Morgunblaðið - 15.03.1974, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15, MARZ 1974
37
ROSE-
ANNA
55
getað veitt honum viðnám. En
hann var ekkert að hugsa um
slíkt. Eg átti mér engrar undan-
komu auðið.
Það fór hrollur um hana.
— Fáeinar sekúndur i viðbót
— æ, ég get ekki tilþess hugsað.
Þetta var ögeðslegt.
Þegar þau gengu út að sjúkra-
bilnum sagði hún
— Veslings maðurinn.
— Hver?
— Hann.
Korteri síðar voru Kolberg og
Stenström þeir einu, sem voru
fyrir utan húsið í Runebergsgötu.
— Ég kom rétt í tæka tíð til að
sjá, hvernig þú fórst að. Hvar
hefurðu lært þetta tak?
— Ég hef nú ekki verið fall-
hlífarstökkvari fyrir ekki neitt.
— Ég hef sjaldan séð það
svartara. Þú getur ráðið niðurlög-
um allra með þessu móti.
30. kaflL
Martin leit á manninn, sem sat
fyrir framan hann, með aðra
höndina i fatla. Hann leit ekki
upp.
Hann hafði beðið eftir þessari
stund í hálft ár. Hann beygði sig
fram ogkveikti ásegulbandinu.
— Þér heitið Folke Lennart
Bengtsson sagði hann, eruð fædd-
ur i Gautaborg 6. ágúst 1926. Þér
búið i Rörstrandsgötu i Stokk-
hólmi. Erþað rétt?
Folke Bengtsson kinkaði kolli,
en svaraði engu.
— Gjöriðsvo vel að svara.
— Já, sagði maðurinn — já, það
er rétt.
— Játið þér yður sekan um
kynferðisglæp og morð á
bandarísku konunni Roseönnu
MeGraw um borð í Díönu aðfarar-
nótt 5. júli?
— Ég hef ekki myrt neinn,
sagði maðurinn
— Talið hærra.
— Nei, ég viðurkenni það ekki.
— Þér hafið áður játað, að þér
hafið hitt Roseönnu 4 júlí í fyrra.
Erþað rétt?
— Ég veit það ekki. Éfe vissi
ekkert, hvað hún hét.
— Við höfum sannanir fyrir
því að þér voruð samvistum við
hana 4. júli. Um nóttina drápuð
þér hana og köstuðuð likinu fyrir
borð.
— Nei, það er ekki satt!
VELVAKANDI
Velvakandi svarar i sima 10-100
kl 1 0.30 — 1 1 30, frá mánudegi
til föstudags.
% Sjónvarpsþáttur
um varnarmál —
hægri eða
vinstri
Kristján Kristjánsson, Borgar-
holtsbraut í, Kópavogi, skrifar:
„Sjónvarpsþáttur 27. febrúar sl.
var að ýmsu leyti athyglisverður.
Kom þar m.a. mjög í ljós ofbeldis-
hneigð vinstri manna, sem lýsti
sér á hinn broslegasta hátt, svo
sem að þeir töldu gjöreyðingu ís-
lenzku þjóðarinnar blasa við ef
NATO héldi hér áfram vörnum.
Með slíkri málfærslu eru þessir
menn ef til vill að kanna, hvernig
aðferðir, sem Rússar notuðu við
innlimun Eystrasaltslandanna,
Eistlands, Lettlands og Litháens,
myndu gefast hér. í þessum lönd-
um hefur nú að mestu tekizt að
uppræta þær þjóðir, sem fyrir
voru, og hafa fylgispakir Rússar
verið settir í staðinn.
Enginn minntist á Varsjár-
bandalagið, innrás Rússa i Ung-
verjaiand og Tékkóslóvakíu og
það, að Rússar hafa hersetu i
þessum löndum. Ekki var heldur
minnzt á það, hverjir stjórna
morðum og bróðurvígum við Ber-
linarmúrinn, þar sem þýzkt al-
þýðufólk er að reyna að ná sam-
bandi við vini sina og ættingja í
Vestur-Berlín.
Niðurstaðan hlýtur því að verða
sú, að NATO-rikjunum eigi að
veita alla þá aðstoð hér, sem tök
eru á, og þætti mér æskiiegt, að
NATO ætti fulltrúa við endur-
skoðun varnarsamningsins nú.
Af hverju heimta vinstri menn
ekki fisksöluverzlanir íslendinga
heim frá Bandarikjunum, ef þeim
þykja viðskiptin svona slæm við
þessa þjóð? Sannleikurinn er ein-
faldlega sá, að öll skipti okkar við
Bandaríkin eru með þeim ágæt-
um, að fátitt er.
Það væri fróðlegt að vita, hver
tilgangur Rússa er með flutning-
um til og frá Kúbu um Kefla-
víkurflugvöll. A kannski að fara
að skipta um fólk þar eins og við
Eystrasalt?
Að endingu þetta: Eru sumir
Islendingar svo illa á vegi.staddir,
að þeir þurfi að láta frá sér jafn
ógeðsiegan munnsöfnuð og í um-
ræddum þætti um varnarmál?
Slíkt er engum til sóma.
Kristján Kristjánsson."
Sem betur fer eru þeir ekki
margir, sem ryðjast fram í fjöl-
miðlum með ókvæðisorð á vörum
eins og þeir varnarleysissinnar,
sem Kristján minnist á. Hins veg-
ar þurfti engum að koma á óvart,
þótt ekki væru þeir sómakærir, —
slíks var aldrei að vænta hvort
sem var.
Hins vegar vill Velvakandi ekki
láta hjá liða að taka upp hanzk-
ann fyrir vinstri menn. Það eru
ekki nema fáír vinstri menn, sem
vilja í fávisi sinni hafa þetta land
varnarlaust, — og spurningin er
beinlínis sú, hvort þeir æstustu
séu yfirleitt vinstri menn, en ekki
argasta afturhald. Þeir stunda
einstefnu, þar sem engin skyn-
semi eða málamiðlun kemur til
greina.
Um langt skeið hefur það tiðk-
azt að skipta mönnum í tvo
megin flokka eftir pólitískum
skoðunnum — vinstri og hægri.
Samt mun flestum ljóst, sem hafa
velt því fyrir sér á annað borð, að
ailan þorra fólks er hvorki hægt
að flokka í vinstri flokk eða hægri
flokk. Lika er spurningin sú að
þessu leyti, hvað sé yfirleitt
vinstri og hvað sé hægri. Ef það
eru vinstri menn, sem vilja fá
breytingar fram með byltingu, en
nenna ekki að bíða eftir því, að
hlutirnir þróist á eðlilegan hátt,
hversu margir ætli vinstri menn
séu þá á íslandi? Og ef það er að
vera hægri sinnaður að vilja eng-
ar breytingar, en hafa „allt eins
og það hefur alltaf verið“, hvað
ætli þeir hægrisinnuðu séu þá
margir?
0 Góð þjónusta
í veitingastofunni
á Kjarvalsstöðum
„Oftast eru menn fúsir að
nöldra og rífast yfir þvi, sem mið-
ur fer, en öðru máli 'gegnir, þegar
fólki er vel gert — þá er það
seinna í svifum, ef það á annað
borð segir nokkuð, og er þá ekki
hávaðinn og lætin sömu.
Ég vil hér með taka af skarið, ef
svo má að orðr komast, og þakka
forráðamönnum veitingastofunn-
ar á Kjarvalsstöðum góða þjón-
ustu.
— Það var sérstaklega ánægju-
legt að fara og skoða málverka-
sýningu þar nýlega og fá góðar
veitingar á eftir.
— Kærar þakkir fyrir góða
þjónustu og frábærar veitingar.
Arni G. Jörgensen og fleiri."
0 Skátastarfsemi
í Hlíðunum
Þórður Jónsson, Stigahlíð 67,
Reykjavík, hringdi. Ilann er skáti
og í flokki, sem kallaður er
Hamrabúar. Hann segir, að starf-
semin sé lítil sem engin og telur,
að því sé miður farið. Hann segist
— Drápuð þér hana á sama hátt
og þér ætluðuð að drepa stúlkuna
í Runebergsgötu?
— Ég ætlaði ekki að drepa
hana.
— Hvern ætluðuð þér ekki að
drepa?
— Þessa kvensnift. Hún leitaði
á mig. Hún spurði, hvort ég vildi
ekki koma heim til hennar. Henni
var engin alvara með mig. Hún
ætlaði bara að auðmýkja mig.
— Ætlaði Roseanna MeGraw
einnig að auðmýkja yður? Var
það þess vegna sem þér drápuð
hana?
— Eg veitþað ekki.
— Komuð þér í klefann henn-
ar?
— Það man ég ekki. Kannski ég
hafi komið þar. Ég veit það ekki.
Martin horfði þögull á manninn.
Loksins sagði hann.
— Eruð þér mjög þreyttur?
— Nei.Nei, Eiginlega alls ekki.
— Finnið þér tií i handleggn-
um?
— Ekki núna. Ég fékk sprautu
á sjúkrahúsinu.
— Þegar þér sáuð stúlkuna i
gærkvöldi, minnti hún yður þá á
stúlkuna sem þér hittuð um borð í
Díönu í fyrra?
FRAMHALDSSAGA EFTIR
MAJ SJÖWALL OG
PER WAHLOÖ
JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR
ÞÝDDI
— Þær voru ekki stúlkur...
— Hvað eigið þér við með þvi?
Auðvitað voru þær stúlkur.
— Já, en.. . eins og skepnur. ..
— Ég skil ekki hvað þér eigið
við.
— Þær eru eins og dýr, sem
hugsa ekki um annað en sínar
dýrslegu og sjúklegu hvatir.. .
Nokkur þögn.
— Er yður alvara?
— Allt sómakært fólk myndi
segja það sama — bara ekki þeir
sem eru úrkynjaðir og spilltir.
— Féll yður ekki við þessar
stúlkur? Roseönnu og konuna i
Runebergsgötu. .. hvað heitir hún
nú aftur?
— Sonja Hansson, hvæsti mað-
urinn.
— Alveg rétt. Likaði yður ekki
við hana?
— Ég hata hana. Ég hataði lika
hina. Ég manþað ekki eins greini-
lega. En þér hljótið sjálfur að sjá,
hvernig þær hegða sér. Þér eru
karlmaður og hljótið að skilja
þetta.
Hann var mjög hraðmæltur.
— Nei.Hvað eigið þér við?
— O, þær eru svo viðurstyggi-
legar. Flagga löstum sínum og
hafa greitt félagsgjaldið, sem sé
350 krónur, en ekki hafi hann
verið boðaður á nema tvo fundi i
vetur.
0 „Hvaðavit
er í þessu?“
Arni Helgason í Stykkishólmi
skrifar:
„I eyrum landsmanna klingir
við úr öllum áttum: Það vantar
fleiri skóla, fleiri og stærri
sjúkrahús, heilsugæzlustöðvar,
elliheimili, rannsóknastofnanir
o.s.frv. o.s.frv. Þjóðin er í stöðugri
uppbyggingu á öld tækni og vís-
inda. Það er rétt, að uppbygging
vorra tima er sannkölluð bylting,
og fyrir 30 árum hefði okkur ekki
órað fyrir því, sem staðreynd er í
dag.
En mitt i allri þessari uppbygg-
ingu eru svo stórkostleg niðurrif,
svo stór, að ef við athuguðum
þetta nánar og gætum fengið rétt-
ar niðurstöður myndi okkur sann-
arlega blöskra.
Við eyðum sem sé okkur til
skaða og tjóns hundruðum
milljóna í tóbaksvörur, — hrein-
lega blásum út í loftið stórkostleg-
um auðæfum ár eftir ár, auðæf-
im, sem gætu komið að miklu
i;agni í uppbyggingu þjóðfélags-
.ns. Sem sagt, við eyðum fjármun-
um i það, sem veldur tjóni bæði á
sál og líkama. Hvílíkar andstæð-
ur.
I litlu kauptúni eins og því, sem
ég hefi búið i undanfarin ár.
telst mér til í lauslegri athugun,
að hér séu seldar tóbaksvörur á
ári fyrir 10 til 12 milljónir hið
minnsta. Það er ekki lítil upphæð
í bæjarfélagi, sem verður að láta
svo margt sitja á hakanum.
Á sama tíma erum við með
félagsheimili i smíðum og höfum
litla von um fjármuni til að ljúka
þeirri byggingu í bráð. Við þurf-
um að byggja skólahús, því að nú
er tví- og þrísett í hverja kennslu-
stofu og nægir ekki til, — við
erum i kirkjubyggingarhugleið-
ingum og eigum í sjóði ekki nema
brot af fyrirhuguðum byggingar-
kostnaði, hafnarmannvirki þurfa
stórkostlegra bóta við, gatnakerf-
ið endurbóta og lagfæringar fyrir
milljónir, og svona mætti halda
áfram að telja, en við eigum ekki
fjármuni til athafna. En við höf-
um efni að blása 10 til 12 milljón-
um á ári (líkl. VS af öllum tekjum
sveitarfélagsins) út í loftið, eng-
um til gagns, en flestum til tjóns.
Verður ekki að þessum niður-
stöðum fengnum hverjum hugs-
andi manni á að hugsa: Er vit í
þessu? Svari hver fyrir sig.
Margir eldsvoðar eru á hverju
ári. Brunalið í hverjum bæ og
kauptúni til taks ef eldur verður
laus. Okkur blöskrar tjón það,
sem eldurinn vinnur. En stærsti
eldsvoðinn liggur okkur kannski í
of léttu rúmi? Hvenær verður
brunalið stofnað og aukið til að
vinna á slikum eyðandi eldi? Eru
þeir tímar að nálgast?
Arni Helgason.“
S3? $1G£A v/GGA £ 'Í/LVERAU
MAMMA MÍN Á 9ERL0FE6-Í/ £KfA ?£RLOM 03
6ÖLLÓR YIÍ9 OfMÖNÍOM OG MINKA9RS SEM
KOSÍAVI V\E\U EN M\LLiöNÖ6 S\TKÓN0G0LAK/ <b\l
HE9 ÍIMM G\R0M SIM VtóN CT Á \ frÓP/RNAft
i Sérstök nefnd
til umsjónar
með Jiundinum”
MORGUNBLAÐINU barst nýlega
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Iðnaðarráðuney tinu:
Hinn 5. þ.m. skipaði iðnaðarráð-
herra, Magnús Kjartansson, sér-
staka nefnd, er hafi í umboði iðn-
aðarráðuneytisins yfirumsjón
með byggingu háspennulinu milli
Suður- og Norðurlands eftir svo-
nefndri byggðaleið.
1 nefndina voru skipaðir:
Egill Skúli Ingibergsson verk-
fræðingur, formaður nefndarinn-
ar; Guðjón Guðmundsson skrif-
stofustjóri; Kristmundur Hall-
s dórsson fulltrúi og Tryggvi Sigur-
* bjarnarson verkfræðingur.
Ij í fjárlögum fyrir árið 1974 hef-
I ur Alþingi heimilað ríkisstjórn-
• inni lántökur til línubyggingar-
J innar að upphæð samtals kr. 300
I millj.
SINCLAIR
vasareiknivélin,
sem gerir allt
nema kosta
mikla peninga.
★ Fljótandi komma,
Ýt 4 reikningsaðferðir,
★ +, —, X, +
★ Konstant.
■A Sýnir 8 stafi.
■A Vinnur vikum saman
★ á 4 rafhlöðum o.fl. o.fl.
★ Stærð aðeins:
★ 50x110x18 mm.
heimilistæki sf
Sætún 8, simi 1 5655, 24000.
margfaldnr
marhað vðar