Morgunblaðið - 01.05.1966, Qupperneq 16
16
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 1. maf 196«
fHttgnitftlnMfr
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 95.00
t lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
STORIÐJA A ISLANDI
1. maí ávarp
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
egar þetta er ritað, er ráð
gert að þriðju umræðu
um álfrumvarpið ljúki í Efri
deild og það verði samþykkt
sem lög frá Alþingi, áður en
sunnudagsblað Morgunblaðs-
ins kemur út. Er þar um að
ræða mesta stórviðburð í at-
vinnusögu íslendinga frá upp
hafi.
Ekki skal hér rifjað upp
efni málsins, enda er álmálið
svo margrætt, að flestum
mundi finnast það vera að
bera í bakkafullan lækinn.
Og því miður hafa umræð-
urnar oft verið ómálefnaleg-
ar, og lítt til þess fallnar að
upplýsa málið, einkum þó
fullyrðingarnar um ímyndaða
hættu af gerðardómsákvæði
samninganna, en í þeim um-
ræðum hefur það sannazt, að
erfitt er hér á landi að vera
hvort tveggja í senn, fræði-
maður í lögvísindum og póli-
tíkus.
í álmálinu hafa margir lagt
hönd á plóginn, eins og áður
hefur verið rakið hér í blað-
inu. Ríkisstjórn Ólafs Thors
hóf athugun þessa máls og
frumkvæðið féll í hlut Bjarna
Benediktssonar, þáverandi
iðnaðarmálaráðherra. Síðan
hefur stjórn hans haldið mál-
inu áfram undir forustu Jó-
hanns Hafstein, iðnaðarmála-
ráðherra. Fjöldi innlendra og
erlendra sérfræðinga og emb-
ættismanna hefur unnið að
undirbúningi stóriðjunnar og
stórvirkjunarinnar í Þjórsá,
og eiga þeir allir þakkir skyld
ar fyrir mikil og heilladrjúg
störf, en þó fyrst og fremst
Jóhannes Nordal, Seðlabanka
stjóri, sem mest hefur mætt á.
Frá upphafi var allmikil
andstaða gegn stóriðjufram-
kvæmdunum og samningum
við hið svissneska fyrirtæki.
Harnaði sú andstaða er samn-
.ingarnir nálguðust lokastig.
Yar þá ljóst, að afturhalds-
öflin í Framsóknarflokknum
hugðust nota mál þetta til
pólitísks ávinnings, enda
skefjalaust beitt hótunum og
hvers kyns stóryrðavaðli. En
stuðningsmenn stóriðjumáls-
ins héldu ótrauðir áfram að
vinna að framgangi þess, og
svo fór að lokum, að hand-
járn Framsóknarafturhalds-
ins brustu og flokkurinn
klofnaði.
Á því leikur enginn vafi,
að þeir menn, sem barizt hafa
gegn stóriðjuframkvæmdun-
um munu, er fram líða stund-
ir, hafa fá orð um frammi-
stöðu sína í því máli, enda
mun komandi kynslóðir furða
á því að öflug andstaða skyldi
gegn því að hefja iðnvæðingu
Islands..
Sem betur fer urðu frjáls-
lynd og framfarasinnuð öif
ofan á í þessu máii. Það er
fyrst og fremst að þakka
stefnufestu ríkisstjórnarinn-
ar og þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins,
auk mjög vandaðs málatil-
búnaðar, sem gerði landslýð
kleift að sjá í gegnum falsvef
þann, sem stjórnarandstaðan
reyndi að spinna.
Nú, þegar máli þessu er að
ljúka, er skylt að færa öllum
þeim, sem þátt áttu í fram-
gangi þess, þakkir, og leyfir
Morgunblaðið sér að gera það
hér með fyrir hönd íslenzku
þjóðarinnar allrar. Og ekki
getur blaðið stillt sig um að
láta í ljós þá von, að fullyrð-
ingar andstæðinganna um
það, að eindregin afstaða
Morgunblaðsins frá fyrstu
tíð hafi átt drjúgan þátt í
framgangi málsins, verði stað
festar í atvinnusögunni.
ATVINNUJÖFN-
UNARSJÓÐUR
LÖGFESTUR
Oíðastliðinn föstudag var
^ frumvarp ríkisstjórnar-
innar um Atvinnujöfnunar-
sjóð samþykkt við þriðju um-
ræðu í Neðri deild. Þar með
var þetta þýðingarmikla og
merka mál orðið að lögum.
Hér er tvímælalaust um að
ræða stærsta sporið, sem stig-
ið hefur verið til margvíslegr
ar uppbyggingar og framfara
í byggðum Iandsins. Stofnfé
hins nýja atvinnujöfnunar-
sjóðs er 364 millj. króna og
ráðstöfunarfé sjóðsins á þessu
ári mun verða um 44 milljón-
ir króna. Á næsta ári mun það
verða um 50 milljónir króna,
og mun síðan aukast ár frá
ári eftir því sem tekjur hans
hækka af framleiðslugjaldinu
frá álverksmiðjunni. En eins
og kunnugt er, er gert ráð
fyrir að 71 til 76% af fram-
leiðslugjaldinu renni til At-
vinnu j öf nunars j óðsins.
En til viðbótar stofnfé At-
vinnujöfnunarsjóðs, er hon-
um í lögunum tryggðar stór-
ar lánsheimildir. Sjóðnum er
heimilt að taka lán hjá Fram-
kvæmdasjóði ríkisins, ef eig-
ið fé sjóðsins nægir eigi, til
viðbótar lánveitingum ann-
arra stofnsjóða, til þess að
stuðla að framgangi fram-
kvæmdaáætlana í hinum
ýmsu landshlutum. Er At-
vinnujöfnunarsjóði jafnframt
í þessu skyni heimilt að taka
erlend lán allt að 300 millj.
króna, hvort heldur er beint,
eða fyrir milligöngu Fram-
kvæmdasjóð ríkisins.
Það er af þessu auðsætt að
Atvinnujöfnunarsjóður verð-
ur mjög öflug lánastófnun,
sem hefur möguleika til þess
að stuðla að margvíslegum
FYRSTA maí, á hinum al'þjóð-
lega hátíðisdegi verkalýðsins,
fylkj.a íslenzk verkalýðssamtök
liði sínu til varnar og sóknar,
til sóknar fyrir bættum kjör-
um og auknum réttindum, og
til varnar því, að aftur verði
tekið það, er áunnizt hefur.
Á þessum merku tímamótum
íslenzkra verkalýðssamtaka —
hálfrar aldar afmælis Alþýðu-
sambands íslands — minnumst
við frumherjanna, er brautina
ruddu, og þökkum þeim störf-
in með því að vera trúir hug-
sjón þeirra og þeirri skoðun, að
sameinuð eru félögin sterkari
en hvert eitt út af fyrir sig, og
strengjum þess heit að vinna
heilshugar að aukinni einingu
innan íslenzkrar verkalýðs-
hreyfingar.
Við minnumst þess, að ís-
lenzk verkalýðssamtök eru
hlekkur í hinni alþjóðlegu
verkalýðshreyfingu og hennar
vandamál því jafnframt okkar.
Þrátt fyrir aukin visindi og
tækni líður meir en helmingur
íbúa jarðarinnar skort og bilið
milli ríkra og fátækra, þróaðra
og vanþróaðra, breikkar stöð-
ugt.
Enn er nýlendukúgun og kyn
þáttamisrétti beitt af mikilli
grimmd, og má þar minna á
Portúgal, Rhódesíu og Suður-
Afríku. Það er krafa íslenzkra
verkalýðssamtaka, að hungur-
vofunni verði bægt frá dyrum
hinna snauðu, kynlþáttakúgún
aflétt og að hver einstök þjóð
fái að ráða málum sínum sjálf
á grundvelli fyllsta lýðræðis og
sjálfstæðis.
Aldrei hefur verið brýnna en
nú, að hin allþjóðlega verka-
iýðshreyfing fylgi eftir kröfum
sínum um frið, frelsi og jafn-
rétti allra manna. Það gengur
í berhögg við hugsjónir verka-
lýðshreyfingarinnar og réttlæt-
iskennd, að voldug stórveldi
beiti herjum sínum, auði og
fullkominni styrjaldartækni til
þess að reyna að kúga vanþró-
aðar og snauðar smáþjóðir til
undirgefni. íslenzk alþýða tek-
ur undir kröfu stéttarsystkina
sinna um heim allan, um tafar-
lausan frið í Víetnam, kröfurn-
ar um frjálsar kosningar og
um, að Víetnambúar fái einir
að ráða málum sínum á grund-
velli lýðræðis og sjálfstæðis.
Islenzk verkalýðssamtök vilja
á þessum baráttu- og hátíðis-
degi sínum nú sem fyrr
strengja þess heit að standa
trúan vörð um sjálfstæði ís-
lenzku þjóðarinnar, vernda
þjóðerni og menningu hennar
og tryggja að íslendingar einir
hafi óskoraðan eigna- og yfir-
ráðarétt yfir auðlindum lands-
ins og hafsins umhverfis það,
svo og framleiðslutækjum.
Stofnun erlendra stórfyrir-
tækja á íslandi mun leiða stór-
felldan vanda yfir landsmenn
og einkanlega verkalýðssam-
tökin, sem verða nú að etja
kapp við nýjan og voldugan
stéttarandstæðing i kjaraibar-
áttu sinni.
Verkalýðshreyfingin leggur
ríka áherzlu á þá staðreynd, að
iangur vinnutími almennings,
gott árferði, síhækkandi verð á
útflutningsvörum okkar og ný
tækni hafa stóraukið þjóðar-
umbótum og framkvæmdum
í hinum ýmsu landshlutum.
Ríkisstjórnin á þakkir skild
ar fyrir skilning sinn á nauð-
synlegri og óhjákvæmilegri
uppbyggingu í strjálbýlinu.
Auðlindir íslands til lands og
sjávar verða ekki hagnýttar
nema þróttmikil og blómleg
byggð haldist í öllum lands-
hlutum. Það er kjarni máls-
ins.
tekjurnar á undanförnum ár-
um. Á síðasta ári einu saman
jókst fiskaflinn um meira en
20%, viðskiptakjörin bötnuðu
um 10% og þjóðartekjurnar
hækkuðu um nær 9%. Því fer
mjög fjærri, að verkafólk hafi
fengið þann hlut, sem því ber
af stórhækkuðum þjóðartekj-
um í raunverulegum kaup-
hækkunum fyrir eðlilegan
vinnutíma. Því veldur verð-
bólgan, sem hefur fært til fjár-
muni í þjóðfélaginu verkafólk-
inu í óhag og raskar í sífellu
öllum kjarasamningum. Verka-
lýðssamtökin líta það mjög
alvarlegum augum, að marg-
ítrekuð loforð ríkisstjórnarinn-
ar um stöðvun verðbólgunnar
hafa reynzt marklaus og má
þar minna á síðustu verðhækk-
anir á brýnustu lífsnauðsynjum
almennings, sem bitna harðast
á tekjulágum barnafjölskyld-
um.
Verðbólgan grefur einnig und
an félagslegum ráðstöfunum,
sem hafa átt að greiða fyrir
kjarasamningum á undanförn-
um árum. Með áframhaldandi
verðbólguþróun verða húsnæð-
islán með visitöluákvæðum
ekki aðstoð heldur baggi, sem
launafólk getur ekki tekið á
sig, og verður því tafarlaust að
afnema þau ákvæði.
Alþýða Reykjavíkur leggur
áherzlu á, að í samningum
1. maí
stjórnar
BANDALAG starfsmana ríkis og
bæja fagnar því, að 1. maí hefur
nú verið lögfestur sem almennur
frídagur. Sendir stjórn BSRB
meðlimum samtakanna og öllum
launþegum landsins kveðjur og
árnaðaróskir á þessum hátíðis-
og baráttudegi launþega.
Þróunin í málum opinberra
starfsmanna hefur að undan-
förnu orðið sú, að kjörum þeirra
hefur hrakað á sama tíma, sem
þjóðartekjur hafa vaxið stórum.
Kjaradómur, sem gildir frá
áramótum sl., ákvað laun opin-
berra starfsmanna lægri en laun
sambærilegra starfshópa á frjáls-
um markið.
Dýrtíðaralda sú, sem nú flæð-
ir yfir landið veldur lakari lífs-
kjörum hjá öllum launþegum.
Hækkun vísitölunnar vegur eng-
an veginn upp á móti þeim verð-
hækkunum, sem orðið hafa, m.a.
vegna misræmis milii einstakra
liða í vísitölugrundvellinum.
Þegar það svo bætist við, að
grunnkaup opinberra starfs-
manna, sem vísitölunni er bætt
á, er alltof lágt, þá er sýnilegt,
að Hlutur þeirra fer sífellt vesn-
andi.
Þetta er staðfesting þess, að
samningsaðstaða opinberra starfs
manna er í alla staði ófullnægj-
andi. Á þeim hefur bitnað bæði
andstaða ríkisvaldsins gegn al-
mennum kjarabótum og réttmæt
um leiðréttingum og hlutdrægni
og ósjálfstæði Kjaradóms. Með
þeirri óbilgirni, sem opinberum
starfsmönnum hefur verið sýnd,
virðist að því stefnt að veikjá
og jafnvel sundra samtökum
þeirra.
Stjórn BSRB skorar eindregið
á öll félög innan samtakanna og
einstaklinga í opinberri þjón-
ustu að styrkja samstöðuna um
rétt sinn og hagsmunasamtök og
vina ötullega að framgangi sam-
eiginlegra baráttumála .
Meginkrafa opinberra sfcarfs-
manna í dag er fullur samnings-
réttur og þar með talinn vérk-
fallsréttur til jafns við aðra
launþega.
Aðrar kröfur opinberra starfs-
manna eru m.a.:
þeim, sem framundan eru,
verða að nást verulegar kjara-
bætur, sem veita verkafólki
eðlilega hlutdeild í sívaxandi
þjóðartekjum. Gera verður ráð-
stafanir sem duga til þess að
stytta raunverulegan vinnu-
tíma og ná sem fyrst því marki,
að dagvinna ein saman tryggi
öllum þegnum sómasamleg lífs-
kjör. Tryggja verður alþýðu-
samtökunum aðstöðu til að gera
orlofslögin að veruleika fyrir
verkafólk, sem notið geti ferða-
laga og hvíldar í leyfum sínum
innan lands og utan. Endur-
skoða verður grundvöll vísi-
tölunnar og sjá til þess, að
kaupgjaldsvísitalan gefi rétta
mynd af öllum hækkunum á
lífsnauðsynjum. Leysa verður
húsnæðismálin á félagslegan
hátt í samræmi við þarfir al-
mennings og uppræta hvers-
kyns brask og spillingu á þeim
vettvangi. En megin forsenda
þess að unnt sé að gera samn-
inga, sem standist, á þessum
sviðum og öðrum, er að verð-
bólgan verði heft með stjórnar-
stefnu, sem miðist við hags-
muni almennings en engra sér-
réttindahópa.
Barátta verkalýðshreyfingar-
innar fyrir hugsjónum sínum
og hagsmunum er enn sem fyrr
komin undir einingu og vilja
allra félagsmanna.
Minnumst frumherjianna með
því að sýna þann einhug 1. maí.
1. maí nefnd Fulltrúaráða
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
1966.
Óskar Hallgrímsson
Jóna Guðjónsdóttir
Sig Guðgeirsson
Guðjón Jónsson
Guðjón Sigurðsson
Sigurjón Pétursson
ávarp
B.S.R.B.
Raunhæfar ráðstafanir verði
tafarlaust gerðar gegn verð-
bólguþróun.
Álagning skatta og útsvara
verði réttlátari og hert verði eft-
irlit með skattaframtölum.
Gerðar verði ráðstafanir til
lækkunar byggingarkostnaðar og
auknir verði lánsmöguleikar án
vísitölubindingar.
Lenging orlofs með óskertu
heildarkaupi.
Stytting vinnuvikunnar, eink-
um hjá þeim, sem nú hafa lengst
an vinnutíma.
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja leggur áherzlu á nauðsyn
þéss að aukið verði samstarf og
gagnkvæmur skilningur laun-
þegasamtakanna í landinu, og
að ríkisvaldið hafi jafnan fullt
samráð við launþegasamtökin
um lausn þeirra mála er snerta
kjör almennings.
„Ekki spor
í rétta átt“
Frá Flugbjörgunarsveitinni:
STJÓRN Flugbjörgunarsveitar-
innar harmar þann kafla úr
skýrslu forseta Slysavarnafélags
íslands á 13. landsþinginu, sem
fjallar um aðfinnslur á störfum
Flugmálastjórnarinnar, í sam-
bandi við leit að flugvél, sem
fórst við Norðfjörð, 18. jan. sl.
Stjórnin telur þessa aðferð
ekki spor í rétta átt til að vinna
að öryggismálum í landinu.
Stjórnin.
Töfur leiðrétlair
í BLAÐINU I gær féllu niður
núll úr tveimur tölum í frásöga
af dómi í máli Kristmanns Guð-
mundssonar gegn Thor Vithjálms
syni. Var Thor gert að greiða
2000 kr. sekt í ríkissjóð og fé-
bætur til Kristmanns að upp-
hæð lcr. 5B00,