Breiðfirðingur - 01.04.1990, Blaðsíða 102
100
BREIÐFIRÐINGUR
kennslu. Síðast en ekki sízt verður hans minnzt sem yfir-
manns kirkjunnar, þar sem árvekni og brennandi áhugi,
drengskapur og góðvild voru ótvíræð einkenni hans í
störfum.
Kona sr. Ásmundar var Steinunn Magnúsdóttir á Gils-
bakka í Borgafirði. Sr. Ásmundur þjónaði Helgafellspresta-
kalli aðeins í 4 ár, en minningin geymist þó um þjónustu
hans hér í hugum þeirra, er til þekktu og þeirra hjóna
beggja, því vinsældir þeirra voru miklar hér. Og hér stóð
þeirra fyrsta heimili. Ógleymanleg áhrif hefur vera hans
hér í Stykkishólmi haft á líf hans og störf. Um það segir
hann sjálfur m.a.:
„Ein mynd er mér hvað ríkust í huga frá fyrsta prest-
skaparári mínu við Breiðafjörð. Hús mitt stóð uppi á höfða,
og var þaðan dýrleg útsýn yfir fjörðinn og fjallahringinn. í
blíðviðrinu á sumarkvöldum kom fólkið úr húsunum fyrir
neðan og settist upp á höfðann til þess að horfa á sólina nálg-
ast hafflötinn, hvíla andartak skjálfandi á sjónum, hverfa
síðan og breiða undraljóma yfir allt vesturloftið. Earna undu
saman um stund í heilagri kyrrð náttúrunnar ungir og
gamlir, glaðir menn í broddi lífsins og beygðir undir oki
þess, og virtu fyrir sér sömu fegurðina og nutu yndis hennar,
það var eins og þeir sæju þar í skuggsjá eilífðarvonirnar
verða að veruleika, fölt endurskin birtunnar af því, sem ekki
sést.“
Þetta var ein af minningum sr. Ásmundar héðan úr Stykk-
ishólmi og oft minntist hann þeirra ára er hann átti hér og
hlýhugur hans til fólksins hér duldist engum.
begar sr. Ásmundur var farinn héðan austur að Eiðum,
kom hingað frá Hvammi í Dölum sr. Ásgeir Ásgeirsson og
þjónaði hér aðeins í eitt ár. Sr. Ásgeir var fæddur að Arn-
gerðareyri á Langadalsströnd, sonur Ásgeirs bónda þar og
hreppstjóra Guðmundssonar og konu hans Margrétar Jóns-
dóttur. Hann starfaði fyrst sem kennari í heimabyggð sinni
og einnig sem skólastjóri á ísafirði og síðar prófastur Dala-
manna um langt skeið. Það má segja, að hann hafi verið