Tíminn - 24.12.1943, Page 30
30
T í M I N N
0íetuþór ^Dótfcatðon:
xáfœxxtx x
*pubux&vext
Fráfæru^agurinn var einn af merkis-
dögum sumarsins í mínu byggðarlagi. Það
var hlakkað til hans dagana á undan, eins
og til jólanna. Tilhlökkun eldra fólksins
var bundin við vaxandi björg í búið, sem
þá var oft þörf á þeim tíma árs, en bkk-
ar unglinganna við smalamennsku yfir-
setulambanna og fleira.
Nú eru liðin 15 ár, síðan ég var síðast
við fráfærur. — Ætla ég því að rifja upp
ýmislegt frá fráfærunum, eins og þær voru
framkvæmdar í mínu byggðarlagi.
Fyrst, þegar ég mundi eftir, var stíað,
eins og það var kallað. Var það undirbún-
ingur undir fráfærurnar og stóð hálfan
mánuð, og var gert á þann hátt, að ærnar
og lömbin var rekið í rétt á kvöldin, lömb-
in tekin frá ánum yfir nóttina og byrgð
í húsi, sem stóð við réttina og var kallað-
ur stekkur, en umhverfið kringum réttina
var kalað Stekkja-tún eða Stekkja-ból. Það
var föst venja að vakna snemma á stekk-
inn, eins og það var kallað. Mikið var eft-
irsótt af unglingum að mega fara með
eldra fólkinu og vera viðstaddur, þegar
lömbunum var hleypt til ánna, við stekk-
inn. Það var mikill óður í ánum kringum
stekkinn, þegar komið var þangað á
morgnana, en þó tók yfir, þegar lömbun-
um var hleypt út, og allt fór að jarma
sig saman. Og það var nú einmitt þetta,
sem við krakkarnir sóttumst eftir að heyra,
hávaðann á stekknum og sjá ærnar taka
lömbin sín. Áður en lömbunum var hleypt
til ánna, var mjólkað það bráðasta úr
þeim. Eftir að ég var orðinn nokkuð vax-
inn unglingur, lagðist niður að stía, nema
kannske eina eða tvær síðustu næturnar
fyrir fráfærur. Ekki er mér fyllilega ljóst,
hvers vegna var stíað. Þó held ég að það
hafi verið þrennt,7 sem gerði það að verk-
um, og mun aðalástæðan hafa verið, að
það var hægara að halda ánum í heima-
högum til fráfærna á daginn. Var auðveld-
ara að gæta þeirra, en stekkjabólið
geymdi þær á nóttunni, og var þá kallað
að ærnar hlypu um stekk. í öðru lagi var
stíað til þess að fá mjólkina úr ánum, og
í þriðja lagi var talið, að lömbunum færi
betur fram, ef stíað var. Ekki var frá-
færudagurinn alveg ákveðinn dagur, en
oftast var hann um sömu mundir, frá
ellefta sunnudegi í sumri til ellefu vikur
af sumri. Þá var búið að fara með ullina
til kaupstaðar, og næsta skrefið var þá
fráfærurnar, áður en slátturinn byrjaði,
sem venjulegast var þá tólfta laugardag-
inn í sumri.
Ekki hafði allur almenningur ástæður
til að hafa mikla tilbreytingu í mat frá-
færudaginn. Þó var á þeim bæjum, sem
ég þekkti til, gefin rúsínuvellingur, og á
síðustu árum fráfærnanna var haft kaffi
og sætabrauð, áður en smalamennskan
hófzt.
í mínu byggðarlagi voru fjórir til fimm
bæir saman með fráfærurnar. Voru lömb-
in setin og rekin sameiginlega af öllum
bæjunum á staðinn, þar sem yfir þeim var
setið.
Af stekkjabólinu eða fráfærustaðnum
var um hálfs annars klukkutíma gangur
þangað, sem lömbin voru setin. Var það
í svo kölluðu Breiðabólstaðarfjalli,' sem er
afréttarland Breiðabólstaðarbæja. í því
fjalli er skógur töluverður og hlýlegt um-
hverfi. Voru lömbin vöktuð þar á daginn,
en að nóttunni byrgð í svo kölluðum
Rannveigarhelli. Kletturinn, sem hellirinn
gengur inn í, heitir Hellisklettur. Er hann
á að gizka 20—30 metra hár, en 100 metr-
ar á lengd eða þar um. Er það neðsta
klettabelti í Breiðabólstaðarfjalli milli
Rauðár og Langakletts. Við vesturenda
klettsins er stórvaxnasti skógur í fjallinu.
Var þar síðast skógað, nema það sem hefir
verið grisjað síðan, um 1904. Þá var þessi
torfa, sem nú ber mestan skóginn, að heita
mátti alveg slegin, svo að varla sást skóg-
arangi þar. Nú munu hæstu hríslurnar
vera 5—7 metra háar. Uppi á klettinum
er sléttur flötur með talsverðri skógar-
torfu. Norðan við klettinn rennur á, sem
heitir Hellisá. Beint á móti dyrum Rann-
veigarhellis er foss í ánni, um 10 metra
frá dyrum hans. Var það mikið yndi fyrir
okkur krakkana, kvöldið, sem við fengum
að reka lömbin, að standa á klettinum
gegnt fossinum og horfa á hvítfyssandi
vatnið, þar sem það féll í bylgjum niður
klettinn. En vissara þótti, að einhver full-
orðinn stæði við hlið okkar, til þess að
gæta þess, að við steyptum okkur ekki
ofan í gljúfrið.
Rannveigarhellir gengur inn í austur-
enda Helliskletts. Neðan við hellinn er
brött grasbrekka og heitir Hellisból. Neðst
í bólinu tjölduðu þeir, sem yfir lömbunum
sátu, en sumum fannst það nokkuð ógæti-
legt, því að vel gátu steinar losnað úr
klettinum og hrapað á tjaldið. Víðastur er
Rannveigarhellir að framan, líklega um
5 metra, og kringum mannhæð fremst, en
fðr fljótt lækkandi. Mætast veggir hans
og hvelfing í mjóu opi, er maður má vel
smjúga í gegnum með því að skríða. Er
það op, sem næst 3—4 metra frá dyrum.
Innan við þessi þrengsli, sem eru rúm
alin á lengd, hækkar hellirinn aftur og
víkkar. Getur maður um það bil staðið
uppréttur þar inni, en ekki man úg vel,
hvað þessi hluti hellisins er víður eða
langur, en gæti þó trúað, að hann væri
vel faðmur á hvorn veginn. Þéssi innri
hluti hellisins heitir baðstofa. Út í annan
hliðarvegginn gengur stallur. Sú þójðsaga
hefir orðið til, að þessi stallur sé rúm-
stæði skessu, sem einu sinni átti að hafa
byggt þennan helli, og hafi hún meitlað
stallinn í bergið. Á hellirinn að bera nafn
skessunnar.
Önnur þjóðsaga er um það, að hellirinn
hafi fengið nafn af stúlku, sem Rannveig
hét. Átti hún að hafa gert eitthvað fyrir
sér og hafzt svo við þarna í hellinum um
tíma.
Ekki þótti allt hreint við þennan helli,
og óráðlegt þótti að moka hann út, því
að sá átti vísan fjárfelli, sem gerði það.
Fyrir því voru fleiri en eitt dæmi. Rétt
neðan við Rannveigarhelli er lítill skúti
undir klettinn. Þar sváfu þeir um tíma á
nóttum, sem sátu yfir lömbum í Breiða-
bólstaðarfjalli, en svo höfðu þeir erfiða
drauma, að ekki þótti fært að sofa þar.
Úr Rannveigarhelli áttu að liggja opin
göng í helli vestur í Fellsfjöllum, sem
heitir Brúsi. Er álíka vegur milli bessara
hella og úr Hveragerði að Elliðaám. Til
sannindamerkis um þetta var talið, að
köttur hafi sézt fara inn í Brúsa og koma
út um Rannveigarhelli. En svo átti hann
að hafa komizt neðarlega og næst því
heitasta, að rófan var mjög sviðin á hon-
um.
Fráfærudagurinn var fyrst og fremst
valinn með tilliti til þess, að veðrið væri
gott. Það þótti ófært að byrja fráfærur
í rigningu eða rigningarlegu. Rigning eft-
ir fráfærurnar orsakaði það, að ærnar
misstu nyt og var skituhættara.
Fráfærudaginn var byrjað að smala án-
um til fráfærna úr miðjum degi. Allir,
sem gengið gátu, fóru til réttarinnar, eng-
inn var svo vesall, ef hann á annað borð
komst ,í réttina, að hann gæti ekki veitt
einhverja aðstoð.
Oft varð mikill eltingaleikur við að
koma fénu í réttina. Lömbin vildu ekki
fylgja hópnum inn og þutu frá réttinni.
Það gat tekið marga klukkutíma að ná aft-
ur í lömbin, og það kom fyrir, að taka
varð eitt og eitt „á hundurn" og það átti
nú við okkur strákana í byggðarlaginu.
Því fylgdi svo mikill hávaði og læti, sem
var að skapi okkar uppivöðsluára. Þegar í
réttina var komið, gengu húsbændur éða
aðrir ráðamenn heimilanna um réttina, og
athuguðu lömbin, hvað mörg af þeim væru
fráfærandi, þau máttu helzt ekki vera
yngri en fjögurra vikna, til þess að hægt
væri að færa þau frá. Þó kom það fyrir, eð
þriggja vikna lömb, þroskamikil, voru færð
frá, en þau voru alltaf lélegri af fjalli.
Þegar fráfærulömbin höfðu verið valin,
var hraðað sér að komast af stað með
þau. En fyrst varð þó að hefta þau með
mjúku ullarhafti á framfótum. Var þa'5
gert til þess að hægara væri að koma þeim
frá réttinni og losna við mesta eltinga-
leikinn við þau. Jafnóðum og lömbin voru
heft voru þau sett í dilk, sem var við réts -
ina. Meðan lömbin voru dregin, voru aðrir
að týgja hestana handa þeim, sem áttu
að reka lömbin. Það gerðu svo margir, sem
hesta höfðu, og það kom víst fyrir að
krakkar tvímenntu. Þegar þessum undir-
búningi var lokið, var haldið af stað. Og
nú hófst eltingaleikurinn við lömbin. Var
hann oft erfiður fyrsta sprettinn frá rétt-
inni. Jafnóðum og lömbin þreyttust í höft-
unum voru þau tekin af þeim og flest
höfðu þau stutt farið, áður en þau voru
orðin haftlaus. Sól var runnin fyrir stundu,
þegar komið var með lömbin í fjallið, þar
sem átti áð sitja þau.
Þegar búið var að byrgja lömbin, var
þeim, sem lömbin áttu að sitja, hjálpað
til að tjalda og koma fyrir því, sem þeir
höfðu með sér. Var það einn maður af
hverjum bæ eða fjórir til fimm menn. Voru
þeir útbúnir með nesti til þriggja daga.
Þann tíma voru lömbin setin, en rekin á
fjórða degi lengra upp í fjallið. Valið var
það bezta af mat, sem til var í húsinu,
handa þeim, sem yfir lömbunum sátu.
Einu sinni, þegar ég sat yfir, óskaði ég
eftir að fá soðköku með mér í nesti.
Þetta var veitt. En í flutningnum höfðu
umbúðirnar bilað af kökunum, svo að þær
hröngluðust í loðnum hamppoka sitt í
hverju lagi. Þetta varð nú ekki þriflegur
matur eftir svona útreið, þó reyndi ég að
éta eitthvað af þeim, en svo mikla and-
styggð fékk ég á soðköku eftir þetta, að
ég mátti ekki sjá hana. Þegar þeim hafði
verið hjálpað til að búa um sig, sem yfir
áttu að sitja, voru þeir kvaddir með virkt-
um, óskað góðrar líðanar og ánægjulegs
lífs meðal fjallabúanna.
Aldrei var riðið eins hart í mínu byggð-
arlagi og fráfærukvöldið, þegar haldið var
heimleiðis úr Staðarfjalli (eins og það er