Morgunblaðið - 12.06.1974, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JUNI 1974
| ÍI'lilfflAIIiííTIK MflHIUIMILAflSI^S
I EINUM hezta leik 1. deildarinn-
ar í sumar gerðu Valur og KR
jafntefli á Laugardalsvellinum í
f.vrrakvöld. 2:2 uróu úrslitin og
voru þau eftir atvikum sann-
gjörn. Leikurinn var allan
tfmann mjög opinn og mikió um
góó tækifæri á háða bóga. — Með
þessu jafntefli hafa KR-ingar
hlotið 5 stig í 1. deild og eru f
öðru sæti ásamt Víkingum. Vals-
menn eru nú með 3 stig og eru
fvrir ofan Fram og IBA, sem bæði
hafa hlotið 2 stig.
Valsmenn skoruðu eina mark
fyrri hálfleiksins og kom það á 30.
mínútu. Alexander tók horn-
spyrnu frá hægri og. gaf fasta
sendingu meðfram KR-markinu:
þar var Birgir Einarsson f.vrir og
renndi knettinum auðveldlega í
netið. Varnarmenn KR voru upp-
teknir við að gæta Jóhannesar
Eðvaldssonar, sem vildi fá stutta
sendingu meðfram endamörkum
frá Alexander.
Er 25 mínútur voru liðnar af
síðari hálfleiknum kvittuðu KR-
íngar. Atli bór gaf á Jóhann
Torfason í vítateig Valsmanna og
sá síðarneíndi afgreiddi knöttinn
skemmtilega i netið. Sigurður
Haraldsson var ekki á sínum stað,
hafði faríð í ævintýraferð út á
vítateiginn.
Næstu mínútur gerðist margt
og staðan hreyttist úr 1:1 i 2:2.
Evrst léku þeir aftur laglega
saman Jóhann og Atli og eftir
samleik þeirra lá knötturinn í
neti Valsmarksins. Skot Jóhanns
frá vítapunkti. og holtinn lá i
hliðarnetinu vinstra megin. óverj-
andi fvrir Sigurð Haraldsson
Adam var þó ekki lengi í para-
dis. Um miðjan síðari hálfleikinn
höfðu Valsmenn sett tvo nýliða
inn á. Atla Eðvaldsson (hróður
Jóhannesar) og Guðmund bor-
hjörnsson. 17 ára pilta háða á
fvrsta árí í 2. flokki. bað fyrsta
sem Atli gerði i sinum fyrsta
meistaraflokksieik var að skora
mark og það með miklum glæsi-
hrag. Hann fékk knöttinn um 25
metra frá marki KR-inga og sendi
knöttinn í netið með þrumuskoti
— ekki siæm bvrjun það.
bar með eru upptalin miirkin i
þessum líflega leik. Af helztu
tækifærum liðanna mætti nefna
skalla Jóhannesar rétt framhjá
marki KR í upphafi Ieiksins. úr
dauðafæri; hjörgun Jóns Gisla-
sonar á línu Valsmarksins og skot
Atla Héðinssonar yfir frá mark-
teig í fyrri hálfleiknum. Horn-
spyrnu Alexanders í slá og vel
varin skalla Jóhafmesar Eðvalds-
sonar á lokamínútu leiksins var
eftirminnifegt. betta er þó aðeins
stutt upptalning.
Mörk KR: Jóhann Torfason á 70.
min. og 72. mín.
Mörk Vals: Birgir Einarsson á 30.
mín. og Alli Eðvaldsson á 74. mín.
Aminning: Engin
Ahorfendur: 1371
Dómari: Hannes b. Sigurðsson
(dæmdi leikinn ágætlega).
TVEIR efnilegir nýliðar komu inná í leik Vals og KR. Þetta voru þeir
Guðmundur Þorbjörnsson t.h. og Atli Eðvaldsson t.v. Milli þeirra á
m.vndinni er Jóhannes Eðvaldsson, fyrirliði Vals, bróðir Atla. A neðri
myndinni spyrnir Atli Eðvaldsson, t.v. að KR-markinu og skorar.
KR-ingurinn á myndinni er Sigurður lndriðason og Valsmaðurinn er
Kristinn Björnsson.
Allir geta tekið
þátt í FRÍ-skokkinu
..Skokkið veitið þrek og
ánægju," gætu verið einkunnar-
orð fyrir keppni, sem ÍSÍ og FRl
eru nú að hleypa af stokkunum.
Nefnist keppni þessi FRt-skokkið
og mun það standa yfir á tímabil-
ínu frá 15. júní til 30. júli n.k.
Reglur og fyrirkomulag skokks-
ins eru þannig, að í því
geta allir tekið þátt, ungir
sem gamlir, konur sem karlar.
Má húast við mikilli og al-
mennri þátttöku i skokkinu,
enda áhngi almenningS á íþrótt-
um mjög vaxandi, svo og skilning-
ur á gildi þeirra.
— betta er aðeins upphafið að
því, sem koma skal, og við vonum,
að FRl-skokkið nú geti orðið hvati
að öðru og meira, sagði Sigurður
Helgason formaður úthreiðslu-
nefndar FRl á fundi með blaða-
mönnum fyrir helgina. Ala for-
ráðamenn skokksins þá von með
sér, að áður en mörg ár líða verði
skokk og hlaup orðið eins vinsælt
og almennt hérlendis og er á hin-
um Norðurlöndunum, en þar er
víða geysilegur áhugi á hlaupi,
einkum þó í Finnlandi, þar sem
mörg hundruð manna taka jafnan
þátt í víðavangshlaupi.
FRÍ-skokkið er afar einfalt í
sniðum. Hver þátttakandi í því
keppir fyrst og fremst við sjálfan
sig. Karlmenn þurfa að skokka
eða hlaupa 2 km vegalengd, en
konúm og börnum yngri en 12 ára
er ætlað að skokka 1 km. Engin
tímamörk eru í skokkinu og getur
því hver og einn haft hraðann við
sitt hæfi. Hins vegar verða eftir-
litsmenn, sem fylgjast með því, að
þátttakendur ljúki keppninni, og
þeir, sem það gera einu sinni, eiga
þess kost að fá keypt áletraðan
borða til minningar um keppnina.
Auk þess eiga þeir, sem Ijúka því
5 sinnum, kost á að kaupa trimm-
nælu ÍSI, sem verður sérstaklega
útbúin vegna þessarar keppni.
— Við gerum okkur grein fyrir
því, að keppni þessi stendur og
fellur með framkvæmdaaðilunum
á hinum ýmsu stöðum á landinu,
sagði Örn Eiðsson formaður FRl á
blaðamannafundinum, — og við
vonumst eftir góðri samvinnu við
þessa aðila.
Öllum héraðssamböndum hefur
verið skrifað og þau beðin að hafa
á hendi skipulagninu FRl-skokks-
ins í sínum heimahögum. Upphaf-
lega var ætlunin að efna til
keppni milli sambanda og kaup-
staða um þátttöku, en síðar var
ákveðið að fresta því, unz nokkur
reynsla væri komin á keppnina.
Hins vegar mun FRÍ gefa upp
tölur um þátttöku á hinum ýmsu
stöðum á meðan á keppninni
stendur.
Ætlunin er, að á fyrrgreindu
tfmabili, 15. júní til 30. júli, gefist
fólki kostur á að skokka a.m.k. tíu
sinnum. Rækilega verður auglýst,
hvar skokkbrautirnar verða, og
umsjónarmenn munu verða við
1 stuttu máli:
Islandsmótið 1. deild, Laugar-
dalsvöllur 10. júní.
KR-Valur 2:2
þær á ákveðnum tíma. Umsjóna-
mennirnir skrá þátttakendur,
fylgjast með þeim og skila síðan
skýrslum til FRÍ
r
Arsþing og
r
Islandsmót
ÁRSÞING Handknattleikssam-
bands íslands verður haldið í Fé-
lagsheimilinu Seltjarnarnesi dag-
ana 21. og 22. júní nk. Hefst þing-
ið föstudaginn 21. júní klukkan
13.30 og verður fram haldið á
sama tíma daginn eftir.
íslandsmeistaramót í hand-
knattleik utanhúss fara fram í
sumar eins og venjulega. i meist-
araflokki karla á tímabilinu 15. til
30. júlí, í meistara- og 2. flokki
kvenna í ágústmánuði. Umsóknir
um framkvæmd mótanna óskast
sendar stjórn HSÍ fyrir 20. júní
nk.
(Fréttatilkynning frá HSÍ).
FRÍ SKOKKIÐ
1S.JÚMÍ - 30.JÚLÍ
1974
SKOKKIÐ VEITIR ÞREK OG ANÆGJU
F.R.Í. i.S.1
LIÐ VALS: Sigurður Haraldsson 1, Grímur Sæmundsen 3, Þór
Hreiðarsson 3, Jóhannes Eðvaldsson 3, Jón Gíslason 2, Sigurður
Jónsson 2, Hörður llilmarsson 1, Alexander Jóhannesson 3,
Birgir Einarsson 2, Ingi Björn Alhertsson I, Kristinn Björnsson
3, Guðmundur Þorbjörnsson 1 (varam.), Atli Eðvaldsson 2
(varam.).
LIÐ KR: Magnús Guðmundsson 2, Sigurður Indriðason 2, Þor-
varður Höskuldsson 2, Olafur Olafsson 2, Ottó Guðmundsson 3,
Árni Steinsson 3, Haukur Ottesen 2, Björn Pétursson 2, Atli Þór
Héðinsson 3, Jóhann Torfason 3, Gunnar Gunnarsson 2, Guð-
mundur Jóhannsson 1 (varam.).
Maður—á—mann—vörn
Valsmenn léku stíft maður-á-
mann-vörn í þessum leik, með tvo
miðverði, sem gættu Atla og
Jóhanns. Jóhannes var svo f.vrir
aftan og bakverðirnir voru
nokkuð frjálsir, en gættu þó út-
herja KR, ef sótt var upp kantana.
Tókst þetta nokkuð vel hjá Val að
þessu sinni og hefði tekist enn
betur hefðu miðjuleikmennirnir
verið virkir, en það voru þeir ekki
að þessu sinni. Var t.d. Hörður
Hilmarsson langt frá sinu bezta.
bá sáust varla ýmsir framlínu-
menn Vals langtímum saman í
þessum leik, — en áttu þó spretti
á milli.
I síðari hálfleiknum komu tveir
nýliðar inn á í Valsliðið eins og
áður er getið. Stóðu þeir sig báðir
allvel og mark Atla var gullfall-
egt. Eigi að síður var mikil áhætta
að setja þá inn á og hefði manni
virzt eðlilegra að setja einhvern
reyndan varnarmann inn til að
styrkja vörnina og halda 1:0 for-
skotinu. sem Valsliðið náði f fvrri
hálfleik. En vogun vinnur og vog-
un tapar og að þessu sinni var
skiptingin ávinningur.
bór Hreiðarsson lék nú heilan
leik með Val. en það hefur hann
ekki gert áður í Islandsmótinu.
bór stóð vel fyrir sínu í sinni nýju
stöðu sem bakvörður.
Texti: Ágúst I. Jónsson
Mvndir: Ragnar Axelsson
Öskrandi KR-ingar
KR-ingar hafa oft verið nefndir
Ijónin úr Vesturbænum eða eitt-
hvað í þá veru. Að þessu sinni
gerðu Ijónin lítið meira en að
öskra og sú barátta. sem einkennt
hefur leik KR-liðsins í sumar og
fært liðinu inargan góðan sigur-
inn var nú óvenju litil. KR-ingar
revndu að spila meira að þessu
sinní en undanfarið og tókst oft
ágætlega upp. bó komu bæði
mörk liðsins eftir langar send-
ingar og baróttu.
Atli Héðinsson sýndi það
áþreifanlega í þessum leik að
hann er einn skæðasti framherji
okkar. Að vfsu skoraði hann ekki í
þessum leik, en átti heiðurinn af
báðum mörkum Jóhanns. Atla var
vel gætt í leiknum, enda ekki van-
þörf á.
Annars var KR-liðið nokkuð
jafnt í þessum leik og f rauninni
enginn einn leikmaður, sem skar
sig úr.
Fyrsta spyrna nýliðans færði
Val jafntefli gegn KR-ingum