Breiðfirðingur - 01.04.1990, Blaðsíða 10
8
BREIÐFIRÐINGUR
II.
Guðbrandur var löngum með foreldrum sínum á Borg og
síðast á Staðarstað, uns hann kvæntist 1877 og fór að búa í
Klettakoti, sem var ein af Búðahjáleigum. Kona hans var
Guðbjörg Vigfúsdóttir frá Kálfárvöllum í Staðarsveit. Árið
1889 fluttu þau hjón til Ólafsvíkur og bjuggu þar upp frá því,
þar sem Guðbrandur vann löngum við verslun; hann lést í
Reykjavík 1921. Börn þeirra urðu tíu, en átta náðu fullorð-
insaldri og voru þessi:
Guðrún átti Magnús Guðbrandsson í Ólafsvík. Þau fluttu
til Ameríku.
Ragnheiður Elín giftist Sæmundi Skúlasyni. Bjuggu í
Ólafsvík og á Spjör í Eyrarsveit.
Porkell kvæntist Theódóru Kristjánsdóttur frá Hjarðar-
felli. Bjuggu fyrst vestra, en lengst í Reykjavík.
Vigfús, kunnur klæðskeri, átti fyrst Maríu Sigurðardóttur
í Reykjavík og síðar Kristínu Ólafsdóttur frá Stóra-Galtar-
dal á Fellsströnd.
Guðbranda giftist Guðbjarti Kristjánssyni, bróður Theó-
dóru, og bjuggu á Hjarðarfelli.
Ágústína átti Guðjón Jónsson, skósmið í Reykjavík.
Eyjólfur kvæntist Herdísi Sigurðardóttur úr Reykjavík,
þar sem þau bjuggu.
Pálína átti Svein Þórðarson frá Borgarholti og bjuggu á
Fossi í Staðarsveit.
Ættbogi Guðbjargar og Guðbrands er orðinn stór, mestur
hér á landi, en einnig er brot af honum vestan hafs og ef til
vill víðar.
III.
í Klettakoti var svo rýrt undir bú, að með engu móti var á
það treyst til að framfleyta stórri fjölskyldu, en flest börn
þeirra hjóna fæddust þar. Þótt Guðbrandur hefði einhver
ígrip við verslunina, hjó það skammt. Þess vegna varð ekki
hjá komist að róa til fiskjar, ýmist úr Búðaós eða frá Fram-
búðum. Guðbrandur hefur því reynt á sjálfum sér, hve barn-