Breiðfirðingur - 01.04.1990, Blaðsíða 54
52
BREIÐFIRÐINGUR
lengur rakin, því að fáar ættartölubækur ná fram yfir svarta-
dauða.“ Ætt Lofts var mönnum lengi hulin. Lengi var talið
að Guttormur Örnólfsson á Staðarfelli væri faðir hans, og
héldu því fram t. d. meðal annarra Magnús sýslumaður
Ketilsson, Jón Espólín og Bogi Benediktsson.27 Það var
aftur á móti Jón Pétursson háyfirdómari, sem fyrir réttri öld
benti á „að faðir Lofts ríka var Guttormr son Orms lög-
manns Snorrasonar, er kominn var af Þorsteini Ingólfs-
syni“.28 Hér er í fyrsta sinn ætt Lofts ríka rakin til Skarð-
verja hinna fornu og hefur það verið haft fyrir satt síðan.
Fyrir þessu eru ekki traustar skjallegar heimildir, en Skarð
er Loftur talinn hafa fengið með réttum erfðum. Hér er með
öðrum orðum bláþráður á Skarðsættinni, en það er einkum
eignarhaldið á jörðinni, sem rennir stoðum undir þá ætt-
færslu að Loftur hafi verið sonur Guttorms Ormssonar. Hér
í Bændahætti er Loftur sagður hafa keypt Skarð fyrir: „óðul
austur á landi“, en sagnir skáldsins um Loft eru mjög óljósar.
Loftur var mjög kynsæll maður og getur fjöldi manna
rakið ættir sínar til hans. Eftir varðveittum skjölum hefur
Einar Bjarnason rakið heimildir um hann.29 Loftur er talinn
fæddur um 1375 og voru því liðnar um þrjár aldir frá fæðingu
hans er Bændaháttur var ortur. Kona Lofts var Ingibjörg
Pálsdóttir frá Eiðum og eru þau talin hafa gifst um 1410. Þar
gæti verið komin skýring á sögninni í Bændahætti hvernig
Loftur eignaðist Skarð. Meðal annarra barna hans var Ólöf
ríka, sem hér getur síðar.
Þar með er ekki sögð öll sagan um ástir Lofts. Björn á
Skarðsá segir svo um hann í Skarðsárannál við árið 1436, en
Björn taldi þau ranglega hafa látist það ár. Þau létust 1432:
Deyr Loptur ríki Guttormsson og Ingibjörg húsfrú hans,
mikið skáld, átti 80 stórgarða, en dó í slæmu koti. Hann
átti eptir 4 börn: Þorvarð og Eirík, Ólöfu og Sophíu,
einnig 3 sonu laungetna: Orm, Skúla og Sumarliða,
hverjum hann gaf 9 hndr. hndr. í löggjafir sínar. Kristín
Oddsdóttir var þeirra móðir, sem Loptur hélt við mjög
frekt, að sinni konu lifandi, Ingibjörgu Pálsdóttur.