Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Síða 26
Helgarblað DVFÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 200826
HIN HLIÐIN
Grasekkja
með hlaupabólubarn
Nafn og aldur?
„Esther Talia Casey, 30 ára.“
Atvinna?
„Leikkona.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambúð með besta kokki í
heimi.“
Fjöldi barna?
„Ein 2 ára stelpa.“
Áttu gæludýr?
„Nei, aldrei þessu vant, hef
alltaf átt kisu og langar alltaf
í kisu.“
Hvaða tónleika fórst þú á
síðast?
„Bang Gang og Sinfonían,
fékk að syngja tvö lög með
þeim.“
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Nei, en lögreglan hefur
þrisvar bankað upp á hjá
mér á fáránlegustu tímum,
Aðfangadag klukkan 18,
gamlárskvöld í miðju skaupi
og eldsnemma morguns á
sunnudegi. Allt hins vegar of
langar sögur til að segja frá
hér.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín
og af hverju?
„Kvk-buxurnar mínar, þægi-
legar en smart innibuxur.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei, en pilates, sund og
hollur matur láta mér líða vel
andlega og líkamlega.“
Hefur þú tekið þátt í skipu-
lögðum mótmælum?
„Já, já, elskan mín. Minnis-
stæðust eru Falun Gong-mót-
mælin við Perluna.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Ekki í augnablikinu.“
Hvaða lag skammast þú þín
mest fyrir að hafa haldið upp
á?
„Úff! I will always love you
með Whitney Huston kemur
sterkt inn.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Að fá kallinn heim frá Am-
eríku með dollara í vasa og
byrja æfingar á jólasýningu
Þjóðleikhússins, Sumarljósi,
og auðvitað jólanna, en ekki
hvað?“
Afrek vikunnar?
„Að vera grasekkja í kreppunni með
eitt hlaupabólubarn í frumsýning-
arviku á Hart í bak í Þjóðleikhúsinu.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Ég kann aðeins á píanó og svo
kann ég 3 lög á gítar.“
Styður þú ríkisstjórnina?
„Ég held að í þessu ástandi verð-
um við öll að treysta á það að
stjórnin geri sitt besta. Jóhanna
Sig. er mjög traustvekjandi og
Björgvin viðskiptaráðherra talar
mannamál sem er mjög mikil-
vægt. Við verðum að fá að skilja
hvað er í gangi.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Fjölskyldan, vinir, heilsan og
starfsánægjan.“
Hvaða fræga einstakling myndir
þú helst vilja hitta og af hverju?
„Fyrir utan það að taka einn
kaffi með einhverjum kollegum
mínum í Hollywood og spjalla
um bransann myndi ég vilja hitta
langafa minn Héðin Valdimars-
son.“
Ertu með tattú?
„Nei.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, tvö. Eitt þegar ég var 6 ára um
bankakreppu og hitt í fyrra um
hversdagsleika ástarinnar.“
Hverjum líkist þú mest?
„Pabba mínum held ég.“
Ertu með einhverja leynda hæfi-
leika?
„Ég er kattþrifin, svolítið „bor-
ing“ hæfileiki en mjög praktísk-
ur.“
Af hverju stafar mannkyninu
mest hætta?
„Fáfræði og mikilmennskubrjál-
æði, þessir eiginleikar hafa áhrif
á allt í kringum okkur.“
Á að leyfa önnur vímuefni en
áfengi?
„Why talk about it?“
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„Fyrir utan miðborg Reykjavíkur.
Þá er sá staður sem stendur næst
hjarta mínu Höfði í Mývatns-
sveit þar sem ég eyddi flestum
sumrum í æsku með langömmu
minni…mig dreymir hann reglu-
lega.“
Leikkonan esther taLia Casey Leikur um þessar mundir í verkinu hart í bak í
þjóðLeikhúsinu en verkið hefur fengið góða dóma gagnrýnenda. brátt taka
svo við æfingar á jóLasýningu þjóðLeikhússins, sumarLjósi.
dv mynd sigtryggur
Exclusive Tantra Massage
For men, women and couples.
Phone: 698 83 01
www.tantra-temple.com
Einstök bók um mann
sem mætt hefur meiri
mótbyr en gengur og
gerist, en býr þó yfir
fádæma lífsgleði og
baráttuþreki og horfir
ávallt fram á veginn.
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR
-lífsreynslusaga Vilhjálms Þórs Vilhjálmssonar
-í senn hugljúf og skemmtileg bók