Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2009, Síða 27
Til eru hlutfallslega margar ritheimild-
ir um Gautavík þó þær séu ekki sér-
staklega innihaldsríkar. Varðveist hafa
þrjár staðarlýsingar, sem hefð var fyrir
að gera á Íslandi þangað til í nútíma-
num.69
Ellefu sinnum var víkurinnar minnst
í Íslendingasögunum og fimm sinnum í
íslenskum annálum. Staðarnafnið
Gautavík bendir til þess að erlendir
menn hafi starfað þar. Gautavík, í
þrengstu merkingu, ætti ef til vill ekki
að skilja sem „Vík Gota“ og þá það að
Gotar eða Svíar hafi verið með verslun
hér. Það liggja alla vega ekki neinar
heimildir fyrir um möguleg tengsl við
Austur-Skandinavíu. Miklu frekar ætti
að leggja almennari skilning hins er-
lenda í orðtakið og því gæti merkingin
orðsins verið „Vík hinna erlendu“.
Orðahlutinn vík getur hér bæði þýtt vík
og þyrping húsa.70
Tvö örnefni til viðbótar má setja í
samband við hina erlendu, nefnilega
Búðamelur og Búðaá.71 Búðamelur er
heitið á hæðinni sem afmarkar víkina
norðvestanmegin og Búðaá er nafnið á
ferskvatnsánni sem rennur til sjávar í
víkinni á milli rústanna. Bæði örnefnin
eiga án efa við kaupmannsbúðirnar
sem hér stóðu á miðöldum. Gefur það
til kynna að þessar búðir hafi verið
sérstakar og þær því notaðar til að gefa
staðháttum nöfn sín.
Líta verður á frásagnir af Gautavík
sem koma fyrir í annálum sem
samtímaheimildir, þ.e. beinan vitnis-
burð um 14. öldina. Annað gildir um
frásagnirnar í Íslendingasögunum. Þær
voru flestar ritaðar mjög seint en margt
sem fram kemur í þeim gerðist á fyrstu
öldum Íslandssögunnar.
Gera má ráð fyrir að rétt sé farið með
hlutlægar upplýsingar sagnanna en
vitneskja seinni tíma ritara sagnanna
gæti samt hafa ratað í þær. Vegna þess
að flestar sagnanna voru skrifaðar
nokkru fyrr en annálarnir, sem einnig
verður stuðst við, verður hér fyrst
fjallað um þær.
Eina elstu heimildina er að finna í
Hrafns sögu Sveinbjarnarsonar:
Marcus var búþegn gódur og at
ferdar madur mikill/ hann fór utann/
og liet höggva sier kirkiu vidi/
Sijdann fór hann út hijngad/og kom
i Aust fiördu i Gata vijk/ og gaf
hann kirkiuvidinn allann Sigmundi/
Sú kirkia stendur nú á Valþiöfss
odum/ Sigmundur var mestur
höfdingi i Austfiördum.72
Ef lýsingin stenst mun hún vera frá
lokum 12. aldar og þá getur viðurinn í
kirkjunni á Valþjófsstað verið úr
þessum skipsfarmi.73 Markús var
neyddur til að fara aðra ferð til þess að
sækja meiri við, í stað þess sem hann
gaf Sigmundi. Síðari farminn hefur
hann varla flutt um Gautavík vegna
þess að hann var búsettur á Vest-
fjörðum.
Í Njálssögu er þrisvar minnst á
Gautavík. Í 87. kafla segir að maður að
nafni Kolbeinn hafi látið útbúa skip sitt
til sumarferðar í Gautavík:
Ritaðar heimildir
69. Dr. Björn Þorsteins-
son, prófessor í Reykja-
vík, fær sérstakar þakkir
fyrir hjálpina við að
safna saman rituðum
samtímaheimildum um
Gautavík.
70. L. Schütte, Wik.
Eine Siedlungsbe-
zeichnung in histor-
ischen und sprachlichen
Bezügen (1976) 176 f.
71. Uppdráttur Íslands.
Blatt 15 Breiðdalsvík.
72. Hrafns saga Svein-
bjarnarsonar, útg. af A.
Hasle (1967) 9.
73. Kristján Eldjárn,
Hundrað ár í Þjóð-
minjasafni (1973) Nr.
68.
__________
27