Tíminn - 24.12.1943, Qupperneq 52
52
T í M I N N
<«
GLEÐILEG JÓL !
Edinborti
sýndist sveitin í voða. Jafnframt hélt gos-
ið enn áfram í vestari eldstöðvunum, þó
að hraunrennsli væri þar þverrandi. Voru
nú tveir eldmekkir uppi. Huldu þeir norð-
urhvelið allt upp á miðjan himinn og sló
fram yfir byggðirnar til skiptis. Báðir
voru hlaðnir beiskum eiturgufum ,og þó
mátti þekkja þá sundur á lyktinni. Óþef-
urinn af vestari mökknum var áþekkur
því, þegar steinkol eru slökkt með keitu,
en hinn var svipaður svælu af brenndum
arfa eða slíi. Og eldurinn teygði hramm-
ana fram á báða vegu við sveitirnar, Síðu,
Meðalland og Landbrot, og ógnaði með að
hneppa þær inni milli hafsins og sín.
Eftir miðjan mánuðinn varð nokkurt hlé
á gosunum og árnar fóru að fika sig fram
úr hraununum. En þann 26. kom ein gos-
kviðan enn með jarðskjálftum, eldgangi og
öskufalli. Þornuðu nú vötnin upp að nýju
og hraunflóðið fossaði fram úr gljúfrum
Hverfisfljóts. Og nú kom upp gosmökkur
í suðurbrún Vatnajökuls, svo að enn var
von nýrra ógna. Nú var liðið að hausti og
nótt orðin löng. Jörðin var hulin ösku-
lagi, og undir því var grafin afkomuvon
bóndans. Enginn heyfengur eftir sumarið,
og horaðar allar skepnur, sem á lífi voru.
Og allt sumarið hafði ekki verið unnt að
sækja sjó, því að eiturmóðan bláa, huldi
hafið, svo að fiskimið fundust ekki, ef
fiskbein var þá til í sjó. En hvenær sem
hlé varð á eldunum, váknaði gróðurnál á
þúfnakollunum og von í brjóstum mann-
anna. En hvort tveggja kulnaði óðar aft-
ur. Og nú var komið haust og kolsvört ör-
vænting. Og á kvöldin lýsti eldurinn í
norðri og varp löngum, fáránlegum skugg-
um yfir svarta öskuna, sem renndi saman
í skafla með skrjáfandi, þurru hljóði. —
Við hljótum að taka undir með séra Jóni
Steingrímssyni og segja: „Það verður um
alla ævi allra stærsta forundran, að hér
skyldi á Síðu nokkurt lifandi hold af kom-
ast.“
* * *
En svo er það einn sunnudag um haust-
:««««:
Kaupmenn og kaupiélog!
Vér höfum samband við fyrsta flokks verk-
smiðjur í Bandaríkjunum og Kanada og get-
um útvegað flestar fáanlegar vörur beint frá
framleiðendum.
Athugið verð og skilmála.
Agnar Norðfjörð & Co. h.f.
Lækjargötu 4. — Sími 3183.
GLEÐILEG JÓL !
Prentmyndayerðin,
Ólafur Hvunndal,
Luuyavefj 1
GLEÐILEG JÓL !
Vélsmiðjan Héðinn h.f.
GLEÐILEG JÓL !
GLEÐILEG JÓL !
Verksmiðjan Sunna
Smjjörlíhisfierðin
„Svanur“
GLEÐILEG JÓL !
GLEÐILEG JÓL !
Heildverzlun
Jóns Loftssonar.
Vihurfélayið h.f.
IÐLNN
ið, að við heyrum klukkur hringja, eins
og í fyrstu. Og á vegunum heim að Kirkju-
bæjarklaustri sjáum við fólk á ferð. Það
er á leið til kirkjunnar í smáhópum, —
en stendur kyrrt lengi í einu og horfir
í norðaustur, heldur áfram, stanzar svo
aftur og horfir, eins og heillað, allt í sömu
átt. Hvaö er að sjá? Dálítinn regnboga-
bút milli fjalls og skýja — annað ekki. —
En friðarboginn hafði ekki sézt frá því
eldgosin hófust, — og nú vakti hann ó-
umræðilegan fögnuð, — þetta litfagra
tákn, sem Jahve setti í skýin til trygging-
ar því, að hann ætlaði ekki að tortíma
mönnunum.