Breiðfirðingur - 01.04.1990, Blaðsíða 14
12
BREIÐFIRÐINGUR
Ólafsvík 20. mars 1900.
Kæri bróðir,
Ég bið þig fyrirgefa, að ég ónáða þig með bréfi þessu. Ég
þakka góða leiðbeiningu með gömlu vélarhugmyndina hjá
B. Sigurðssyni - ég hef nú að mestu hætt við hana, því eftir
nákvæmari athuganir sé ég, að hún er að mestu óhæf. Ég hef
nú tekið aðra upp frá allt annarri hlið, sem ég ætla að láta
smíða, og er farinn að fá frjáls fjársamskot sjómanna til
frumsmíðisins. En með því að ég get ekki gjört áætlun um
kostnaðinn, þá er ég að leita mér frjálsra samtaka almenn-
ings til framkvæmdar vélinni, ef ske mætti hún yrði að tilætl-
uðum notum.
Ég hef sýnt hana ýmsum hagleiks- og hugvitsmönnum og
sýnist þeim, er skilningi koma að, að hún hljóti að ná að
mestu ákvæði því, er henni er ætlað. Ég hef ráðið mér góðan
smið, er nú byrjar á verki sínu hvern dag. Ég hef skrifað
herra Tryggva Gunnarssyni, ég þykist vita, að hann segi að
vanti nægar upplýsingar, svo hann geti gjört sér afskipti af
því. Ég hef náð hér saman hátt upp í 2hundruð krónur, og
það legg ég á stað með í þeirri góðu von og trausti, að menn
hér nærri mér láti málefnið ekki falla niður, sjáist að ekki
standi á öðru en litlu fjárframlagi.
Ég er að hugsa um að biðja þig gjöra svo vel og hjálpa
dálítið þessu fyrirtæki, helst að fá frjáls samskot manna, og
ef þú vildir halda einhvern lærdómsríkan fyrirlestur. Ég bið
þig að fyrirgefa frekjuna.
Ef vél mín lukkast þá er augnamið mitt, að smíði hennar
geti orðið innlend atvinnugrein og not hennar framleiði
mannsparnað og minnki strit sjómannsins og gjöri sjóferðir
hættuminni og meir ákveðnar eftir tíma- og vegalengd. - Ég
lifi í þeirri góðu trú, að ég muni bera sigur úr bítum, því þörf
sjómannsins hér knýr mig áfram, því fólk frá landinu
streymir hér að sér til atvinnu og bjargar, því að í Breiðu-
bugt má oftast fá nógan fisk, og stærð hennar er, að hún
rúmar mörgum sinnum meiri bátaflota en hér er nú. Sá
bátafloti, sem hér er, er ekki meiri en fyrir þá sjómenn sem