Morgunblaðið - 15.03.1974, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974
„Saklaus af öllum
ákærum
ÞAÐ tók aðeins sex mínútur að
bera fram ákæruna síðast-
iiðinn laugardag og fyrir sak-
borningana að svara þeim, en
það voru sex mínútur sem eru
einstæðar í bandarískri réttar-
sögu því sakborningarnir sjö
voru úr hópi nánustu og hæst-
settu starfsmanna Bandarikja-
forseta, einn þeirra fyrrverandi
ráðherra. Viðbotin við þessar
sex mínútur kemur svo í
september næstkomandi þegar
mál þeirra H.R. Haldeman,
John D. Erlichman, John N.
Mitchell, Charles W. Colson,
Gordons C. Strachan, Roberts
C. Mardian og Kenneths W.
Parkinson, verður aftur tekið
fyrir, hjá Sirica, dómara.
Þessir sjö menn eru sakaðir
um samsæri um að hindra að
réttlætið næði fram að ganga
með því að reyna með mútum,
lygum og svikum og á annan
óheiðarlegan hátt að hindra að
fram færi eðlileg rannsókn á
innbrotinu í Watergate-
bygginguna og njósnunum sem
þar voru stundaðar. Alls voru
lesnar upp 45 ólöglegar að-
ferðir sem þeir eru sakaðir um
að hafa beitt i þessu skyni. Allir
sjö neituðu sekt sinni.
30 ára gangelsi?
John Mitchell, fyrrum dóms-
málaráðherra, fékk á sig fimm
ákæruliði. Hann var sakaður
um að hafa einu sinni beitt
valdi sínu sem ráðherra til að
hindra að réttlæti næði fram að
ganga, um að hafa tvisvar logið
fyrir rannsóknarkviðdómi, um
meinsæri og um að hafa logið
að alríkislögreglunni. Ef hann
yrði fundinn sekur um öllþessi
atriði er hægt að dæma hann í
allt að 30 ára fangelsi.
„Þýzkararnir“
Haldeman og Erlichman, sem
stundum voru kallaðir „þýzk-
ararnir hans Nixons“, voru
tveir af nánustu samstarfs-
mönnum forsetans áður en flóð-
gáttir Vatnshliðsins opnuðust.
Haldeman er yfirmaður starfs-
mannahalds forsetans, en
Erlchman sérlegur ráðgjafi í
innanríkismálum.
Þeir eru sakaðir um að hafa
einu sinní reýnt að hindra
framkvæmd laga og að hafa
þrisvar logið. Þyngsta refsing
sem þeir gætu fengið er 25 ára
fangelsi.
Colson
Charles Colson, var sérlegur
lögfræðilegur ráðunautur
Hvíta hússins og ofarlega á list-
anum yfir hæstsetta aðstoðar-
menn forsetans. Hann er sak-
aður um samsæri og um að hafa
hindrað framkvæmd laga.
Hann gæti fengið 10" ára fáng-
elsi.
Hinir þrir eru „minni fiskar“.
Parkinson var lögfræðingur
nefndarinnar sem vann að
endurkjöri forsetans og hann
gæti fengið 10 ára fangelsi fyrir
hlutdeild sína. Strachan sem
meðal annars var persónulegur
aðstoðarmaður Haldemans gæti
fengið 15 ára fangelsi og
Mardian sem var aðstoðar-
maður Mitchells gæti fengið
fimm ár.
Frjálslegir
Sem fyrr segir neituðu þessir
Jokn Mitchell, 30 ár?
menn öllum sakargiftum og
mál þeirra verður tekið fyrir
rétt9. september næstkomandi.
Ef sakborningarnir voru
óstyrkir þarna í réttinum, bar
ekki á því. Mitchell heilsaði
Leon Jaworski, Watergate-sak
sóknaranum, með handabandi,
og Jaworski sagðí:
,4ohn, hvernig hefurðu það.
Það er gott að sjá þig
aftur.“„Ert þú við góða
heilsu?" spurði Mitchell og
Jaworski svaraði: „Sæmilega,”
um leið og hann hélt áfram.
Sakborningarnir sjö spjölluðu
saman sín á milli og við starfs-
menn réttarins, meðan beðið
var eftir Sirica, domara. Tiu
lögfræðingar sáu um öll forms-
atriði fyrir þá og strangur lög-
regluvörður gætti þess að þeir
yrðu ekki truflaðir.
Mótmælastaða
Um hundrað manns höfðu
safnast saman fyrir utan réttar-
salinn og gerðu hróp að þeim
sakborninganna sem þeir
þekktu. „Sieg Heil,“ var öskrað
þegar Haldeman og Erlichman
mættu. Þegar öllu var lokið
fóru Haldeman, Erlichman,
Colson og hinir út um hliðardyr
og komust þannig burtu óséðir.
Mitchell gekk hinsvegar hik-
laust út um aðaldyrnar og í
gegnum þvögu fréttamanna og
áhorfenda.
Erlichmann, 25 ár?
Mardian, 5 ár?
Strchan, 15 ár?
Parkinson, 10 ár?
Fáskrúðsfjörður:
Nokkrir klúbbfélagar við afhendingu tækjanna.
Gegnumiýsingartækið
Augnprófunartækið
Lionsmenn gefa
tannlækningatæki
Jón Gauti Jónsson sveitarstjóri og Jóhann Antonfusson, fráfarandi
formaður Lionsklúbbsins, við nýju tannlækningatækin. Ljósm.
Albert Kemp.
Fáskrúðsfirði, 13. marz.
ÞRIÐJUDAGINN 26. febr. sl.
afhenti Lionsklúbbur
Fáskrúðsfjarðar Búðahreppi að
gjöf fullkomin tannlæknínga-
tæki að verðmæti um l'A
milljón króna, læknishéraðinu
til afnota. Fráfarandi formaður
klúbbsins, Jóhann Antoníus-
son, afhenti tækin, en hann
hafði verið forgöngumaður um
útvegun þeirra. Sveitarstjór-
inn, Jón Gauti Jónsson, veitti
tækjunum viðtöku fyrir hönd
Búðahrepps. Viðstaddur af-
hendinguna var verðandi tann-
læknir á staðnum, Jónas
Ragnarsson, sem nýlega hefur
útskrifazt sem tannlæknir. Er
það mikils virði, að hann skuli
ætla að setjast hér að og stunda
tannlækningar á komandi
árum.
Aður hefur Lionsklúbburinn
gefið læknishéraðinu gegnum-
lýsingartæki og augnprófunar-
tæki. Auk þess hefur hann sett
upp tvo leikvelli fyrir yngstu
börnin. Fjár til kaupa á tækj-
unum og öðru hefur klúbbur-
inn aflað með sölu á ýmsum
varningi og samkomuhaldi.
Hafa Lionsmenn safnað fénu
bæði á Búðum, I Fáskrúðsfjarð-
arhreppi og í Stöðvarhreppi,
þ.e. I öllu læknishéraðinu, og
hefur þeim alltaf verið tekið
mjög vel.
Nú er sjöunda starfsár
kiúbbsins og er mikil gróska f
starfinu. Núverandi formaður
klúbbsins er Magnús Stefáns-
son, kennari. — Albert.