnar sem
margir listamenn hafa fengist við, og
kyrralífsmálun hefur lengi verið
órjúfanlegur hluti af akademísku
listnámi. Elstu myndina á sýning-
unni málaði Kristín Þorláksdóttir
Bernhöft um 1895, þá á unglings-
aldri og efnilegur nemandi hjá Þór-
arni B. Þorlákssyni. Kristín beitir
akademískri málunaraðferð til túlk-
unar á pottaplöntum við glugga þar
sem opnast útsýni yfir miðbæ
Reykjavíkur og Esjuna.
Á sýningunni má sjá verk eftir
ýmsa listamenn sem þekktastir eru
fyrir annað en kyrralífsmálun. Blóm
og uppstillingar voru hins vegar eitt
aðalviðfangsefni Kristínar Jóns-
dóttur og má sjá tvö slík verk á sýn-
ingunni. Kyrralífsverk hennar ein-
kennast iðulega af lipurri og
blæbrigðaríkri pensiltækni og fal-
legum litasamsetningum. Tvö nýleg
verk eftir Áslaugu Thorlacius sýna
að innimyndir eru enn gott og gilt
viðfangsefni listamanna. Ekki er
lengur litið á heimilið og einkarýmið
sem sérstakan „stað kvenna“ og
engin ástæða til að tengja kyrralífs-
og blómamálun við slíkt hlutskipti.
Verk Áslaugar eru í takt við áhuga
margra samtímalistamanna á hvers-
deginum. Í huga margra listamanna
sýningarinnar er myndbyggingin og
glíman við liti og form aðalviðfangs-
efnið; þar skiptir myndefnið sjálft
jafnvel ekki svo miklu máli. Aðrir
leitast við að skapa stemningu og
dulúð, eins og t.d. Júlíana Sveins-
dóttir, leikandi og ljóðræna tóna líkt
og Gunnlaugur Blöndal, og samræðu
milli forma líkt og þeir væru gæddir
mannlegum eiginleikum; lágstemmd
mynd Guðbjargar Lindar Jóns-
dóttur er gott dæmi um það og á
vissan hátt einnig safarík málverk
Louisu Matthíasdóttur. Húbert Nói
er hins vegar knúinn af heimspeki-
legum vangaveltum um eðli mynd-
rænnar framsetningar.
Hér er um að ræða fróðlega og
fallega sýningu sem varpar ljósi á
þátt kyrralífsmálunar, í hefð-
bundnum skilningi orðsins, í ís-
lenskri listasögu allt frá lokum 19.
aldar til fyrsta áratugar þeirrar 21.
Myndefnið er á sinn hátt af sama
meiði en framsetningin jafnfjöl-
breytileg og listamennirnir eru
margir.
Kyrrlátir töfrar
Falleg sýning Málverk á sýning-
unni Kyrralíf eftir Finn Jónsson.
Hafnarborg – Menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar
Kyrralíf – samsýning
bbbmn
Til 26. febrúar 2012. Opið kl. 12-17 alla
daga, fimmtud. til kl. 21. Lokað á þriðju-
dögum. Aðgangur ókeypis.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Stofa breska stjörnuarkitektsins Normans Forsters, Fost-
er + Partners, hefur verið valin af alþjóðlegri dómnefnd
til að hanna nýtt safn í borginni Patna á Indlandi. Borgin
er í hinu bláfátæka Bihar-fylki og hika yfirvöld þar við að
semja við arkitektastofuna, vegna hinnar háu þóknunar
sem hún fer fram á. Ef samningar nást ekki, mun verkið
falla í skaut japönsku arkitektastofunni Maki. Fimm arki-
tektastofur kepptu um verkið. Auk stofu Fosters og Maki
voru það Daniel Libeskind í New York, Coop Himmelblau
í Vín og norska arkitektastofan Snøhetta. Í safninu eiga
að vera níu salir þar sem sýndir verða gripir frá 14 öldum;
trúarlegir munir, myntsafn, tíbesk málverk og leirgripir.
Norman Foster
Foster valinn til að teikna safn
Heimsljós (Stóra sviðið)
Lau 18/2 kl. 19:30 14.sýn Sun 26/2 kl. 19:30 17.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 síð.sýn
Sun 19/2 kl. 19:30 15.sýn Fim 8/3 kl. 19:30 18.sýn
Lau 25/2 kl. 19:30 16.sýn Mið 14/3 kl. 15:00 AUKAS.
Ein ástsælasta saga Nóbelsskáldsins í nýrri leikgerð.
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fim 1/3 kl. 19:30 Forsýn Sun 18/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 1/4 kl. 19:30 13.sýn
Fös 2/3 kl. 19:30 Forsýn Fös 23/3 kl. 19:30 8.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 14.sýn
Lau 3/3 kl. 19:30 Frums Lau 24/3 kl. 19:30 9.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 AUKAS.
Fös 9/3 kl. 19:30 2.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 10.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 AUKAS.
Lau 10/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 28/3 kl. 19:30 11.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 15.sýn
Sun 11/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 29/3 kl. 19:30 12.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 AUKAS.
Fös 16/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 30/3 kl. 19:30 AUKAS. Lau 21/4 kl. 19:30 16.sýn
Lau 17/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 31/3 kl. 19:30 AUKAS. Sun 22/4 kl. 19:30 17.sýn
Frumsýnt 3. mars
Dagleiðin langa (Kassinn)
Fös 24/2 kl. 19:30 Frums. Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 9.sýn
Mið 29/2 kl. 19:30 2.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 10.sýn
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 11.sýn
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 12.sýn
Frumsýnt 24.febrúar
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Sun 19/2 kl. 13:30 Sun 26/2 kl. 13:30 Sun 4/3 kl. 13:30
Sun 19/2 kl. 15:00 Sun 26/2 kl. 15:00 Sun 4/3 kl. 15:00
Sun 19/2 kl. 17:00 AUKAS. Sun 26/2 kl. 17:00 AUKAS.
Hjartnæm og fjörmikil sýning
Sjöundá (Kúlan)
Fös 17/2 kl. 19:30 Frums Sun 4/3 kl. 19:30 Fim 15/3 kl. 19:30
Lau 18/2 kl. 19:30 Fim 8/3 kl. 19:30
Lau 25/2 kl. 19:30 Mið 14/3 kl. 19:30
Ný leiksýning um morðin á Sjöundá
Uppistand - Mið-Ísland (Stóra sviðið)
Fös 17/2 kl. 20:00 AUKAS.
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Orð skulu standa (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 16/2 kl. 21:00
Útvarpsþátturinn Orð skulu standa öðlast nýtt líf á sviði!
Fanný og Alexander (Stóra sviðið)
Mið 15/2 kl. 20:00 7.k Fim 1/3 kl. 20:00 11.k Fim 15/3 kl. 20:00 aukas
Fim 16/2 kl. 20:00 8.k Fös 2/3 kl. 20:00 12.k Lau 17/3 kl. 20:00
Fös 17/2 kl. 20:00 9.k Sun 4/3 kl. 20:00 aukas Sun 18/3 kl. 20:00 aukas
Fim 23/2 kl. 20:00 aukas Fim 8/3 kl. 20:00 Fös 23/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 10.k Fös 9/3 kl. 20:00 Sun 25/3 kl. 20:00 aukas
Lau 25/2 kl. 20:00 aukas Sun 11/3 kl. 20:00 aukas Lau 31/3 kl. 20:00
Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið. Sýningum lýkur í mars
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 18/2 kl. 14:00 Sun 26/2 kl. 14:00 Sun 18/3 kl. 14:00
Sun 19/2 kl. 14:00 Sun 4/3 kl. 14:00 Sun 25/3 kl. 14:00
Lau 25/2 kl. 14:00 Sun 11/3 kl. 14:00
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið og Menningarhúsinu Hofi)
Lau 18/2 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 19:00 Fös 16/3 kl. 19:00
Lau 3/3 kl. 21:00 Lau 10/3 kl. 22:00 aukas Fös 16/3 kl. 22:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Í Borgarleikhúsinu í febrúar og Hofi í mars
Eldhaf (Nýja sviðið)
Mið 15/2 kl. 20:00 8.k Lau 25/2 kl. 20:00 aukas Fim 8/3 kl. 20:00
Fim 16/2 kl. 20:00 aukas Sun 26/2 kl. 20:00 aukas Fös 9/3 kl. 20:00
Fös 17/2 kl. 20:00 9.k Mið 29/2 kl. 20:00 13.k Sun 11/3 kl. 20:00
Sun 19/2 kl. 20:00 10.k Fim 1/3 kl. 20:00 14.k Fim 15/3 kl. 20:00
Fim 23/2 kl. 20:00 11.k Fös 2/3 kl. 20:00 15.k Sun 18/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 12.k Sun 4/3 kl. 20:00 16.k
Ath! Snarpur sýningartími. Sýningum lýkur í mars
Axlar - Björn (Litla sviðið)
Lau 18/2 kl. 20:00 9.k Sun 26/2 kl. 20:00 Fim 15/3 kl. 20:00
Sun 19/2 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00
Lau 25/2 kl. 20:00 Fim 8/3 kl. 20:00
Nýtt verk úr smiðju Vesturports
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fim 16/2 kl. 20:00 Fös 24/2 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00
Fös 17/2 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00
Fim 23/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Á Stóra sviðinu 11/2
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Lau 18/2 kl. 13:00 3.k Lau 25/2 kl. 13:00 5.k Sun 4/3 kl. 13:00
Sun 19/2 kl. 13:00 4.k Lau 25/2 kl. 14:30 aukas
Sun 19/2 kl. 14:30 aukas Sun 26/2 kl. 13:00
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Mínus 16 (Stóra sviðið)
Sun 19/2 kl. 20:00 3.k Sun 26/2 kl. 20:00 4.k Lau 10/3 kl. 20:00
Mið 22/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn - Verk eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin