Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2009, Blaðsíða 43
lögnin var þar með ekki á náttúrulegu
undirlagi heldur vönduðum tilbúnum
grunni. Hin sérstaka uppröðun múr-
steinanna á miðju gólfinu og stein-
hellan, sem lá ofan á þeim, mun hafa
verið tilviljun, því uppgröftur svæðis-
ins leiddi engar nýjar upplýsingar þar
um. Gráa fúguefnið fannst einnig utan
hringsins og myndaði allt að 40 sm
breiða rönd utan um hann (mynd 21,
birtist sem brotin lína).
Í þessari rönd fundust steinhellur,
sem lágu langs eftir veggnum, og náðu
upp að öðru lagi múrsteinahleðslunnar
(mynd 33.2 og 38). Stærri steinar, sem
lágu við steinhellurnar og utan við gráa
lagið reyndust, þegar uppgraftarsvæðið
var stækkað, vera hluti veggs og
mörkuðu steinhellurnar ytri byrði hans
(mynd 36). Steinarnir lágu í sömu hæð
og efsta röð múrsteinanna. Steinarað-
irnar mynduðu 2,5 til 3,5 m stóran
rétthyrning utan um múrsteinahringinn
en þeim var lokað að utanverðu með
torfhleðslu (mynd 38). Ekki var hægt
að kanna áframhaldandi stefnu steina-
raðanna framan við innganginn á suð-
austurhliðinni þar sem langhlið nausts-
ins lá þar og ekki reyndist mögulegt að
aðgreina steinhleðslurnar í tvö mis-
munandi byggingarstig. Þessi fundur
staðfestir þá tilgátu að múrsteinarnir
Mynd 25. Naustið, suðursvæði.
__________
43