Tíminn - 24.12.1952, Síða 47

Tíminn - 24.12.1952, Síða 47
Jólablað TÍMANS 1952 47 Svipmyndir Flutt af 9. síðu. Hermóði hét Jörundur og bjó á ísólfsstöðum á Tjörnesi. Eitt sinn sendi sýslumaöur svohljóðandi bréf til Jörundar: „Heiðraði Jörundur. Ég vildi ein ungis láta yður vita, að loftvogin er að stíga, og ísland er að leggja út. Virðingarfyllst. B. S.“ Jörundur skildi bréfið og brá við. Uppboðið á „Alfreð“. Ég var mjög hrifinn af Benedikt Sveinssyni sem andans manni. Það sópaði svo mjög að honum, þegar hann hóf máls, að það var ekki hægt að komast hjá að hlusta og veita þvi athygli, sem hann sagði. Sama var að segja um hann sem uppboðshaldara. Mér er minnisstætt uppboðið hér, þegar „Alfreð“ strandaði. „Alfreð“ var haustskip Örum & Wulffs og slitnaði upp af legunni hér í norðvestan stórviðri, mig minnir 1. nóv. 1893, og rak upp í fjöru rétt innan við kauptúnið. Þetta var 100 lesta skonnorta og var að verða fullfermd af haust- vörum, kjöti, gærum o. fl. þegar hún strandaði. Um uppboð þetta var kveðið: Skorti ei org né hljóðin hörð, hópurinn líktist svínahjörð, er sló í kringum valdsmann vörð. Var það fásén uppboðsgjörð. Vísa þessi mun vera eftir Ara Jochumsson, bróður Matthíasar skálds. Þá mátti heyra til gamla manns ins, enda kom það sér betur í það sinn sem oftar, að honum lá hátt rómur. í selaróðrum 36 vor. Selveiði, aðallega útselur, var mjög stunduð hér á hverju vori, og fékkst oft mikið af sel. Ég stund aði selaróðra í 36 vor meira eða minna, og gekk veiðin misjafnlega eins og gengur. Flest fékk ég á einu vori 52 seli — stóra og smáa. Selirnir voru allir skotnir, nema eitt vor, þegar töluvert af blöðru- selskóp kom með ís, og var geng- ið að þeim á jökunum og þeir rot- aðir með hnalli, sem til þess var hafður í selabátum. Síðustu árin má heita, að vöðuselur sjáist ekki. Það er með selinn eins og hákarl- inn, að hann er hættur að ganga upp að landinu, hvað sem veldur. Tveir bátar farizt á 65 árum. Þótt sjór hafi verið sóttur af hörku hér á öllum tímum árs, er furða, hve giftusamlega hefir tek- izt til. í þessi 65 ár, sem ég man gerla, hafa aðeins tveir bátar far- izt með áhöfn, en þar að auki tveir menn drukknað, sinn að hvorum bát. Árið 1887 fórst bátur með fimm mönnum í fiskiróðri. Formaöur- inn, Sigurður Árnason, var ókunn ugur hér, en vanur sjómaöur af Suðurlandi. Var álitið, að hann hefði ætlað sér að lenda á sandin- um viö botn Skjálfandaflóa, en ekki varazt, hve afar útgrunnt er við sandinn. Þegar þessi bátur fórst, voru allir aði'ir bátar frá Húsavík í róðrið og gekk þeim sæmilega að ná landi. Veðrið var norðaustan stórviðri og hríð. Hinn báturinn fórst með fjór- um mönnum 4. nóv. 1897. Formað- ur á honum var Gunnar Þórar- insson. Hann var að koma vest- an úr Naustavík, þar sem hann hafði verið að sildarleit með lag- net. Þeir fóru frá Naustavík að morgunlagi í suðvestan roki og reru inn að sandl í skjöli- bjarg- anna, ætluðu síðan að hleypa aust ur með sandinum og norður til Húsavíkur undan veðrinu. En þeir komust ekki fyrir Skjálfandafljóts ós vegna roksins og urðu að bíða vestan fljótsins fram á daginn, þar til veður tók að lægja. Þá héldu þeir af stað á nýjan leik. En veðrahléið varð ekki langt, aðeins meðan hann breytti um átt. Að örskammri stundu liðinni skall hann á með ofsaroki af norð- vestri. Báturinn mun hafa farizt nálægt Laxárósi, því að hann rak upp í Ærvíkina, sem er norðan við ósinn, og þar rak einnig lík for- mannsins. Nú er breytt til batnaðar. Eins og ég hefi þegar drepið á, hefir margt breytzt hér í Húsavík, en að því er snertir störf sjó- manna, finnst mér breytingin einna mest á því aö koma aflanum á land úr bátunum. Áður urðu menn að bera allan aflann í kassa- börum úr bátunum upp í sandinn eða fjöruna og þaðan upp á bakk- ann, þar sem tekið var á móti hon um til innleggs — þá ætíð flött- um — en nú eru fyrir löngu komn- ar bryggjur og tekið á móti fisk- inum þar. Einnig eru framfarirnar miklar á landi. Nú er nær hver blettur, sem ræktanlegur er í nánd kaup- túnsins, orðinn að túni. Þegar ég man fyrst eftir, var ekki annað i rækt hér en lítill kragi kringum kirkjujarðarkotin, en þau voru fjögur, og svo Húsavíkurtúnið, en það var stórt á þeim dögum að telja, en mikið af því í lélegri rækt. Og svo var Stórigarður, sem kall- aður var. Hann var mikið mann- virki í miðju kauptúninu — fer- hyrndur og um 100 faðmar á hlið — grjótgarður hlaðinn um hann á alla vegu. Tún þetta mun Páll Johnsen, sem var hér við verzlun Ö. & W. hafa látiö gera á árunum 1850—60. Fimm krónur þá og nú. Nú langar mig til að segja frá einu atviki, sem sýnir ástandið i peningamálunum og þær breyting ar, sem orðið hafa á því sviði. Ég var staddur í húsi hjá kunningja mínum. Var þar verið að lesa í gamalli dagbók, er merkur mað- ur — nú löngu dáinn — skrifaði. Á einum stað skrifaði hann: „í dag fékk ég bréf frá systur minni og fimm krónur að gjöf.“ Þegar þessi setning var lesin, fór unga fólkið að brosa og fannst gjöfin varla þöss verð, að hennar væri getið í dagbók. Við vorum þarna tveir gamlir menn, og vorum ekki á sama máli og unga fólkið. Við sögð um því, að á þeim árum hefðu fimm krónur verið mikið fé. Fyrir fimm krónur mátti fá eitthvað af því, sem ég skal nú nefna: Vænt haustlamb, 5 kg. af smjöri, 25 klst. vinnu, 41 lítra af mjólk, 10 kg. syk- ur eða 6 lítra af brennivíni — lítr- inn 85 aura — eða eitthvað annað, sem of langt yrði upp að telja. Þegar við höfðum nefnt þessi dæmi, dró úr kímni unga fólksins, og það fór að átta sig á því, að ekki væru allir tímar eins, og skeð gæti, að þeir tímar kæmu, að betra væri að eiga fimm krónur en kasta þeim nú fyrir óþarfa, sem er einskis nýt ur, en rándýr, þótt ég búist ekki við, að krónan verði eins mikils virði og fyrir 50 árum, en fyrr má nú gagn gera. Á meðan samleið var. Hér í Húsavík hafa verið og eru margir nýtir menn. Um og við þá vil ég segja þetta og taka mér í munn orð Þorsteins Erlingssonar: Á meðan saman lá hér vegur vor, það voru mínar beztu sólskins- stundir. Ég man og þakka þær við hvert mitt spor, unz þrýtur leið og sólin gengur undir. Það þýðir ekki að þylja nöfnin tóm.--------- Eitt er samt, sem ekki hefir breytzt, og það er umhverfið. „Náttúran er alveg eins og áður var hún. Sama móðursvipinn ber hún. Sannarlega fögur er hún.“ Það þykir mörgum fallegt hér í Húsavík, og ég er þeim sammála. Um Húsavík segir Hulda skáldkona í gullfaliegu kvæði sínu: Húsavík við Skjálfanda: „Hér er frítt þó skorti skjól og skjól sé lítt. Kvöldskin frítt við hafið nóg og hugrúm vítt.“ Ennþá standa „Kinnarfjöllin bylgjublá“ á sama stað og ég leit þau fyrst barnsaugum mínum og hélt að himinninn hvildi á þeim, og Húsavíkurfjall gnæfir enn yfir vikinni og speglar sig í flóanúm. — „Hér vil ég una ævi minnar daga“, því að hér stóð vagga mín, og ég vona, að gröfin verði hér líka. Karl Einarsson, Túnsbergi, Húsavík. Fjalla-Eyvindur Flutt af 23. síðu. stað, hver eða hverjir sem hafa búið þar, en ekki hefir Eyvindur verið til þess nefndur. Hins vegar er almennt trúað, að hann hafi átt hreysi í Herðibreiðarlindum á Mývatnsöræfum, en jafnframt á- litið, að þar hafi hann verið einn. En hula er yfir því, sem mörgu fleiru, hvenær Eyvindur hafi dval- izt þarna, gæti jafnvel hafa verið næst áður en hann lenti í Fljóts- dalnum. Það má næstum fullyröa, að á útlegðardögum Höllu og Eyvindar hafi þau verið meira með byggðar- fólki en almennt var vitað og að þau hafi haft ýms samskipti við það, því annars hefðu þau ekki haldið lífi. Það þarf heldur enginn að hugsa það, að það hafi einungis verið kænska Eyvindar, sem olli því, hversu opt honum tókst að sleppa úr haldi. Hitt mun oftar hafa verið, að honum hefir verið hjálpað til þess. Svo hefir það verið með Hans Wíum og húsfreyjuna í Felli. Húnvetningurinn, sem brást á verðinum á Grímstunguheiði, hefði sennilega getað gert að sín- um orðum: „Ég læt, sem ég sofi, en samt mun ég vaka“. Þá er og líka tortryggilegt hvarf Eyvindar frá Reykj ahlíð og Höllu frá Flugumýri. Sögn er um það, að fyrst þegar Eyvindur hvarf úr byggð, hafi hann farið að leita að Þórisdal og fundið hann og hitt þar búandi fólk, sem eigi hafi tekiö honum betur en svo, að hann hafi orðið að flýja þaðan hið skjótasta og ætti þá fótum sínum fjör að launa, eða komist undan á handahlaupum. En hvort Eyvindur hefir sjálfur sett þessa skröksögu saman, eða ein- hver annar, er ekki hægt að segja. Þórisdalur er algerlega gróður- laus dalskora, við suð7vesturrönd Langjökuls eða á milii hans og Þórisjökuls, er dalur þessi hulinn fönn og gaddi, nema aðeins ör- skamman tíma úr sumrinu og því gjörólíkur ( því, sem þjóðsögur og •.... : i ( • ii'í <; I 'mp; munnmæli herma, það er grösugur, blómlegur dalur, þvert á móti er þar engri skepnu lift. Keimlík lygasögunni um byggð- ina í Þórisdal, er saga sem Arnes á að hafa sagt um fólk, er hann hafi hitt, og búið eitthvað með inni í miðju Ódáðahrauni, komizt þar í kærleika við bóndadóttur, en orðið að hverfa frá því ástalifi vegna of- ríkis vandamanna stúlkunnar. —o— Margir, eigi þó sizt skáldin virð- ast hafa sjúklega löngun til þess að halda í hönd með vandræða mönnum, bera blak af þeim og eigna dáðir og dyggðir, sem þeir aldrei áttu .Er þetta að finna jafnt í bundnu, sem óbundnu máli og hafa þau Halla og Eyvindur fengið þar vel útilátinn sinn skerf. Hefir svona að minnsta kosti að öðrum þræði verið reynt að breiða blæju unaðs og fegurðar yfir þeirra þyrn- um stráðu braut, yfir hrakföll þeirra og fyrirmunun. Má í þessu sambandi nefna leik- ritið „Fjalla-Eyvind“, þar sem Halla er, í fyrsta þætti, sýnd virðuleg, jafnvel glæsileg frú. Líka má benda á þetta erindi um* Eyvind: „Þótt með bófum aldur æli, / örlög blési tíðum kalt, / gafst hann þó sig gæfan fæli, / góður drengur þrátt fyrir allt. / Hví svo horfinn heillum öllum, / hugarseldur kvöl og raun, / varð hann uppi á eyðifjöllum / í ævisekt að búa á laun.“ — Já, hví svo horfinn heillum öll- um? Mun nokkur fremur en Ey- vindur sjálfur hafa átt að svara þar til sakar. Það mun engan hneyksla þó fé- lagar Eyvindar, Arnes, Abraham og þeir hinir sem koma við sögu á Ströndum, séu kallaðir „bófar“, en það virðist bara ekki hægt að und- anskilja'Eyvind. Eftir að Halla er sloppin úr haldi hjá Halldóri sýslumanni Stranda- manna birtir hann opinbera lýs- ingu á henni, lýsingu, sem hún átti að þekkjast af, og því sennilegt að hún hafi átt að vera nákvæm og hnitmiðuð, en sú hugmynd sem þar fæst, um útlit Höllu bendir síður en svo til þess, að hún hafi verið sjáleg. En þegar meta skal virðuleika Höllu og drengskap Eyvindar getur reyndar hver og einn svarað fyrir sig. Annað mál er svo það, að þessum persónum hefir ekki verið alls varnað, að minnsta kosti er það kunnugt um Eyvind, að honum var margt vel gefið, því hagur var hann í bezta lagi, slyngur íþróttamaður og vaskur með afbrigðum. En þegar litið er yfir sögu Höllu og Eyvindar vekur mesta furðu, að nokkrar manneskjur skyldu treysta sér til, að afbera allar þær kvalir og þjáningar, sem útlaga lífinu fyrirsjáanlega hlaut að fylgja og velj a þann kost, er þau völdu, frem- ur en þola refsingu. Þvi það er mikil villa að tala um frelsið, sem fjalla- lífið hafi haft aö bjóða. Á fjöllun- um gátu þau aldrei um frjálst höf- uð strokið vegna sínagandi ótta um það, að verða þá og þegar gripin höndum og hneppt í fjötra, óttinn því meiri, sem veðrið var betra og fjöllin greiöfærari. Þorlákur Marteinsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.