Morgunblaðið - 29.05.1971, Side 1
32 SÍÐUR OG SUNNUDAGSBLAÐ
119. tbl. 59. árg. LAUGAKDAGUK 29. MAÍ 1971 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kj ósendur beiti valdi sí nu
af kostgæf ni og íhugun
Sjálfstæðisflokkurinn mun tryggja örugga
st j órnar stef nu
Viðtal við Jóhann Hafstein, forsætisráðherra
„ÞAÐ kynni að hafa mest áhrif í þessum kosningum, að al-
menningur hefur fundið, að Sjálfstæðisflokkurinn er kjöl-
festan í þjóðfélaginu. Hann hefur veitt örugga stjórnarfor-
ystu um trausta stjórnarstefnu í 12 ár. Fólk veit hvað það
kýs, þegar það kýs Sjálfstæðisflokkinn, en hvað kynni að
taka við hjá öðrum flokkum eftir kosningar? Myndu þeir
halda áfram að klofna eða myndu þeir búa til eitthvert
handalag og á hversu traustum grunni væri það reist? Um
það veit enginn. Kjósendur hafa mikið vald á kjördegi. Ég
vænti þess eins, að þeir heiti því valdi með íhugun og kost-
gæfni,“ segir Jóhann Hafstein, forsætisráðherra, í viðtali,
sem Morgunblaðið birtir við hann í dag um þingkosning-
arnar, sem fram fara eftir tvær vikur og viðhorfin í kosn-
ingabaráttunni. í viðtali þessu lýsir Jóhann Hafstein því
yfir, að hann telji óráðlegt að hætta verðstöðvun í einu vet-
fangi, en að réttast sé að feta sig út úr henni í áföngum. Ef
engin breyting yrði á verðstöðvun til áramóta, er talið að
það myndi kosta ríkissjóð 130—150 milljónir króna.
í viðtalinu skýrir forsætisráðherra frá því, að verði
Sjálfstæðisflokkurinn áfram í stjórnarforystu að kosningum
loknum, muni hann beita sér fyrir viðræðum við fulltrúa
verkalýðs og yinnuveitenda um viðhorfin í haust og að sú
2% vísitöluhækkun launa, sem frestað var um 6 mánaða
skeið, muni þá koma óhindruð fram.
Viðtalið við Jóhann Hafstein, forsætisráðherra, fer hér
á eftir:
— Fólk spyr þessa dagana,
hvað gerast muni í haust, þeg-
ar verðstöðvunartímabilinu á
að ljúka. Hvað viljið þér segja
um það, íorsætisráðherra?
— Menn geta verið alveg viss
ir um, að það er engin ástæða
til að ætla, að þá gerist undur
eða stórmerki og a.m.k. er það
alveg öruggt, ef Sjálfstæðis-
flokkurinn heldur sínu forystu-
hlutverki eftir kosningarnar 13.
júní. Það, sem einfaldlega hef-
ur gerzt með verðstöðvun, er,
að frestað hefur verið vanda-
máli, sem við blasti fyrir ára-
mót, en það voru víxlhækkanir
kaupgjalds og verðlags, sem
leitt hefðu til stórfelldrar verð-
bólgu, ef ekki hefði verið að
gert. Til þessa vandamáls var
stofnað með kjarasamningun-
um í júnímánuði sl.
Vegna verðstöðvunárinnar
hefur verðlag yfirleitt verið
stöðvað og þar af leiðir, að ekki
lagðist á atvinnuvegina sú
kauphækkun, sem 1. desember
sl. hefði numið 7,5% í hækkaðri
kaupgjaldsvísitölu. Hefði sú
þróun, sem við blasti, haldið
óhindrað áfram, var sú hætta
yfirvofandi, að of mikill þungi
hefði lagzt á atvinnuvegina,
sem kynni að hafa leitt til sam-
dráttar á ýmsum sviðum og
minnkandi atvinnu. Það gagn-
stæða hefur gerzt, að atvinnu-
og viðskiptalif hefur þróazt
áfram í örum vexti. Samtimis
er svo hin staðreyndin, að kaup
máttur launanna er meiri en
ella og það skiptir meginmáli
í þessu sambandi.
Atvinnuvegirnir og efnahags-
kerfið er því betur undir það
búið að kljást við vandann 1.
september nk. en sl. haust. Þau
2% i vísitöluhækkun kaup-
gjalds, sem frestað var í 6 mán-
uði að greiða, koma þá óhindr-
að fram, án þess að valda muni
tilfinnanlegum vandkvæðum.
Ég teldi óráðlegt að hætta verð-
stöðvun í einu vetfangi og rétt-
ast væri að feta sig út úr henni
í áföngum.
— Hvað kostar það ríkissjóð
að halda verðstöðvun áfram til
áramóta?
— Ef verðstöðvun er haldið
alveg óbreyttri áfram, er talið
að það kosti til áramóta um
130—150 milljónir króna. Fyrir
þeirri fjáröflun var ekki séð á
sl. hausti, en ég tel, að staða
ríkisjóðs sé svo sterk, að hann
ætti að geta tekið á sig þá eða
meiri byrði. Á tvennt er einnig
að lita í þessu sambandi. 1 októ
bermánuði kemur saman ný-
kjörið Alþingi, sem eðlilegt er
að taki framhaldið til meðferð-
ar, en þá liggur væntanlega
einnig fyrir niðurstaða kjara-
samninga, sem eru lausir frá 1.
september nk.
— 1 sambandi við væntan-
lega samninga um kaup og
kjör hafa þær raddir heyrzt frá
forystumönnum verkalýðsfélag
anna, að meðlimir þeirra eigi
rétt á verulegum kjarabótum
vegna launahækkana opinberra
starfsmanna. Hvað viljið þér
segja um það?
— Opinberir starfsmenn voru
orðnir langt á eftir og samn-
ingagerð við þá hafði frestazt,
en auk þess taka þær launa-
hækkanir gildi í áföngum.
— Má búast við því, verði
Sj álf stæðisflokkurinn áf ram í
stjórnarforystu að kosningum
loknum, að hann beiti sér fyr-
ir viðræðum við verkalýðssam-
Framhald á bls. 10.
Jóhann Hafstein, forsætisráðhe rra, á skrifstofu sinni í stjórn-
arráðinu í gær. (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)
Mistök ollu slys-
inuíWuppertal
Mesta járnbrautarslys í V-Þýzka-
landi eftir stríð — 45 fórust
— þar af 40 börn
Wuppertal, 28. maí — NTB-AP
TAUGASPENNTIR foreldrar
fylltu ganga sjúkrahúsa i Wupp-
ertal í Yestur-Þýzkalandi í dag í
eftirvæntingarfuliri bið eftir
vitneskju lun, hvort börn þeirra,
Flokksþingið í Prag:
Itölskum kommúnistum
meinað að taka til máls
Hugðust fordæma innrásina
Prag, 28. mai. NTB.
SENDINEFND italska kommún-
istaflokksins á þingi kommún-
istaflokks Tékkósióvakíu, sem nú
fer fram í Prag, hefur verið
neitað um leyfi til þess að lesa
upp orðsendingu frá flokki sín-
nm á flokksþinginu. Var þetta
haft cftir áreiðaniegum heimild-
um í Prag í dag og fréttin síðan
staðfest af talsmanni kommún-
istaflokksins í Róm.
f þessari orðsendingu fordæm-
ir ítalski kommúnistaflokkurinn
enn einu sinni innrás Varsjár-
bandalagsríkjannna fimm í
Tékkóslóvakíu í ágústmánuði
1968. Var orðsendingin sýnd
ráðamönnum innnan kommún-
istaflokks Tékkóslóvakíu, áður
en hún skyldi lesin upp og var
þá formanni sendinefndar
ítalska kommúnistaflokksins,
Sergio Segre, neitað um leyfi
til þess að lesa hana upp á
flokksþinginu.
Talsmaður flokksins í Róm
sagði í dag, að kommúnistaflokk-
ur Ítalíu héldi fast við þá skoð-
un, að sjálfstæði sérhvera komm
únistaflokks og sérhvers ríkis
væri grundvallarþáttur í alþjóða
hyggju kommúnista. Er ítalska
sendinefndin sú fyrsta, sem
meinað er að tala á þingi tékkó-
slóvakíska kommúnistaflokks-
ins, en sextíu erlendir fulltrúar
hafa þegar tekið til máls á
flokksþinginu.
Sendinefnd brezka kommún-
istaflokksins átti einnig i erfið-
leikum með ræðu sína, sem send
var fyrirfram til Prag og ákvað
því að fara hvergi á flokksþing-
ið heldur sitja heima. Þá hafa
einnig borizt fréttir um, að full-
trúar spánska kommúnista-
flokksins hafi hætt við að
sækja flokksþingið af sömu
ástæðum.
sem slösuðust í járnbrautarslys-
inu í gærkvöldi, fengju lifað
siysið af. Þegar höfðu 45 manns
— þar af 40 börn — beðið bana
af völdum slyssins, en öll kurl
voru ekki komin til grafar, því
að 26 siösuðust til viðbótar, sum-
lr lífshættulega. Slysið varð er
farþegaiest rakst á vöruflutn-
ingalest í grennd við borgina
Wuppertal í Ruhr-héraðinu.
Lestirnar tvær skullu saman á
fullri ferð, eftir að vöruflutninga
lestinni hafði verið gefið grænt
ljós um að halda áfram við
Dahlerau-stöðina, um 8 km fyrir
sunnan staðinn, þar sem árekst-
urinn átti sér stað. Er þetta siys
alvarlegasta járnbrautarslys,
sem átt hefur sér stað í Veet-ur-
Þýzkalandi eftir stríð. Börnin
voru á leiðinni heim ásamt kenn-
urum sínum eftir skólaferðalag
til Bjemen.
Vöruflutningalestin ýtti far-
þegalestinni, sem var með tveim-
ur vögnum, á undan sér um það
bil 100 metra leið, áður en lest-
arnar stöðvuðust báðar. Þá var
aðeins eftir brakið af báðum
vögnum farþegalestarinnar eftir
Framhald á bls. 21.
<