Morgunblaðið - 19.03.1974, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
Þúsundir verkamanna fóru fyrir nokkru í kröfugöngu I Röm til
þess a3 mótmæla verðbólgunni þar í landi, þar sem hún rýrði
mjög kaupmátt launanna. — Til hægri á myndinni sér í
Colosseum.
Kappakstur er hættuleg
íþrótt. Hér sést bíll Steve
Krisiloff, sem tók þátt I
kappakstri í Kaliforníu,
eftir að kviknað hafði í
honum. Slökkviliðsmenn
eru þegar komnir á stað-
inn. Bíllinn eyðilagðist, en
ökumaðurinn hafði heppn-
ina með sér og slapp
ómeiddur.
ALVARA
OG LEIKUR
Þá er verkfalli
kolanámu-
manna í Bret-
landi lokið og
hjólið farið að
snúast að nýju.
Hér sjást námu-
menn á leið til
vinnu sinnar að
nýju eftir
mánaðar verk-
fall.
Margt er sér til gamans gert. Hér sést stúdent við háskólann I Georgíu svlfa til jarðar í fallhlff klæddur tennisskóm einum fata. Fjórir aðrir fylgdu I kjölfarið. Þeir fimmmenn-
ingarnir fylla flokk hinna nöktu „byssubranda". Þeir hafa verið orðnir leiðir á hlaupum um götur og stræti. — Piltarnir á hinni myndinni eru jarðbundnari. Þeir eru úr
gagnfræðaskóla í Portland, og eru hér á harðaspretti inn I kaþóiskan skóla þar í borg. Stúlkan, sem heldur hurðinni opinni kúrir og hylur andlit sitt.