Breiðfirðingur - 01.04.1990, Blaðsíða 172
170
BREIÐFIRÐINGUR
kappslætti, upplestur, söng og leikþætti svo eitthvað sé
nefnt. Á einni kvöldvöku, sem haldin var að Laugum, var
leikinn þáttur úr Manni og konu á trépalli, sem kvenfélagið
hafði keypt og komið fyrir í sundlauginni. Par lék Theódóra
Hjálmar tudda, Svava á Kýrunnarstöðum séra Sigvalda og
Ólafía Hj artardóttir í Knarrarhöfn lék Finn. Oft kom kunn-
átta Theódóru í harmonikkuspili í góðar þarfir í kvenfélags-
starfi hennar og þá var hún hrókur alls fagnaðar með nikk-
una á lofti.
Þau mál sem Theódóra beitti sér einkum fyrir á vettvangi
kvenfélagsins tengdust börnum, kirkju og félagsmálum
kvenna. Fyrir atbeina hennar gerðist kvenfélagið aðili að
Kvenréttindafélagi íslands og Kvenfélagasambandi íslands.
Hún hafði forgöngu um að haldnar voru jólatrés- og barna-
skemmtanir og sjálf bauð hún börnum af nágranna-
bæjunum til sín hvern jóladag. Þá var gengið í kringum
jólatré, sungið og farið í leiki.
Eins og prestsdóttur sæmdi lét Theódóra málefni sóknar-
kirkju sinnar til sín taka. í fundargerðabók kvenfélagsins má
sjá tillögur frá henni um kaup á ýmsum munum fyrir
Hvammskirkju, eins og altarisdúk, altarisklæði og dregli á
kirkjugólfið, svo dæmi séu nefnd. Þá átti hún hugmyndina
að gerð blóma- og trjágarðs við kirkjuna. Það var í upphafi
siður þeirra kvenfélagskvenna í Hvammssveit að byrja og
enda hvern fund með söng og voru þá gjarnan sungnir
sálmar. Þessi siður átti rót að rekja til Theódóru. Þá kemur
fram í fundargerðabók sú hugmynd hennar að ein félags-
kona lesi upp sögu eða ljóð á fundum kvennanna og yrðu
síðan umræður um efnið að lestri loknum. Þetta var gert á
allnokkrum fundum, en virðist ekki hafa fest rætur til lang-
frama.
Á fundum kvenfélagsins var nokkuð rætt um byggingu
elliheimilis í Dölum og á því máli, eins og raunar mörgum
öðrum, hafði Theódóra mjög ákveðnar skoðanir. Hún vildi
láta byggja elliheimili í Búðardal, bæði vegna þess að það
var miðsvæðis í sýslunni og svo hins að þar sat læknir, sem