Breiðfirðingur - 01.04.1990, Blaðsíða 23
RÓÐRARVÉL GUÐBRANDS ÞORKELSSONAR
21
Bréf þetta þarfnast ekki skýringa, en það ber greinilega
með sér, að Guðbrandur var í þingum við Eyjólf bróður sinn
varðandi róðrarvélina, eins og fyrr hefur verið vikið að. -
VII.
Næst gerist það, að alþingi barst „Beiðni frá Guðbrandi
Þorkelssyni í Ólafsvík um styrk til að fullgera róðrarvél
sína.“ - Hún var rituð 12 júlí 1901 og fer hér á eftir:
„Eins og nú víða mun vera orðið kunnugt hefi ég síðastliðin
18 ár verið að berjast fyrir að geta framkvæmt hugmynd
mína um það að smíða megi vél til að knýja áfram báta og
þannig spara þann kostnað og erfiði, er útheimtist til þess að
komast á sjóinn á árum.
Þar sem lífskjör mín hafa hingað til verið næsta erfið og ég
allajafnan hefi orðið að hafa mig allan við að hafa ofan af
fyrir mér og fjölskyldu minni hefir öll framkvæmd hug-
myndar minnar strandað á fátæktinni þangað til margir góðir
menn í Neshreppum, sem höfðu tiltrú til hugmyndar
minnar, skutu saman á síðastliðnu ári um 250 krónum og
Sýslunefnd Snæfellsness- og Hnappadals lagði sama ár úr
sjóði sínum 50 krónur, af því hún hafði þá fengið upplýs-
ingu hinna bestu og vitrustu manna sýslunnar um það, að
hugmynd mín mundi á góðu viti byggð, vera framkvæman-
leg og hafa ómetanlegar, dýrmætar afleiðingar fyrir allan
sjávarútveg á opnum bátum. Mun oddviti sýslunefndar, sem
nú er þingmaður, geta staðfest þenna framburð minn.
Sömuleiðis hefi ég skýrt Tryggva Gunnarssyni bankastjóra
og Eyjólfi kaupmanni Þorkelssyni, bróður mínum í Reykja-
vík, frá hugmynd minni, af því ég hygg, að þeir manna best
hér á landi hafi skynbragð á málinu, og munu þeir skýra hinu
háttvirta alþingi frá áliti sínu, ef það óskar þess.