Morgunblaðið - 16.10.1974, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.10.1974, Blaðsíða 32
nucivsincRR ^-»22480 nucivsincRR «£^22480 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1974 Verðmætis- aukning fisk- afla varð um 120% í sjáv- arplássunum VERÐMÆTISAUKNING fisk- afla, sem unninn var f fisk- vinnslustöðvum hérlendis á árinu 1972, nam rúmum 6 milijörðum f vinnslunni: aflaverðmæti kr. 5.079.000.000,- en útflutnings- verðmæti kr. 11.371.000.000.-. Verðmætisaukning varð þvf rff- lega 120%. Verg þjóðarframleiðsla sama ár er talin nema 67 milljörðum króna. Verðmæti þess varnings, sem fór um íslenzkar hafnir þetta ár, er talið nema 43 milljörðum króna, eða 64% af þjóðarfram- leiðslunni. Þrátt fyrir þessa verð- mætisaukningu fiskaflans í sjávarplássunum og þrátt fyrir þau verðmæti, sem eiga farveg um hafnirnar í inn- og útflutn- ingi, eru þær reknar með veru- legum rekstrarhalla. Sjá nánar f grein um málefni hafna á bls. 12 í blaðinu í dag. Haustsvipurinn færist yfir hægt og sígandi, laufið fýkur og gjólan brýnir sig, en dagur og dagur ber sig einstaklega vel og þá notar fólk strax tækifærið og tyllir sér úti við til þess að velta vöngum og föndra við mannlífsspjall. Ljósmynd Mbl. Ól.K.M. Saltfiskmarkaðir Mið- og Suður- Ameríku kannaðir TVEIR menn frá Sölusambandi fslenzkra fiskframleiðenda eru um þessar mundir á ferðalagi f Mið- og Suður-Amerfku f þeim tilgangi að kanna hvort ekki sé hægt að selja meira af saltfiski þangað frá Íslandi, en menn eru nú uggandi um saltfisksölur til Miðjarðarhafslandanna vegna hins ótrygga ástands, sem þar er vfða. Þeir, sem fara þessa ferð fyrir S.I.F., eru Jón Ármann Héðinsson stjórnarmaður félags- ins og Valgarð Ólafsson, fram- kvæmdastjóri. Tómas Þorvaldsson, stjórnarfor- maður S.I.F., sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þeir Jón Ármann og Valgarð hefðu lagt af stað í þessa ferð i sfðustu viku, og gert væri ráð fyrir, að hún stæði yfir í um mánaðartíma. Á stjórnarfundi S.Í.F., sem haldinn var í byrjun síðustu viku, var ákveðið að senda þá félaga í þessa ferð, einkum til að kanna markaðshorfur í löndunum við Karabíska hafið og í Brasilíu. Tómas sagði, að þeir félagar Framhald á bls. 18 Getur hljóðgjafi fœlt háhyrningana hurtu? Reknetabátar reyna aftur í vikunni REKNETABATAR hafa ekki gert tilraun til að leggja net sín f þessari viku, en líklcga munucin- hverjir reyna það f lok vikunnar, að þvf er Elfas Jónsson frétta- ritari Mbl. á Höfn tjáði Mbl. f Flokksbiniy Alþýðuflokksins um miðjan nóvember: Þ. Gíslason verður ekki í kjöri sem formaður Gylfi GYLFI Þ. Gfslason, formaður Al- þýðuflokksins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs sem formaður flokksins á flokks- þingi, sem haldið verður um miðjan nóvember. Frá þessu skýrði Gylfi á fundi f Alþýðu- flokksfélagi Reykjavfkur, sem haldinn var f gærkvöldi. Jafn- framt er Ijóst, að Eggert G. Þor- steinsson, sem verið hefur ritari Alþýðuflokksins, ætlar heldur ekki að gefa kost á sér f það embætti og hann verður ekki f kjöri til formanns. Benedikt Gröndal verður í kjöri til for- manns flokksins, en hann er vara- formaður hans nú. Óvfst er hverj- ir munu verða kjörnir varafor- maður og ritari flokksins. Gylfi Þ. Gfslason mun halda áfram að vera formaður þingflokks Al- þýðuflokksins. 1 ræðu sinni í gærkvöldi á fundi í Alþýðuflokksfélaginu fjallaði Gylfi Þ. Gíslason um væntanlegt flokksþing og kvað nauðsyn til þess, að það fjallaði um skipulag flokksins og flokksstarfið og að auka þyrfti verkaskiptingu milli forystumanna, fá aukna breidd í fiokksforystuna, auka tengslin við launþegasamtökin og fá fleiri unga menn til starfa I forystu Voru með mest um 40 rjúp- ur — Veiðamar hófust í gær RJtJPNASKYTTUR héldu til fjalla f býtið f gærmorgun, en þá gékk f gildi leyfi til rjúpnaveiða. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér í gær, virðist vera mikið af rjúpu f ár. 1 Forna- hvammi voru menn að koma inn með 30—35 rjúpur hver eftir dag- inn, og norður f Þingeyjarsýslu voru menn með mest 41 rjúpu. „Þeir héldu 18 upp á heiði í morgun, og voru þrír komnir til baka núna um sexleytið, hver með 30—35 rjúpur. Ætli hinir verði ekki með eitthvað svipað, eða kannski heldur meira. Ég er alveg hissa á þvi hvað þeir hafa fengið mikið, og þetta bendir til þess, að það sé mikið af rjúpu í ár,“ sagði Hafsteinn Ólafsson hótelhaldari I Fornahvammi þegar Mbl. ræddi við hann í gær. Hafsteinn sagðí, að veður hefði verið mjög slæmt á mánudag, rok og rigning, og það hefði líklega heldur dregið úr ásókn manna fyrsta daginn. Þó komu 18 manns og keyptu leyfi, en leyfið ,er selt á 500 krónur stykkið. Veður var heldur skárra í gær, en þó fremur leiðinlegt. Snjólaust er nema á efstu tind- um, og heldur rjúpan sig því frek- ar ofarlega, 10—20 saman I hóp. Framhald á bls. 18 flokksins. Hann f jallaði um skipu- lag annarra flokka og benti á, að þar gegndi ekki sami maður störf- um þingflokksformanns og for- manns flokksins. Raunar hefði slík skipan áður verið í Alþýðu- flokknum og kvaðst Gylfi vilja taka þessa skipan upp að nýju. Myndi hann ekki gefa kost á sér sem formaður flokksins á flokks- þinginu. Með þessu kvaðst Gylfi bera þá von í brjósti, að hún stuðlaði að frekari skipulags- breytingum í f lokkinum. Morgunblaðinu er kunnugt um, að Eggert G. Þorsteinsson mun ekki gefa kost á sér til formanns kjörs og hann mun ekki verða íendurkjörisem ritari flokksins. Varaformaður flokksins, Bene- dikt Gröndal, mun hins vegar hafa hug á að vera í kjöri sem formaður flokksins. Óskipað er þá I embætti varaformanns flokksins og I embætti ritara og er óljóst enn, hverjir muni ætla sér þær stöður. gær. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um að sprengja merkjasprengjur neðansjávar til að hrekja háhyrningana af mið- um reknetabátanna. Verður það ekki gert fyrr en athugaðir hafa verið möguleikar á því að fá tæki- frá Bandaríkjunum, sem gefur frá sér ákveðin hljóðmerki, og fælir þannig frá háhyrningana. Jón Jónsson forstöðumaður Haf- rannsóknarstofnunarinnar tjáði Mbl. þetta f gær, en stofnun hans hefur einmitt spurzt fyrir um þetta tæki í Bandaríkjunum. „Við erum alls ekki spenntir fyrir því að ráðast að háhyrn- ingunum með neinu offorsi, enda gæti slíkt skaðað mjög álit okkar útávið. Þess vegna viljum við áð- ur kanna allar hugsanlegar leiðir aðrar en sprengjunotkun,“ sagði Framhald á bls. 18 Stolið 70 þús- und kr.í erlend um gjaldeyri f FYRRINÓTT var brotizt inn f kjallarafbúð við Hrfsateig f Reykjavfk, og þaðan stolið er- lendum gjaldeyri að verðmæti um 70 þúsund krónur. Voru þetta 100 þýzk mörk og 100 sænskar krónur. Þjófurinn sprengdi upp gamlan borðstofuskáp, sem er í kjallaranum, en þar var að finna lítinn peningakassa. Gjaldeyririnn var þar geynd- ur, og hirti þjófurinn allt, sem í kassanum var, en snerti ekki við neinu öðru í íbúðinni. 490 milljón kr. tap í smásöluverzlun Hagnaður í bifreiðaverzlun og byggingavöruverzlun HAGDEILD Verslunarráðs fs- lands hefur nýlega gert könnun á afkomu verslunarinnar á árunum 1973 og 1974. Könnunin leiðir f Ijós, að búast má við 157 millj. kr. halla hjá verslunarfyrirtækjum f heild á þessu ári. Einnig kemur fram, að tap á ársgrundvelli er áætlað 1.200 millj. kr. eftir álagn- ingarlækkunina fyrir skömmu. Mest er tapið í smásöluverslun- inni, en það er áætlað 490 millj. kr. f ár. Tap f almennri heild- verslun er áætlað 41 millj. kr. Á hinn boginn er búist við, að hafn- aður bifreiðaverslunar verði 247 millj. kr. á þessu ári og hagnaður byggingavöruverslunar verði 127 millj. kr. (Sjá viðtal á bls. 14) Könnun hagdeildar Verslunar- ráðsins fyrir árin 1973 og 1974 er í framhaldi af könnun Þjóðhags- stofnunar, sem nær yfir árin 1971 og 1972. Athugun þessi nær til allra greina verslunarinnar, nema útflutningsverslunar, olíuversl- unar og áfengis og tóbaksverslun- ar. Samkvæmt þessum athugunum nam hagnaður verslunarinnar 1971 498,3 millj. kr. Árið 1972 lækkaði þessi upphæð niður f 268,7 millj. kr. og á árinu 1973 niður í 211 millj. kr. Á þessu ári er hins vegar reiknað með 157 millj. kr. halla. Ef á hinn bóginn er miðað við breyttar aðstæður eftir álagningarlækkunina, má reikna með taprekstri upp á 1.200 millj. kr. á ársgrundvelli. Ef álagningin hefði ekki verið lækk- uð er búist við, að hagnaður hefði orðið 297 millj. kr. á ársgrund- velli. Þegar litið er á hagnað verslunarinnar f heild í hlutfalli viðveltu kemuríljós, aðhannvar 1,8% árið 1971, en er nú komin niður í -*• 0,2%. Árið 1972 var hann jákvæður um 0,8% og um 0,5% árið 1973. Þegar litið er á afkomu ein- Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.