Breiðfirðingur - 01.04.1990, Blaðsíða 179
NÍRÆÐUR JÓNAS JÓHANNSSON
177
aðarskóla. Hann tók m.a. að sér að rista ofan af fyrir bændur
eða grafa skurði og stundum réð hann sig í vetrarvinnu.
Kaup var lítið á þessum árum og flestir áttu erfitt með að
borga. Haustið 1920 fór hann á Bændaskólann á Hvanneyri
og var þar tvo vetur, brauðskráðist þaðan vorið 1922. Lítil
verkleg kennsla var þá við búnaðarskólana, svo Jónas fór til
Guðmundar Jónssonar á Skeljabrekku og var þar um tíma,
en fékk síðar um vorið vinnu hjá Búnaðarsambandi Borgar-
fjarðar, þar fékk hann æfingu í vinnu með hestum. Þessi
tími, þótt stuttur væri, kom sér vel síðar.
Magnús Friðriksson var þá formaður Búnaðarsambands
Dala og Snæfellsness og réð hann Jónas í jarðræktarvinnu til
sambandsins. Vinnan byrjaði snemma vors, þegar veður
leyfði, og stóð fram á haust, með mánaðarhléi um túnaslátt-
inn. Búnaðarsambandið átti dráttarhestana og þau tæki sem
með þurfti, plóg og herfi. Jónas fór með hestana á milli
bæja, en bændur sáu um flutning á tækjum. Stundum hafði
hann ungling sér til hjálpar. Samvinna þeirra Magnúsar og
Jónasar var góð, enda báðir áhugasamir og skilningsríkir á
þörfina fyrir aukna ræktun. I þessari vinnu kynntist Jónas
fjölda fólks, því hann var mörg sumur í þessu starfi og fór oft
um allt sambandssvæðið. Þá komst hann að því hversu gífur-
legur munur var á ræktunaraðstöðu bænda. Sums staðar var
ekki hægt að stækka túnin, því að það vantaði framræslu;
annars staðar voru þurrir móar. Far sem heyskaparaðstaða
var góð og túnin stór voru búin stærri, heyin meiri og bygg-
ingar reisulegri. Þurrkun landsins varð ekki algeng fyrr en
skurðgröfur komu í lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Þá
komu líka kraftmiklar vélar til jarðvinnslu, svo að hestarnir
fengu frí frá þeim störfum. Þótt umferðarvinnan væri lær-
dómsrík og að mörgu leyti skemmtileg þá var hún eigi að
síður þreytandi á milli. Jónas stóð sig prýðilega vel í þessu
starfi. Hann hugsaði um hag sambandsins og fór vel með
hesta og verkfæri. Hann gætti þess líka að bændur hefðu
gagn af vinnu sinni, leiðbeindi þeim og hvatti þá til framfara
og félagsstarfa.