Morgunblaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018
Að undanförnu hafa
frambjóðendur Mið-
flokksins í Garðabæ
bankað upp á hjá bæj-
arbúum til þess að af-
henda þeim skilaboð
og upplýsingar um
framboð okkar. Þessar
heimsóknir hafa verið
gefandi, upplýsandi og
umfram allt skemmti-
legar. Það er mikill
samhljómur með bæjarbúum og
stefnu Miðflokksins.
Íbúar í Garðabæ eru sammála um
að álögur á heimilið vegna fast-
eignaskatta hafa hækkað verulega
og vilja að brugðist sé við þeirri
hækkun til lækkunar. Skilvirk
stjórnun fjármuna mun tryggja
betri þjónustu og lægri skatta og
gjöld. Bæði Reykjavík og Seltjarn-
arnes eru með lægri fasteignaskatta
en Garðabær og ættum við ekki að
vera eftirbátar þeirra. Annað sem
var tíðrætt við okkur er hvað það er
dýrt að vera með börnin í íþrótta-
starfi í bænum. Að ekki sé veitt
lækkun á gjöldum ef systkini eru í
íþróttum eða ef þetta unga fólk hef-
ur áhuga á að vera í fleiri en einni
íþrótt. Sama er uppi á teningnum í
öðru tómstundastarfi í bænum. Mið-
flokkurinn í Garðabæ ætlar sér að
innleiða jafnrétti og jafnræði í
íþrótta- og tómstundastarfi og mun
endurskoða styrki og koma á systk-
inaafslætti.
Einnig var mikið rætt um matinn
sem verið er að bjóða börnunum
okkar í grunnskólum bæjarins en
Miðflokkurinn mun beita sér fyrir
því að allur matur verði framleiddur
í Garðabæ, annaðhvort
í fullbúnum eldhúsum
skólanna eða þá á öðr-
um stað innan bæj-
armarkanna. Unga
fólkið okkar á skilið
bestu fáanlegu nær-
ingu sem völ er á og
við kappkostum að
þannig verði.
Tíðrætt var að
Garðbæingar væru að
ala upp íbúa fyrir ná-
grannasveitarfélögin
en yngri Garðbæingar
neyðast til þess að
flytja úr bænum okkar þar sem
fasteignaverð í bænum er of hátt.
Það er ekki verið að byggja minna
og hagkvæmara húsnæði fyrir ungt
fólk sem er að hefja sinn búskap.
Þetta unga fólk kemur líklega ekki
aftur í bæinn þar sem börnin þeirra
eru komin með vini í þeirra hverfi
og vilja ekki skipta um skóla. Þessa
þróun vill Miðflokkurinn stöðva
með því t.d. að koma á fót húsnæð-
isfélagi til að eignast og eða leigja
húsnæði á viðráðanlegu verði. Mið-
flokkurinn mun síðan tryggja stöð-
ugt framboð lóða til einstaklinga á
svipaðan hátt og gert var t.d. þegar
Bæjargilið var í uppbyggingu.
Einnig er nauðsynlegt að tryggja
það að eldri Garðbæingar þurfi ekki
að flytja úr bænum þegar aldurinn
fer að færast yfir. Miðflokkurinn
mun tryggja það.
Annað sem Garðabær þarf að
stórbæta er þjónusta við öryrkja og
er það hjartans mál hjá frambjóð-
endum Miðflokksins í Garðabæ.
Það kom nokkuð á óvart þegar
rætt var við íbúa Garðabæjar að
óánægja er með skipulagsmál í nýj-
um og gömlum hverfum. Ef til
dæmis er horft til nýjasta hverfisins
í Garðabænum okkar þá er það sagt
fyrir fjölskyldufólk og það er ekki
gert ráð fyrir leikvöllum fyrir börn-
in og byggingar fá að hækka um-
fram áður samþykkt skipulag þann-
ig að íbúi sem kaupir sér útsýni yfir
vatn og náttúru horfir nú inn í stof-
una hjá nágrannanum. Annað varð-
andi skipulagsmálin er að það er
miður að það þurfi hávær mótmæli
og undirskriftir til þess að koma í
veg fyrir að gamalgróin og kyrrlát
hverfi tapi sínum einkennum. Svona
ósætti í skipulagsmálum á ekki að
líðast og er kostnaðarsamt fyrir
Garðabæ. Miðflokkurinn mun beita
sér fyrir því að íbúar geti með skil-
virkari og betri hætti komið að
ákvörðunum um lítil og stór mál og
viljum við t.d. koma á fót íbúaappi
eða snjallforriti. Þá getur fólk tekið
afstöðu með símanum eða snjall-
tæki.
Hér er aðeins tekið á örfáum at-
riðum sem fram hafa komið í heim-
sóknum okkar frambjóðenda Mið-
flokksins til íbúa Garðabæjar og
munum við kappkosta við það að
fara skynsamlegustu leiðirnar til
þess að gera góða bæinn okkar
framúrskarandi.
Við bjóðum upp á góðan valkost í
kosningunum á laugardaginn. Setjið
X við M.
Takk fyrir góðar
móttökur, Garðbæingar
Eftir Gísla
Bergsvein
Ívarsson
» Skilvirk stjórnun
fjármuna mun
tryggja betri þjónustu
og lægri skatta og
gjöld.
Gísli Bergsveinn
Ívarsson
Höfundur skipar 2. sætið
hjá Miðflokknum í Garðabæ.
Íslenskt lamba-
kjöt er fyrsta og eina
skráða íslenska af-
urðarheitið sam-
kvæmt lögum nr.
130/2014 um vernd
afurðaheita sem vísa
til uppruna, land-
svæðis eða hefð-
bundinnar sérstöðu.
Ásamt notkun á heit-
inu fylgir heimild til
að nota sérstakt íslenskt auð-
kennismerki í markaðssetningu.
Það er Matvælastofnun sem hef-
ur umsjón með kerfinu. Þetta
þýðir að allir framleiðendur á ís-
lensku lambakjöti geta fengið
vörur sínar vottaðar. Lögin eru
nánast samhljóða norsku reglu-
verki.
Verndað afurðaheiti á
evrópska efnahags-
svæðinu
Íslensku og norsku lög-
in eru sambærileg reglu-
verki Evrópusambandsins
en rúmlega 1.400 afurðir
eru þegar skráðar í evr-
ópska kerfinu og tæplega
200 aðrar eru í umsókn-
arferli. Þar má nefna
nokkrar af frægustu mat-
vörum Evrópu eins og
Parmigiano Reggiano og
Prosciutto Di Parma. Hinn 1. maí sl.
tók gildi samningur á milli Íslands og
Evrópusambandsins um gagnkvæma
verndun afurðaheita. Gildistaka hans
þýðir að afurðaheitið íslenskt lamba-
kjöt nýtur þar með verndar á öllu evr-
ópska efnahagssvæðinu – í 30 löndum.
Á sama hátt eru evrópsk afurðaheiti
vernduð hér og í Noregi.
Aukin verðmætasköpun
Evrópsku upprunavottanirnar eru
vel þekktar meðal almennings í flest-
um ríkjum álfunnar. Sums staðar
segjast yfir 90% þekkja evrópsku
merkin í könnunum. Þá nýtur þetta
vottunarkerfi líka mikils trausts hjá
almenningi. Í framhaldi af skráningu
íslenska lambakjötsins hér á landi er
unnið að skráningu ytra svo einnig
verði hægt að nota evrópska útgáfu
merkisins. Tvær norskar afurðir eru
nú þegar komnar með evrópska
merkið. Samkvæmt upplýsingum frá
Norðmönnum fæst nú mun hærra
verð fyrir þær á mörkuðum í öðrum
Evrópusambandsríkjum.
Fyrir neytendur og bændur
Regluverkinu er fyrst og fremst
ætlað að tryggja góða viðskiptahætti
og neytendavernd. Rannsóknir sýna
að neytendur eru tilbúnir að greiða
talsvert hærra verð fyrir vottuðu af-
urðirnar en aðrar sambærilegar
vörur. Frá sjónarhóli bænda og
framleiðenda eykur verndun af-
urðaheitsins því einnig verðmæta-
sköpun. Það er því til heilla – bæði
fyrir íslenska bændur og neytendur –
að íslenskt lambakjöt sé nú verndað
afurðaheiti í Evrópu.
Íslenskt lambakjöt nýtur
verndar í Evrópu
Eftir Svavar
Halldórsson » Afurðaheitið íslenskt
lambakjöt nýtur þar
með verndar á öllu evr-
ópska efnahagssvæðinu
– í 30 löndum.
Svavar Halldórsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
markaðsstofunnar Icelandic Lamb.
svavar@bondi.is
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar
greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að
nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í
samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið
birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni for-
síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig
inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar
allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í
síma 569-1100 frá kl. 8-18.
VINNINGASKRÁ
4. útdráttur 24. maí 2018
627 13831 23798 33345 42459 53105 61948 71360
810 13946 23924 33628 43164 53661 62346 71561
849 13991 23987 33714 43924 53852 62813 71696
852 14116 24121 33781 44038 54064 62838 71834
1599 14272 24342 33811 44304 54184 63018 71867
1726 14754 24634 34120 44340 54228 63077 72204
1995 15048 24882 34438 44636 54428 63168 72242
2687 15095 24934 34551 44675 54514 63279 72315
3163 15516 25088 34616 44827 54528 64404 72347
3404 15957 25154 35120 45477 54581 64685 72769
4357 16552 25216 35642 45613 54945 64917 72974
4792 16744 25614 35849 45688 55399 64990 73313
5150 17037 25876 35887 45743 55450 65248 73339
5730 17165 26310 36365 46412 55480 65731 73389
6093 17234 26594 36789 46445 56042 65963 73762
6664 17604 26853 37116 46594 56543 66055 74568
6685 17669 26868 37276 47045 57045 66372 74620
6780 18489 27267 37278 47251 57160 66410 74669
7886 18766 27695 37787 47709 57371 66429 74815
7958 19113 27851 37855 48004 58018 66862 75243
8173 19193 27901 37909 48180 58127 66990 75271
8903 19650 28505 38478 49356 58252 67277 75307
9252 20179 28518 38554 49471 58326 67371 75582
9307 20606 28615 38653 49846 58344 67713 76642
9336 20977 28768 38789 49971 58365 67866 76828
9549 21096 28862 40051 50083 58677 67888 77487
9821 21475 29055 40089 50228 59563 68201 78408
10196 22062 29265 40361 50519 59799 68978 78708
10383 22116 29305 40369 50523 60286 69278 79484
10870 22251 29494 40623 50755 60371 69647 79816
10881 22300 29871 40903 50881 60467 69670 79970
10979 22329 30751 40973 51498 60764 69768
11100 22819 31023 41379 52117 61004 70768
12391 22935 31143 41642 52334 61326 70963
13129 23375 32427 41822 52400 61575 70967
13142 23461 32622 42046 52696 61741 71020
13351 23496 33213 42197 52710 61835 71160
891 12443 20869 32369 44271 55312 66031 74381
2117 12574 20911 33608 44907 55401 66284 74921
4177 14332 23086 34272 45557 56044 67961 75502
6338 14595 23706 34747 45626 59072 68284 76624
6431 14700 23816 36103 45677 59455 68458 77159
6475 16415 24425 36213 46125 60729 68894 78006
8238 17316 25110 38686 48323 61973 70300 78196
8520 17320 25953 41264 48743 62133 72963 78537
9157 18951 28200 42005 49477 63468 73008 79528
10077 19171 28388 42543 51490 63734 73249
10726 19188 29182 43187 51951 63735 73542
11448 20158 30929 43585 52051 65106 73725
11658 20630 31373 43764 53449 65498 73888
Næsti útdráttur fer fram 31. maí 2018
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
2720 26990 32047 52762
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1422 17319 25339 34516 51692 66465
5924 19618 26632 37444 52066 67556
6923 20692 29136 46025 64066 69378
10192 22271 34430 46809 64203 69757
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 4 3 3
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG
PÍPARA?