Morgunblaðið - 18.03.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1983
13
Kirkjulist á Kjarvalsstöðum:
Pálmasunnu-
dagur - Bæn -
Á Valhúsahæð
Þrjú verk eftir Einar Hákonarson
„ÉG HEF málað trúarleg verk af þessu tagi áður, svo sem mynd er ég gerði
og gaf Skálholtsskóla, og einnig mynd er ég gerði fyrir jólablað Lesbókar
Morgunblaðsins,“ sagði Einar Hákonarson, listmálari, í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær, en hann er einn þeirra áttatíu listamanna, sem
gert hafa verk gagngert í tilefni kirkjulistasýningarinnar á Kjarvalsstöðum
um páskana.
„Myndirnar, sem ég sendi á sýninguna eru þrjár,“ sagði Einar ennfremur.
„Þá fyrstu nefni ég Pálmasunnudag. Það er tiltölulega hefðbundið verk, þar
sem meðal annars sést Kristur og pálmagreinarnar. í þeirri næstu, sem ég
nefni Bæn, er farið meira til nútímans, auk þess sem umhverfi myndarinnar
er fært til íslands, útibekkur í forgrunni en Hljómskálinn í baksýn. Þriðja
myndin nefnist svo Á Valhúsahæð, og þar er útgangspunkturinn sá sami og
Steinn Steinarr notar í kvæði sínu, en þaðan hef ég tekið nafn á myndina.
Myndirnar eru því nokkuð hver með sínu sniði, en að öðru leyti eru þetta
hrein expressionisk verk í þeim stíl sem ég mála.“
— Hvað olli því að þú ákvaðst
að senda verk inn á þessa sýn-
ingu?
„Það hefur sjálfsagt meðal ann-
ars verið fyrir áhrif frá ráðstefn-
unni um „trú og myndlist" á sín-
um tíma, sem vakti mig til um-
hugsunar og varð mér mikil
hvatning í þessu efni.“
— Eru mönnum ekki settar
talsvert þröngar skorður, þegar
þeir taka sér fyrir hendur að mála
trúarleg eða kirkjuleg listaverk?
„f rauninni ætti það ekki að
vera svo, og auðvitað á trúarleg
eða kirkjuleg list að vera ná-
kvæmlega „frjáls" og öll önnur
list. En hér kemur hins vegar inn
í, að hér á íslandi ríkir ótrúlega
mikil þröngsýni í sambandi við
list af þessu tagi. Fólk er svo mjög
á valdi hugmynda um „hinn
danska Krist“, eins og sumir vilja
nefna það, það er Kristur þarf að
hafa ákveðið útlit, klæðast
ákveðnum fötum og svo framveg-
is, og hið sama á við um önnur
efni. — Ég varð til dæmis var við
það í sambandi við myndina sem
ég gerði fyrir Lesbókina fyrir jól-
in, að hún hneykslaði marga
vegna stellinganna á fótum Maríu,
en myndin sýnir Maríu með Jesú-
barnið. Þarna fannst fólki með
öðrum orðum að María þyrfti að
sitja í ákveðinni stellingu til að
vera boðleg, þótt stellingar á borð
við þá sem ég valdi henni hafi ver-
ið taldar þóknanlegar á ýmsum
tímum í ýmsum löndum áður!
Viðhorf af þessu tagi eru þó
vonandi á undanhaldi hér á landi,
og mér finnst þetta framtak, þessi
kirkjulistasýning á Kjarvalsstöð-
um, vera til mikillar fyrirmyndar.
Þessi sýning á vafalaust eftir að
skila mjög jákvæðum árangri,
jafnt fyrir kirkju sem listamenn,"
sagði Einar að lokum.
- AH
Auglýsing Flugleiða
brot á alþjóðareglum
— segir Samband íslenzkra auglýsingastofa
um auglýsingu Flugleiða í Mbl. 8. marz sl.
SIÐANEFND Sambands íslenzkra
auglýsingastofa hefur fjallað um
kæru auglýsingastofunnar Gylmis
fyrir hönd Farskips hf. vegna auglýs-
ingar Flugleiða í Morgunblaðinu
þann 8. marz síðastliðinn. Telur siða-
nefndin að í auglýsingunni hafi verið
brotið f bága við 4. 5. og 7. grein
siðareglna Alþjóða verzlunarráðsins.
Auglýsingin var unnin af auglýs-
ingastofunni Ólafur Stephensen,
auglýsingar almannatengsl.
{ frétt frá Sambandi íslenzkra
auglýsingastofa segir, að siða-
nefndin hafi óskað þess við Flug-
leiðir og Farskip, að félögin virtu
gildandi siðareglur í auglýsingum
sínum framvegis og hefði það verið
samþykkt af beggja hálfu.
f áðurnefndum greinum siða-
reglna Alþjóða verzlunarráðsins er
meðal annars kveðið á um, að aug-
lýsingar skuli ekki innihalda stað-
hæfingar eða myndir, sem líklegar
eru til að villa um fyrir neytandan-
um með því að gefa eitthvað í skyn,
halda eftir nauðsynlegum upplýs-
ingum, eða nota tvíræða framsetn-
ingu eða ýkjur; að tölfræðilegar
upplýsingar skuli ekki notaðar
þannig, að þær gefi í skyn annað
en það, sem er sannleikanum sam-
kvæmt; sé samanburður notaður í
auglýsingum skuli þess gætt, að
hann sé ekki villandi; að i auglýs-
ingum skuli ekki hallmæla neinu
fyrirtæki eða samkeppnisvöru,
hvorki beint né með því að gefa
ókosti í skyn.
Júgóslavía:
Boða herta ritskoðun
Beljpað, 14. mars. AP.
HATTSETTIJR rádamaður í júgóslav-
neska kommúnistafiokknum, Dimce
Belovski, sagði í gær að þarlendir
fjölmiðlar hefðu ritað heldur óvarlega
um flokkinn að undanfórnu og stjórn
hans á landinu. Gaf Belovski í skyn
að yfirvöld í landinu hefðu í hyggju
að herða ritskoðun og eftirlit með
fjölmiðlum.
Yfirlýsingar Belovskis eru þær
nýjustu af mörgum svipuðum sem
komið hafa frá ráðamönnum að
undanförnu. Ekki var greint nánar
með hvaða hætti blöðin höfðu stig-
ið yfir markið frekar en í fyrri til-
vikum.
Ráðamenn hafa verið gagnrýndir
meira en venjulega í júgóslavnesk-
um blöðum síðustu vikurnar og
stafar það m.a. af versnandi efna-
hag landsins. Belovski sagði það
ekki koma til mála að hugmynda-
fræðilegir andstæðingar stjórn-
valda fengju að vaða uppi á síðum
blaða.
Einar Hákonarson við verk sín þrjú: Pálmasunnudagur, Bæn og Á Valhúsahæð. Morgunbia«iA/Krisiján Eiursson.
Laxveiöar Færeyinga í sjó
MEÐ GREIN Eyjólfs Konráðs
Jónssonar, alþingismanns, „Land-
helgisbaráttunni er ekki lokið“
(Mbl. í gær), eru birtar þrjár þings-
ályktanir: um Hatton-Rockallsvæð-
ið, hafsbotnsréttindi á Reykjanes-
hrygg og laxveiðar Færeyinga í sjó.
Síðastnefnda þingsályktunin er birt
eins og hún hljóðaði í upphaflegum
tillöguflutningi, en utanríkismála-
nefnd færði hana í þann búning,
sem hún var endanlega samþykkt í.
Þingsályktunin, eins og Alþingi
samþykkti hana, hljóðaði svo:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að gera ráðstafanir til að
- leiörétting
stöðva veiðar Færeyinga á Atl-
antshafslaxinum í hafinu í sam-
ræmi við 66. gr. hafréttarsáttmál-
ans og hafa um það samráð við önn-
ur upprunalönd laxastofnsins, enda
verði að því stefnt, að allar laxveið-
ar í sjó verði bannaðar á Norður-
Atlantshafi."
ú
D
$
áfSUTTW
Móna
no. 2 6ooo 48.00 115 gr.
no. 412000 96.00 230 gr.
no. 6 i6ooo 128.00 305 gr.
no. 8210 00168.00 405 gr.
no. 10315 0°252.00 610 gr.
leyft
verð
Okkar
verð
75 gr.
Kokkamir
kynna
ídag
Nói
no. 2 4000 32.00
no. 3 79°o 64.00 155 gr.
no. 4 '3ooo 104.00 250 gr.
no. 5 18900 151.00 370 gr.
no. 6 336 00 269.00 620 gr.
TW .Lamba
Hamborgara
hrygg
50
pr.kg.
Leyft verö
148.00
Sumir
versla dýrt-
aðrir versla hjá okkur
Opiðtil
kl. 7 í kvöld
og til hádegis / t ^
á laugardag