Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2009, Blaðsíða 51
gengið út frá því að hafi verið lagður
biti langs yfir skipið.112 Svo voru lögð
bretti milli bitans og veggjanna, og
ofan á þau var svo hugsanlega lagt
torf. Ramskou sýnir í skýrslu sinni
endurgerð af svona skýli með skáþaki.
Hann tímasetur bæði skýlin til víkinga-
aldar eða ármiðalda, þar sem þeir til-
heyrðu líklega tveim skráðum bónda-
bæjum frá þessum tímabilum.113
Nánari rannsókn á skýli 1 sýndi að
innra mál þess var 6 x 24 m að há-
marki. Þar með var hægt að hýsa tvö
skip sambærileg Tune- eða Ásubergs-
skipunum sem á kili voru annars vegar
4,3 x 20 m og hins vegar 5,1 x 21,4. Í
skýlunum stóðu skipin á kilinum ofan
á þverbitum og hliðarstoðir vörðu
skipin frá því að velta.
Þar sem fornleifafundurinn í Harre-
berg er aðeins sá eini sem rennir
stoðum undir tilvist hrófa er ekki hægt
að fjalla meira um almenna stærð og
útlit þeirra.
Hin tegund bátaskýla frá víkinga-
tímanum og fyrsta hluta miðalda á
Norðurlöndum eru hin eiginlegu naust.
Leggja ber áherslu á að naust eru öfugt
við hróf varanlegar byggingar (sbr.
latína navis og fornnorræna nór – skylt
skipi). Í Gulaþingslögum 307 er að
finna lýsingu á nausti: Létt bygging
með stoðir sem reknar voru í jörðu og
tengdar saman að ofan með láréttum
þverbitum. Þakið var búið til úr
sperrum sem tengdar voru saman með
slám og þunnum fjölum. Ofan á var
fyrst lagður birkibörkur og svo torf þar
ofaná. Til að koma í veg fyrir að torfið
rynni niður af þakinu var sett brík
langsum á þakkantinn og á mæninn
voru lagðar fjalir til að verjast vindi.114
Byggingarefnið hefur verið sótt í
næsta nágrenni og hefur því verið líkt
og hróf úr steinum, timbri og torfi. Í
Sturlungu er sagt frá sperrunausti –
sbr. rim = sperra – á Íslandi.115 Annars
má gera ráð fyrir að veggir naustsins
Mynd 38. Naustið, norðursvæði, snið á móti NV.
112. D. Ellmers (sjá
neðanmálsgrein 108),
148.
113. T. Ramskau (sjá
neðanmálsgrein 111)
171.
114. H. Falk (sjá neðan-
málsgrein 105) 27.
115. H. Falk (sjá neðan-
málsgrein 105) 27.
__________
51