RM: Ritlist og myndlist - 01.06.1947, Blaðsíða 57
munir
RM
spúandi eimyrju gnæfa við himin
eins og risafurur og mennirnir eru
eins og dvergar á þönum allt í kring
1 airandi hávaða, þá sagði hann við
konu sína:
»Segðu hvað þú vilt, Valería, en
þetta er það stórkostlegasta sem nú-
tíminn hefur upp á að hjóða.“
lJau komu sér fyrir í hinni nýju,
snotru íbúð á háskólalóðinni í Cleve-
landi og hinum dásamlegu munum
frá fornri frægð í Evrópu: feneyska
liókaskápnum, bálónsku dragkist-
Ul'ni, Loðvík fimmtánda stólunum,
biskupsstólnum frá Ravönnu og
fronzlömpunum frá Síenu var raðað
UPP í smekklegri, innri samstillingu.
Og gestirnir sem hugsjónamenn-
'rnir huðu til sín voru gapandi af
undrun yfir dásemdunum. Erasmus
lék á als oddi og naut sín sem Evrópu-
maður, en var þó hjartanlegur og
blátt áfram á ameríska vísu. Og þeg-
ar frúin fín og kvenleg sagði, að þau
tækju Ameríku yfir öll önnur lönd
pírgóndi Erasmus á konu sína sínum
stingandi völskuaugum og sagði:
„Það er allt í lagi með piparinn í
Evrópu, en alltaf er ameríski plokk-
fiskurinn beztur, er það ekki?“
„Jú, alltaf,“ svaraði hún ánægð.
Og hann glóðri á hana. Hann var
innan rimlanna, en það fór vel um
hann. Og nú fyrst naut hann sín.
Allur farangurinn var kominn heim
heilu og höldnu. Samt var einhver
illgirnislegur kipringur kringum
munnvikin, kaldhæðnislegt glott. En
plokkfiskur þótti honum mesta lost-
æti.
Agnarr ÞórSarson íslenzkaíVi.
Mynd: Jóhannes Jóhannesson.
Ahsel Sandemose hefur senl frá sér lítiff
safn smásagna, sem eru að stofni til æsku-
Verk, en endursaindar í Svíþjóð'arútlegðinni
a stríðsárunum.
i
*
'Thomas Mann hefur verið gerður heiðurs-
doktor á ný við háskólann í Bonn. Mann
Maut þessa nafnhót árið 1919, en var svipt-
,lr henni af nazistum 1933.
☆
býzki rithöfundurinn Hans Fallada lézt
að heimili sínu f Berlín í fehrúarhyrjun. —
Hann var fæddur 1893 og hét réttu nafni
Kudolf Ditzen. Fallada þótti hlynntur naz-
tstum og undi sér vel í Hitler-Þýzkalandi, en
naut þó vinsælda erlendis. Síðasta skáldsaga
hans var t. d. prentuð neðanmáls í blaði
Rauða hersins. Hér á landi mun Fallada
kunnastur fyrir skáldsöguna „Hvað nú —
ungi maður?“ sem kom út á íslenzku fyrir
nokkrum árum.
*
Þrjú stór bókaforlög á Norðurlöndum,
Natur och kultur í Stokkhólmi, Hasselbach
í Kaupmannahöfn og Aschehoug í Osló, hafa
sameiginlega efnt til vrðlaunasamkeppni um
beztu norrynu skáldsöguna er þeim bærist,
hvort heldur var á sænsku, dönsku eða
norsku. Verðlaunaupphæð sú, sem heitið
var, voru 35 þúsund sænskar krónur. Tím-
inn til að skila handritum er nú útrunninn.
Þátttaka var mikil. Alls hárust handrit að
158 skáldsögum, 61 á sænsku, 58 á norsku og
37 á dönsku. Gert er ráð fyrir, að skýrt verði
frá úrslitum samkeppninnar í ágústmánuði
í sumar.
51