RM: Ritlist og myndlist - 01.06.1947, Page 5
að láta nýja stráúma og stefnur í bókmenntum fram hjá sér fara, eigi
hún ekki að verða að viðundri.
*
Kynni alls þorra íslendinga af myndlist eru af mjög skornum
skammti, þótt nokkuð hafi þokazt í rétta átt síðustu árin. Hér er ekk-
ert myndlistartímarit til, enda miklum erfiðleikum bundið að halda
því úti meðan verulegur hluti þjóðarinnar er áhugalítill og tómlátur
í því efni. Þörfin er þó brýn að fylla lítið eitt í þessa eyðu, ef það
yrði til að fjölga unnendum myndlistar til nokkurra muna.
*
Stærri og auðugri þjóðir gefa að sjálfsögðu út sérstök tímarit um
öll þau efni, sem nú hafa verið nefnd. Hér á landi er þess naumast
kostur að sinni. Hitt þótti athugandi, hvort ekki mætti sameina þetta
í einu riti. RM er tilraun í þá átt.
Flestir munu telja, að nógu mörg séu tímarit á íslandi, þar þurfi
sízt af öllu við að hæta. Rétt er það, ritafjöldinn er mikill. Þó hefur
ekkert þeirra helgað sig einvörðungu skáldskap og myndlist. Því
hlutverki er RM ætlað að gegna.
RM mun gera sér far um að flytja valdar smásögur og kafla úr
skáldritum, í vönduðum þýðingum. Verður leitazt við að hafa sem
mesta fjölbreytni um efnisval. Hvert hefti mun flytja verk þeirra nú-
tímíjskálda, sem efst eru á baugi, auk sýnishorna úr ritum klassiskra
höfÍuída. Tíu ísíenzkir listamenn hafá lofað RM stuðningi sínum,
og munu þeir myndskreyta sögurnar. Gerð verður nokkur grein fyrir
öllum þeim höfundum, sem RM flytur skáldskap eftir. Birtar verða
stuttar ritgerðir um ýmis bókmenntaleg efni, þýddar og frumsamdar.
Vonir standa til þess, að ritið geti flutt bókmenntabréf úr ýmsum átt-
um, þar sem skýrt verður í stuttu máli frá nýjungum í skáldskap og
listum. Eru slík bréf væntanleg frá London, París, Stokkhólmi og
Ameríku.
3