RM: Ritlist og myndlist - 01.06.1947, Side 93
Bænarstund
Ejtir Albeiít Encström
Skipið Adonis frá Kalmar, — skip-
stjórinn hét Bredström —, var
statt á milli Galapagos- og Kokos-
eyja; og hafði lent í hinum langvinn-
ustu stillum, sem nokkur skipverja
'dssi dæmi til. Það hafði verið blæja-
l°gn í nálega þrjár vikur, og skip-
stjorinn bölvaði og ragnaði frá
morgni til kvölds. Stundum þaut
^ann upp um nætur til að ausa úr
ser heiftinni, og heyrðust þá frá
honum svardagar svo ægilegir, að
skipverjar, senr urðu þó ekki hissa
a öllu, þóttust sjá eld og brennistein
gjosa úr munni hans og nösum. Og
svo illur var hann, að hann hvæsti
1 hvert skipti sem einhver kom við
húninn á káetuhurðinni. Það var
tekið að gerast ömurlegt um borð
°g maturinn orðin heldur vondur.
^g þegar maður lifir á skemmdum
niat, hefur maður leyfi til að vera
í slæmu skapi.
lJað rigndi mikið. Dag hvern opn-
uðust flóðgáttir himins. Jæja, það
skorti þá ekki drykkjarvatnið meðan
svo var, en demburnar voru svo stór-
felldar, að menn sáu naumast út úr
augum meðan á þeim stóð. Það
reyndist erfitt að verja farm og far-
angur bleytu, þótt undir þiljum væri,
og rúgurinn var farinn að mygla.
Hákarlar byltu sér umhverfis
skipið og skipstjóri reiddi að þeiin
hnefana um leið og formælingagus-
an stóð úr kjafti hans, þar sem
spannarlangur rjólspotti sat blýfast-
ur, eins og lægi hann fyrir akkeri í
leirbotni, — og voru þrír hnútar á.
Loks kom þar, að enginn þorði að
yrða á skipstjóra. Jafnskjótt og ein-
hver nálgaðist, hóf liann hnefann,
og sá gamli sló ekki vindhögg, því
að sterkur var hann, þótt lágvaxinn
væri. Hann var digur og saman rek-
inn, skeggið ryðbrúnt og tjásulegt,
augun glóandi af illsku.
í sluttu máli sagt. Skipstjóri gerð-
ist illvigari og skapverri en svo, að
það yrði þolað, og skipverjar komu
sér saman um það frammi í háseta-
klefa að senda mann til hans og
krefjast þess, að haldin yrði sameig-
inleg bænarstund, en samkvæmt far-
87