Breiðfirðingur - 01.04.1990, Blaðsíða 149
BREIÐFIRSKIR SKEMMTUNARMENN
147
Einar, og tók hann heldur undir það að styrkja Einar og
hvetja. En heillin mín góð! Aðalhvötina vantar, nf. hvort
þeir mættu eiga von á nokkurri þóknun. Hún hverki þyrfti
né ætti að vera mikil, t. a. m. ríflega borgað fyrir skriftina.
Mér vitanlega er ekki annað eftir Einar sál. það er nokkru
nemi nema tækifærisvísur, flest kímni um þessa „koryfea“7
hans, Hall í Miðskógi,8 Jóhann stríðsmann, Gunnu hélu,
Halldóru Sigfúsdóttur,9 og svo um ýmsa atburði er urðu í
sveitinni. Yrði nú liðlega sagt frá tilefni vísanna og persón-
unum, yrði það ekki óskrýtilegt, því allt voru þetta merkis-
persónur í sinni röð, að ógleymdum Hannesi stutta Dala-
skáldi.
Asmundur og Einar eru báðir hagmæltir og ættu því að
hafa dálítinn smekk. Ásmundur er velskrifandi og Einar
læsilega. Ef ég kemst til skal ég leggja með vísur sem þeir í
7. Slanguryrði sem séra Guðmundur krækir sér í til að krydda með frásögn-
ina, á dönsku karyfœ, einkum í spaugi, forsprakki, oddviti, forkólfur, sá
sem ber af, skarar fram úr öðrum.
8. Skopkveðlingar eftir Harastaða-Einar um Hall í Miðskógi eru í grein
eftir Theodoru Thoroddsen, sem hún kallar: „Brot úr bernskuminning-
um. Karlarnir á Kvennabrekku,“ í Almanaki Hins íslenzka þjóðvina-
félags um árið 1930, bls. 95-96.
9. Um þá koryfea í Breiðafjarðardölum, sem séra Guðmundur nefnir svo,
munu fáir vera sannfróðir nú á tímum. Stök vísa sem getur þeirra í hálf-
kæringi, allra nema Halls og Halldóru, er í Lbs. 1630 4to undir heitinu
Flakkaravísa, eignuð Harastaða-Einari:
Vergang þróa. Fer um frón
frækinn glófa raftur
Hannes mjóa hróðrarflón,
Héla og Jóhann kjaftur.
Svofelld skýring er með vísunni í handriti: „Hannes stutti Hannesson,
mesti glímumaður og kvæðamaður (d. 1894), Gunna héla, flökkukind í
Breiðafjarðardölum, Jóhann stormur eða stríðsmann eða kjaftur,
alræmdur flökkukarl í Dalasýslu, einn af fylgjurum Jörundar hunda-
dagakóngs."
Halldóru Sigfúsdóttur er lauslega getið í riti Ingunnar Jónsdóttur,
Gömul kynni, bls. 69. Hún var úr Dalasýslu, kölluð Haukadals-Halldóra
norður í Hrútafirði þar sem Ingunn ólst upp.