Breiðfirðingur - 01.04.1990, Blaðsíða 70
68
BREIÐFIRÐINGUR
dætur Eggerts seint, og Helga giptist aldrei; ... Fjár-
gæzlumaður mikill var Eggert sjálfur og kallaður sinkur;
er sögn, að hann hafi mælt við konu sína: Gef þú, Val-
gerður, en láttu mig ekki sjá það. Auk þess að Eggert,
sem áður er sagt, bæði hélt bú á Skarði og Bæ, hélt hann
þriðja búið á Ballará; þar hafði hann 12 kýr, og hið fjórða
á Kvennahóli; þar hafði hann 8 kýr. Hann átti allar jarðir
á Skarðsströnd og víðar, en Arnarbæli, sem þá heyrði til
Skarðsströnd, fékk hann eigi keypt; skyldi hann þá hafa
átt að segja, er hann reið þar nærri: „Opt vekur þú mig,
Arnarbæli.“62
Margt má segja um þessa frásögn Boga á Staðarfelli um
Eggert. Þegar Eggert dó 14. júní 1681 var hann sagður 69
ára, svo að eftir því hefur hann verið fæddur 1612.63 Fremur
finnst okkur á 20. öld undarlegt að lesa þegar Valgerði
Gísladóttur er ráðstafað til giftingar að Skarði 12 vetra og
líklegra er að það hafi verið talið sjálfsagt, að hún hafi ekki
verið spurð álits. Allt virðist þetta hafa farið fram í vinsemd
þar sem Eggert situr í brúðkaupi fyrrverandi tilvonandi eig-
inkonu sinnar. Enn er til kaupmálabréf Eggerts og Val-
gerðar gert í Bræðratungu 20. júlí 1633 og brúðkaupið stóð
þar 28. júlí sama ár.64 Meðal brúðkaupsgesta þá var Þor-
lákur Skúlason biskup á Hólum.
Eggert og Valgerður eignuðust saman 14 börn, en aðeins
5 dætur lifðu föður sinn og m. a. voru tveir synir þeirra
komnir yfir tvítugt þegar þeir dóu.65 Af einhverjum ástæð-
um hefur Valgerður ættfært börn sín, því að hún sór og tvær
konur með henni, að Eggert væri sannur faðir þeirra.66 Þetta
gerðist um líkt leyti og Ragnheiður dóttir Brynjólfs biskups
sór sinn fræga eið svo að af þessu geta menn séð að slíkir
eiðar voru ekkert einsdæmi. Valgerður lifði mann sinn og dó
1702. Enn er í kirkjunni á Skarði stóll Valgerðar með ártal-
inu 1667, sem hefði getað verið smíðaður þegar Eggert ein-
hvern tímann á þessum árum lét endursmíða Skarðskirkju.
Gaman finnst okkur að sjá hve margar kýr Eggert er
sagður hafa haft á búum sínum. Það sýnir með fleiru að kýr